Vikan - 17.12.1942, Page 20
20
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1942
ucimn m
E. IIIII L I V
Jólamatseðill.
Aðfangadagskvöld:
„Súpa á la Clairmont“.
2 1. kjötsoð, 1 stór laukur.
Yztu lögin eru tekin af lauknum
og hann skorinn í þunnar sneiðar.
Þær eru brúnaðar ljósbrúnar í smjöri
eða plöntufeiti, síðan lagðar á þykk-
an pappír, svo feitin geti runnið af
þeim. Soðið sjóðhitað og laukurinn
látinn út í.
Beinlausir fuglar.
1V2 kg. læri, kálfa- eða svína-
kjöt, 100 gr. flesk, y2 1. vatn eða
mjólk, 75 gr. smjör, 25 gr. hveiti,
125 gr. kjötfars, 2 laukar, 1 te-
skeið salt, y2 teskeið pipar.
Kjötið er þvegið, sinar og himnur
teknar í burtu, skorið í sæmiiega
stórar sneiðar, barið og stráð kryddi
og fint skomum lauk. Dálítill flesk-
biti ásamt einni matskeið af kjöt-
farsi látið yfir og kjötinu vafið sam-
an utan um það, bandi bundið um,
síðan er það brúnað í smjöri. Sjóð-
andi vatn eða mjólk er nú látið sam-
anvið og allt soðið í þrjú kortér.
Fuglarnir teknir upp og böndin leyst.
Hveitið er hrært út í dálitlu köldu
vatni, helt í soðið og soðið í 5 mín-
útur.
Prinsessubúðingur.
100 gr. smjör, 100 gr. hveiti, 6
dl. mjólk, 80 gr. sykur, 8 egg,
vanilla.
Smjörið er brætt, hveitinu hrært
saman við, þynnt í sjóðandi mjólk,
sem vanillan er soðin í í nokkrar
mínútur. Potturinn tekinn af eldin-
um og eggjarauðunum (einni i senn)
hrært samanvið; þetta er hrært í 10
mínútur eftir að sú síðasta er komin
saman við. Sykurinn og stífþeyttar
eggjahvíturnar eru látnar út í. Mót
er smurt vel og stráð tvíbökumylsnu,
deiginu hellt í það og tvíbökumylsnu
stráð yfir, áður en lokið er sett yfir.
Mótið er sett í pott með sjóðandi
vatni og ullarstykki lagt yfir. Eúð-
ingurinn er soðinn í 1(4 klukkustund
við hægan eld. Lokið er tekið af og
mótinu hvolft yfir fat það, sem bera
á búðinginn fram á. Ef búðingurinn
losnar ekki strax úr mótinu, skal
hrista það, en gæta þess vel, að halda
því fast við fatið. Borið fram með
rauðri sósu.
Jóladagur:
Kalt hangikjöt.
með kartöriujafningi og grænum
baunum.
„Eplapie“.
750 gr. epli, 100 gr. sykur, 60
gr. smjör, 60 gr. sykur, 2 til 3
egg, 60 gr. möndlur.
Eplin eru flysjuð og soðin í graut,
sem 100 gr. sykur er sett saman við.
Smjörið er velgt, hrært hvítt ásamt
sykrinum, og svo eru eggjarauðurn-
ar (ein í senn) settar saman við, og
að lokum eru stífþeyttar hviturnar
og möndlurnar látnar út í. Mót er
smurt, eplagrauturinn látinn í botn-
inn og hinu svo hellt yfir. Bakað í
vatnsbaði í % klukkustund. Má, ef
vill, skreyta með þeyttum rjóma,
þegar orðið er kalt.
Annar jóladagur:
Kálfakótelettur.
iy2 kg. kálfskjöt (hryggur), 125
gr. smjör, salt og pipar.
Kjötið er þvegið, teknar burt sinar
og himnur, og skorið í hæfilega
þykkar sneiðar, þannig að eitt rif-
bein og hálfur hryggjaliður fylgi
hverri sneið. Kjötið er skafið frá rif-
beininu og kótelettumar barðar og
lagaðar til. Steikarpannan sett yfir
mikinn eld. Þegar hún 'er orðin heit,
er smjörið látið á hana og brúnað,
síðan eru kóteletturnar látnar á og
steiktar í 4 mínútur á hverri hlið.
Síðan eru þær teknar af pönnunni
og látnar á fat, sem halda verður
heitu. Af beinum og kjötafgangi er
soðin örlítil súpa. Henni er nú hellt
á pönnuna og er hún þar soðin ásamt
smjörinu og stöðugt hrært í. Er bor-
ið er fram, er sósunni hellt yfir
kóteletturnar, sem grænmeti er rað-
að í kringum. Kartöflurnar bornar
fram með.
Súkkulaðibúðingur.
y2 1. mjólk eða rjómi, 125 gr.
súkkulaði, 10 gr. kakaó, 25 gr.
sykur, 4 blöð matarlím, 2 dl.
rjómi, 10 gr. sykur, 1 teskeið af
vanillusykri, 2 blöð matarlím.
Rjóminn er settur yfir eld ásamt
súkkulaði, kakaó, sykri og matar-
lími og soðið í cá. stundarfjórðung,
tekið af eldinum og hrært í, þar til
það fer að stífna, þá er því hellt í
vott mót. Rjóminn er stífþeyttur,
sykri, vanillu og uppleystu matarlimi
hrært saman við. Þetta látið í vætt
smámót, sem hægt er að hvolfa úr
eftir klukkutíma og nota til skrauts
á súkkulaðibúðinginn. Búðingurinn
verður bragðbetri, ef 2 dl. þeyttum
rjóma er hrært saman við hann, áður
en hann er alveg stífnaður.
Húsráð.
Til þess að líkami yðar fái það,
sem hann þarfnast af mjólk, þá
skuluð þér drekka mjólk, borða hana
í súpum og slíku og sem ost.
*
Fáið mann yðar til þess að snúa
út legurbandinu í hatti sínum, er
hann hefir svitnað mikið. Við það
endist haturinn lengur, því þá gufar
svitinn upp og þarnar, en fer ekki
yfir í hattinn.
Kvöldkjóll.
Kjóll þessi er úr hvítu silkiefni
með rauðum röndum. Tveir örlitlir
vasar eru á blússunni, sem lmeppt
er með tveimur rauðum hnöppum.
Beltið er úr rauðu flaueli með silfur-
keðjum og tveimur rauðum dúskum.
Ermamar eru víðar, teknar saman
með þröngri líningu að framan.
Það er oftast nær auðvelt að ná
blekblettum af mahognyhúsgögnum
vegna þess, að blekið fer ekki alveg
inn í viðinn. Þurrkið það af með
mjúkum klút undnum upp úr sápu-
vatni. Þurrkið svo með mjúkum
þurrum klút.
Minnstu ávallt [
=
I
mildu sápunnar I
5