Vikan


Vikan - 17.12.1942, Síða 18

Vikan - 17.12.1942, Síða 18
18 JÓLABLAD VIKUNNAR 1942 AGDA SPARRE: w Ra| JOLIN hennar Rögnu. Það var mikið um að vera á heimili Hammers læknis, þegar jólin nálguð- ust; búið til ávaxtamauk, soðnar rauðróf- ur og bakaðir stórir hlaðar af alls kyns kökum, sem ilmuðu og komu vatni fram í munninn. Axel og Einar fóru oft fram í eldhúsið og nældu sér í köku og köku, jafnóðum og þær komu sjóðheitar út úr ofninum. Þeir voru tvíburar, átta ára gamlir. Hammer átti einnig tvær dætur, Guð- rúnu, tíu ára, og Rögnu, tólf ára, sem var í skóla í næsta þorpi og búizt var við á hverri stundu í jólaleyfið. Hammer var læknir í litlu héraði úti á landi. Laun hans urðu því heldur lítil, en Hammer mjög hjartagóður maður, sem þáði aldrei nein laun af fátækling- um og vildi heldur gefa en þiggja. Fyrir það var hann dýrkaður af öllum almenn- ingi. En kærleikurinn er léttur í vasa og Hammer barðist í bökkum við að fullnægja þörfum fjölskyldu sinnar. I stóru sveitaþorpi, sem lá í sex mílna f jarlægð, bjó öldr- uð, rík kona, frænka Hamm- ers, en þó ekki náskyld hon- um. Hún vissi, að Hammer var frekar fátækur og bauð honum því að taka Rögnu til sín í þorpið og setja hana í góðan skóla. Þegar Hammer og kona hans sáu, að þeim mundi fært að láta Rögnu frá sér og að það yrði henni til gæfu, þáðu þau boðið með þökkum. En Ragna var ekki alveg á sama máli. Foreldrar henn- ar og systkini áttu óskipt hjarta hennar og auðséð var, að það mundi valda henni mikillar hryggðar að yfir- . gefa þau. Sofie, móðir henng,r, reyndi að sýna henni fram á, hve fallegt væri af frú Bergfeldt, Ragna leit að taka hana að sér, og hversu þakklát hún væri, en Ragna sá ekkert gott við þetta. „Ég vil miklu heldur ekkert læra og ekkert vita, en að þurfa að fara að heim- an,“ sagði hún snöktandi. „Jæja,“ sagði frú Hammer, hún vissi varla, hvað hún átti að segja. „Og eitt skaltu athuga, Ragna mín! Það léttir ekki lítið á okkur, foreldrum þínum, að þurfa ekki að kosta skólagöngu þína.“ Það var mjög erfitt fyrir frú Hammer að þurfa að segja þessi orð, en hún vissi að þetta var það eina, sem mundi fá Rögnu til að fara til frænku sinnar. Ragna þurrkaði augun. „Ég veit, að ég er óþæg, sagði hún snöktandi, „ég skal heldur ekki tala meir um þetta. En þrátt fyrir allt fæ ég að koma heim yfir jólin, elsku manna?“ „Það máttu vera viss um, elsku barnið mitt,“ sagði móðirin hrærð. I byrjun septembermánaðar kom frú Bergfeldt sjálf til að sækja Rögnu. Hún Ragna litla var ekki nema tólf ára og saknaði þess mjög, að geta ekki ver- ið samvistum við f jöl- skyldu sína, en af því að hón var hugrökk og góð stúlka, hlaut hún sannarlega gleðileg jól, þótt hún væri orðin von- laus um, að svo mætti verða. upp til blikandi stjarnanna og hugsaði, að alveg þær foreldrar hennar og systkini heima. dvaldi nokkra daga á heimili læknisins, en að þeim loknum, fór hún til þorpsins aft- ur og hafði litlu frænkuna með sér. Ragna fékk allt, sem hún þurfti, hjá frú Bergfeldt: Falleg föt, góðan mat og allt eins og bezt var á kosið. Frú Bergfeldt var bæði blíð og góð við hana, en þrátt fyrir það grét Ragna oft í einrúmi, af þrá til foreldra og systkina og æskuheimilia. Og hún taldi dagana til jóla. I nóvember kom móðir hennar í heim- sókn til. frænknanna, en Ragna kveið því alltaf, að hún gæti ekki komizt heim á jólunum. Æ, hvað tíminn mjakaðist seint áfram. Ætlaði jólafríið aldrei að koma? Loks var þó svo komið, aé fáir dagar voru til jólaleyfis- ins. Það hafði alltaf verið ætlunin, að hún færi heim á Þorláksmessu, en kvöldið áð- ur kom frú Bergfeldt að máli við hana: „Heldurðu, að þú vildir vera svo góð að fara ekki fyrr en á aðfangadag, þó það breyti áætluninni? Eins og þú veizt, er ég að sauma svefnábreiðu, sem ég ætla að gefa pabba þínum, og helzt vildi ég, að þú gætir tekið hana með þér, 'en hún er ekki tilbúin hjá mér enn. Ef þú ferð á aðfangadag klukkan tólf, geturðu verið komin heim um tvöleytið, hvað finnst þér um það?“ Þrátt fyrir það, að Rögnu þætti þetta harðneskjulegt af frú Bergfeldt og að henni væri þetta mjög á móti skapi, ákvað hún að láta betri manninn ráða og svaraði vin- samlega, að það gerði ekkert til. — Frú Bergfeldt var virðing- arverð kona, en hún var ofur- lítið hugsunarlaus og það var svo f jarri, að henni dytti það sömu sæju i bug, að það væri nokkur vonbrigði fyrir Rögnu að koma einum degi seinna heim en hún hafði ákveðið. Aðfangadagurinn rann upp, og Ragna sá strax, að frú Bergfeldt var eitthvað öðruvísi en hún átti að sér. „Mér sýnist þú vera svo veikluleg, frænka,“ sagði Ragna. „Ég veit varla, ég er sVo einkennileg í höfðinu," svaraði frúin. Frh. á bis. 45.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.