Vikan - 08.12.1938, Blaðsíða 23

Vikan - 08.12.1938, Blaðsíða 23
Nr. 4, 1938 VIKAN 23 Með því <að skipta við Eimskip vinnið þér þrennt: 1. Fáið vörurnar fluttar fyrir lægsta verð með mesta öryggi. 2. Þegar þér ferðist fáið þér þægilega klefa, ágætan mat og- góða aðhlyn-n- ingu. 3. Styðjið um leið íslenzkt fyrirtæki og íslenzkt atvinnulíf. Skiptið eingöngu við Eimskip, L'k runin mislol<sf enur[ovimabciela m<?(5 (ovi að senola kjolinn Börn í sunnudagaskóla voru eitt sinn spurð að því meðal annars, hvað það væri, að bera ljúgvitni gegn náunga sínum. Eitt barnið svaraði: — Það er þegar enginn gerir neitt og svo fer einhver að segja frá því. * — Er farangurinn minn kominn upp í vagninn ? — Já, frú. — Og hefi ég ekkert skilið eftir? — Ekki fimmeyring, frú. EÍNALAUG REVK3AVIKUR ',0 Vikan Maður nokkur, er hafði verið mjög óhamingjusamur í hjónabandi, missti konu sína og gifti sig strax aftur. Einn af kunningjum hans sagði við það tækifæri: — Það er sigur vonarinnar yfir reynsl- unni. * Skólastjórinn: Flengdi ég þig ekki um daginn ? Drengurinn: Jú, herra. Skólastjórinn: Og hvað segir ritningin um þetta? Drengurinn: Sælla er að gefa en þiggja. # Presturinn (i stólræðu): Og munið það, kæru, kristnu vinir, að við siglum öll niður fljót tímans og hljótum óhjákvæmilega fyrr eða síðar að lenda á hinu mikla hafi eilífðarinnar. Eitt sinn var sveitaprestur að prédika á föstudaginn langa. Prédikun hans var svo innfjálg að allir fóru að gráta í kirkj- unni að einum undanteknum. Þegar sá var spurður, hvers vegna hann gréti ekki eins og hinir, svaraði hann: — Ég á heima í annari sókn. Maður nokkur hafði orð á því að há- degistíminn væri stöðugt að færast aftur. — Og það endar með því, sagði hann, að við borðum ekki hádegisverð fyrr en á morgun. .# v — Þér ættuð heldur að biðja um sið- prýði en peninga, sagði prúðbúinn maður við betlara. — Ég bað um það, sem ég hélt að þér hefðuð meira af, svaraði betlarinn. Prestur (er að spyrja börn): Hver eru hin ytri, sýnilegu merki skírnarinnar. — Barnið, var svarað. * Atorkusamur iðnaðarmáður hafði tekið nýjan lærling. Fyrsta morguninn vakti hann lærlinginn með því að segja að fjöl- skyldan væri sezt að matborði. — Þakka þér fyrir, svaraði lærlingur- inn, — en ég er ekki vanur að borða á nóttunni. Svo sneri hann sér til veggjar og fékk sér blund.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.