Vikan


Vikan - 01.06.1989, Page 60

Vikan - 01.06.1989, Page 60
í LOFTINU beinar útsendingar þar sem fólk talaði venjulega íslensku eins og hún er notuð manna á milli. Þetta vakti mikla umræðu um tunguna og íslenskt málfar og margt af mínu dagskrárfólki mátti þola ósanngjarna gagnrýni. Þarna komu fram menn og kon- ur með menntun í hinum og þessum fræðum, svo sem kennarar, blaðamenn, leikarar og fleiri sem töluðu gott mál án þess að færa það í hátíðarbúning. Margt af þessu fólki hefúr síðan haldið áffam störf- um á öðrum fjölmiðlum. En þessi umræða og gagnrýni varð líka til góðs á margan hátt og ég er hreykinn af að hafa átt þátt í henni.“ Átti að kœfa einka- stöðvarnar í fæðingu Það var í byrjun maí árið 1983 sem Þorgeir Ástvaldsson var ráðinn forstöðu- maður Rásar 2 úr hópi 14 umsækjenda. Það var svo klukkan tíu að morgni 1. des- ember sama ár sem útsendingar hófúst. Rásin hætti útsendingum klukkan 18 og var svo ffaman af, en fljótlega byrjaði næt- urútvarp um helgar. Með tilkomu Rásar- innar hófust birtingar á leiknum auglýsing- um sem var nýtt í útvarpi hérlendis. Þorgeir segir að á áratugnum 1970—80 hafi átt sér stað mikil umsvif og hræringar í útvarpsmálum erlendis meðan allt hafi staðið í stað hér heima. Yngri kynslóðin hér hafi verið búin að afskrifa Rikisútvarp- ið og raddir um breytingar sífellt orðið háværari. Búið var að samþykkja að af- nema einkarétt Ríkisútvarpsins þegar Rás- in byrjaði og það var eins og stungið hefði verið á blöðru sem var komin að því að springa. Aðdragandinn að Rásinni var stuttur og í hugum margra átti hún bara að vera undirspil í amstri dagsins en hún varð að háværu spili. Og það var ekki bara unga fólkið sem hlustaði því ég fékk fjölmargar óskir ffá miðaldra fólki um að spila dægur- lög ffá fyrri árum. En staðreyndin er sú, að Rásinni var hleypt af stað af ótta við kom- andi einkastöðvar og helst átti að kæfa þær í fæðingu. Það stríð tapaðist og þá fýrst og ffemst vegna þess hvernig stjórnsýslu Ríkisútvarpsins var háttað. Ég var bundinn í báða skó og ekki frjáls að því að byggja upp þá útvarpsstöð sem ég vildi,“ segir Þorgeir. - Bylgjan byrjaði og þið fenguð samkeppni sem Bylgjan vann? „Það var ekki hægt að fá því ffamgengt að lengja útsendingartíma Rásarinnar og fá aukið sjálfstæði við mótun dagskrárstefnu. Bylgjan kom því inn í visst tómarúm sem Rásinni tókst ekki að fýlla. Á Bylgjunni blésu ff jálsir vindar og þar breyttu menn og bættu að vild. Gerðu margt sem ég hefði viljað gera. Efhistök voru frjálsari og einnig útsendingartíminn. Þegar Bylgjan kom opnuðust augu manna fyrir því að rekstur útvarps í höndum annarra en ríkis- ins gat verið jafngóður og gott betur. Út- varp var ekki þessi dauðans alvara sem einkenndi Ríkisútvarpið, heldur endur- speglun samtímans." - Þú hættir svo á Rásinni. Gafstu upp? ,Já, ég hætti þar í mars 1986 og var þá búinn að gefast upp á kerfinu sem Ríkis- útvarpið var og er njörvað í. Þetta var ekki sársaukaiaust. Útvarpið hafði peninga og Rásin stóð undir sér, það hafði góðan tæknibúnað og gott húsnæði. En það sem ég hélt að væri hægt að gera í krafti alls þessa reyndist ekki hægt vegna fýrirkomu- lags stjórnsýslunnar hjá þessari stofnun. Ég taldi að það væri hægt að gera mun bet- ur við aðrar og einfaldari kringumstæður." Ný Stjarna á lofti Það var 1. mars 1986 sem fyrirtækið Hljóðvarp hf. var stofnað og í byrjun sumars sama ár hóf það rekstur nýrrar út- varpsstöðvar sem fékk heitið Stjaman. Stofúendur voru auk Þorgeirs þeir Gunn- laugur Helgason og Jón Axel Ólafsson, sem störfuðu áður á Rásinni, Ólafúr Lauf- dal, sem óþarfi er að kynna og auglýsinga- fýrirtækið Ljósir punktar. Og Þorgeir er spurður hvort nú hafi átt að sigra íslenska útvarpsheiminn. „Nei, ekki segi ég það nú. En við vissum að Bylgjan átti velgengni að fagna og töld- um hana hafa gott af samkeppni sem ekki var fýrir hendi frá Rásinni. Vorum sem sagt þeirrar skoðunar að það væri pláss fýrir nýja útvarpsstöð. Annars var ég mikið að hugsa um að hætta á þessum vettvangi. Var orðinn þreyttur á að vinna alltaf fýrir opnum tjöldum. Svo stóðst ég auðvitað ekki mátið og greip tækifærið þegar það gafst. Á