Vikan - 17.12.1942, Blaðsíða 5
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1942
J
OLIll
HATIÐ BARIAiNA
fgó/a/iugZeíðíng
ef/ír séra fOors/eín 2f, ffónsson
]||||||ÓLIN eru hátíð. En af
hverju eru þau hátíð?
" Þau eru hátíð af því, að
þá fæddist sá, sem óhjákvæmi-
lega hlýtur að vera hin full-
komnasta opinberun Guðs —
undraráðgjafinn og friðarhöfð-
inginn í öllu lífi mannanna.
Það er fagur og dýrmætur
vitnisburður til um hann, er
segir oss, að hann hafi ver-
ið ríkur, en gjörzt fátækur
vor vegna, til þess að vér
mennirnir gætum auðgazt af
fátækt hans.
Hann fæddist fátækur í
þennan heim. Heimurinn þótt-
ist ríkur. 1 sannleika var hann
þó fátækur. Þess vegna hafði
Gef oaa í dag ...
hann þörf fyrir þann, sem
fæddist á jólunum í þennan
heim, Jesú Krist. En matið á
fátækt og ríkidæmi breyttist
við komu Krists í heiminn, hjá
öllum þeim, sem trúðu á hann.
Við það að trúa á hann urðu
menn ríkir, en heimurinn, sem
ekki skildi hann, var fátækur.
Og heimurinn var fátækur, af
því að hann gekk í myrkri,
þar sem blindir leiddu blinda.
Jesús var hið sanna Ijós, í
heiminn kominn til að lýsa
mönnunum í gegnum myrkrið,
en myrkrið tók ekki á móti
því.
Heimurinn var fátækur, þeg-
ar Jesús fæddist. En hann vildi
ekki eða þorði ekki að
viðurkenna það. Innst
inni fundu menn þó til
þess, að þá vantaði eitt-
hvað. Af því varð lof-
söngur englanna yfir
Betlehems-völlum á
jólanóttina að dýrðleg-
ustu fyrirheitum:
„Dýrð sé Guði í upp-
hæðum, og friður á
jörðu með þeim mönn-
um, sem hann hefir
velþóknun á.“
Samt voru þeir ekki
nema fáir, sem komu
til ljóssins, af því að
mönnunum fannst
myrkrið vera gott og
geta skýlt sér og verk-
um sínum.
Og heimurinn varð
fátækari en hann var
við komu Krists. Þó urðu þeir
margir, sem gjörðust læri-
sveinar hans, og mörg lönd
játuðu kristna trú eftir fárra
alda heiðingjatrúboð. Heim-
urinn breyttist. Áður óþekkt
hugtök urðu möndulásar sam-
vizkunnar. Kærleikur, mannúð
og alls konar líknar- og menn-
ingarstarfsemi nálgaðist æ
meir kenningu og anda Krists.
Enn er langt frá takmark-
inu. En takmarkið er að vera
Krists menn og krossmenn
hans í dýpsta skilningi.
Kristur, sem ríkur var gjörð-
ist fátækur. Hann gjörðist fá-
tækur eftir mælikvarðanum,
sem heimurinn hafði gert gild-
an. Jesús vissi að heimurinn
var fátækur í sannleika og
þess vegna vildi hann auðga
hann með fátækt sinni. Og
Kristur auðgaði heiminn með
því að sýna honum fram á, hve
gjörfallinn hann var, en eins
og myrkrið tók ekki á móti
Framhald á bls. 6.