þessu byrjunarskeiði nýrra út- varpsstöðva var raunar unnið meira af kappi en forsjá og ýmsar tilraunir í gangi. En ég ákvað að vera með og sjá þessu óróleikatímabili ljúka og hvort hér væri hægt að reka frjálst útvarp eða eingöngu ríkisrekið. Stjarnan fór af stað til að vera með og við trúðum því að þessi nýja stöð næði að skjóta róturn." — Var samkeppnin hörð við Bylgj- una £rá upphafi? ,Já, já. Þetta var grimmileg samkeppni frá byrjun og heitar áróðursaðgerðir í gangi frá báðum hliðum. Bylgjan og Stjarn- an bitust innbyrðis um hylli hlustenda, en þetta varð aldrei að persónulegu stríði milli manna. En við fórum kannski út í þessa samkeppni við Bylgjuna með þau orð að leiðarljósi að það væri ekki sjálfgefið að sá bátur sem væri síðastur á miðin afiaði minnst. Ég gerði mér grein fyrir að þetta var mótunarskeið, en spurningin var sú hvað tæki við þegar því lyki. Við gáfúm sem sagt ekkert eftir í samkeppninni og hlustendakannanir sýndu að hlustun sveiflaðist nokkuð milli stöðvanna. Hjá Ríkisútvarpinu varð hins vegar ekki hin minnsta breyting á þessum tíma og ekki gerð tilraun til að skilgreina hlutverk þess í fjölmiðlun nútímans þótt Bylgjan og Stjaman væru komnar og ný sjónvarps- stöð, það er að segja Stöð 2. Auðvitað tóku þessar stöðvar hlustun ffá RÚV og eina svarið lengi vel var að berjast við einka- stöðvarnar á auglýsingamarkaði en ekki bæta dagskrána. Og þar við situr enn þann dag í dag.“ RÚV vill þessar stöðvar feigar Þorgeir er nú kominn á slíkt skrið varð- andi Ríkisútvarpið að ég legg Stjörnuna til hliðar í bili og við ræðum um RÚV. Ætlast Þorgeir kannski til að Ríkisútvarpið verði bara nokkurs konar minjasafn og spili „Blessuð sértu sveitin mín“ daginn út og daginn inn? „Nei, auðvitað ekki. Ég vil ekki missa RÚV. Það getur vel verið að þetta hljómi falskt, en það er engu að síður staðreynd, að frá sjónarhóli neytandans hefði ég vilj- að sjá Ríkisútvarpið sem stofnun ýta undir að einkastöðvarnar gerðu það sem þær eru færar um og styrkti ffekar þá þætti dagskrár sem einkastöðvar gera ekki. RÚV á ekki að keppa við einkastöðvarnar á sama grunni eins og það hefúr gert á kostnað annars konar dagskrárefnis sem því ber að sinna samkvæmt útvarpslögum. Ríkisútvarpið hefúr farið út á samkeppn- isbraut sem ekki hæfir útvarpi í þjóðareign og það heldur úti ákveðinni tegund auð- menningar sem því er ekki sæmandi. Ríkis- útvarpið vill einkastöðvarnar feigar og sá vilji ræður ferðinni í þeim herbúðum." — En er ekki eðlilegt að RÚV reyni eftir mætti að afla tekna? „Umfangs síns vegna þarf RÚV að ham- ast á auglýsingamarkaði. Missir auglýsinga- tekna rekur því útvarpið út í óeðlilega samkeppni og það er þessi ótti við tekju- missi, samfara drottnunargirni sem ræður afstöðu þess til einkastöðvanna. Þetta er hið óæskilega hlutverk sem RÚV hefúr lent í og þessu þarf að breyta." Óeðlileg samkeppni Áffam er Rikisútvarpið á dagskrá og ég spyr Þorgeir hvers vegna þeir á einka- stöðvunum láti sér svo tíðrætt um þessi mál. Hvort þeir séu ekki bara að fela eigin vanmátt með því að kenna Ríkisútvarpinu um allt sem miður fer hjá þeim sjáÚúm. Hann tekur því víðsfjarri og segir: „Við verðum að ræða þessi mál í sam- hengi og líta á þau út frá breiðum grund- velli. Annars vegar er um að ræða útvarp í þjóðareign sem hefur starfað í meira en hálfa öld og er með skylduafnotagjöld auk auglýsingatekna. Hins vegar eru einka- stöðvarnar sem hafa engan fastan tekju- stofh og hafa aðeins starfað skamma hríð. Hér verður að koma á ákveðinni verka- skiptingu. Á Ríkisútvarpið að vera á fúllu á auglýsingamarkaði sem hefúr sívaxandi áhrif á dagskrárgerð þess? Á það að láta einkaaðila kosta suma dagskrárliði eins og það sækir stíft á um? Hvert á að vera hlut- verk ríkisins í útvarpsrekstri í ffamtíðinni? Það kostar hátt í tvo milljarða á ári að reka RÚV en aðrir ljósvakamiðlar geta sinnt hluta af verkefnum þess fýrir brot af þeirri upphæð. Þetta er menningarpólitískt mál. Við viljum gott Ríkisútvarp, en á það að þurfa að taka þátt í slagnum um peninga á hinum ffjálsa markaði? Leikurinn er ójafn í 58 VIKAN 11. TBL 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.