Vikan


Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 17

Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 17
Læknarnir hér heima vildu ekki setja mig í gifs þar sem ég var svo bólgin. Á sjúkrahúsinu í L.A. brá mér í brún þegar ég spuröi hvaö kost- aöi aö vera sett í gifst. Kostnaðurinn reyndist tvö hundruð þúsund krónur. Þaö er betra aö vera vel tryggður í Ameríku. Félagi okkar fór einn daginn út á þak aö pissa. Ekki spyrja mig af hverju. Þakið var úr plasti og gaf sig og hann var lagður á spítala. Viö náöum honum út tveimur dögum eftir að hann átti að útskrifast, þegar íslenska sendiráðiö haföi gengist í ábyrgð fyrir hann. Við höfðum ekki efni á því að leysa hann út. Ég lærði ýmislegt á því aö fara til Ameríku. Sem dæmi fer maður helst ekki út nema eiga ríkan pabba, allavega digran varasjóð. Ég eyddi skyldusparnaðinum i dvölina og lána- sjóðurinn borgaði eins og hann mátti, greyið. Það dugöi skammt. Þess utan var það elsku pabbi. Ég slapp samt nokkuð vel. Margir krakkanna úti keyptu bíl fyrir sama pening og ég keypti mótorhjólið. Þegar upp var staðið höfðu þau borgað andvirði bílanna I viðgerðir en ég skipti einu sinni um kerti og tók aðeins þrettán sinnum bensín. Ég var próflaus úti en slapp nokkuð vel. Þegar ég var stoppuö brosti ég, sýndi Ijósa hárið og bláu augun og talaði einungis íslensku. Þetta gekk þar til ég hitti á kvenlöggu og fékk sekt upp á þrjátíu þúsund. Eins og sjá má hefur ekki verið nein logn- molla í kringum mig. Núna er félagi minn að at- huga með vinnu fyrir mig í Lúxemborg, foreldr- um mínum til mikillar hrellingar. Þau segja að ég sé búin að gera nóg í bili. Ég ætlaði reyndar til Saudi Arabíu en það datt upp fyrir þegar stríðið skall á. STÓÐ MEÐ SADDAM í BYRJUN STRÍÐS Þessa dagana er ég samt að hugsa um róleg- heitin. Hver veit nema ég nái mér í karl, gifti mig og komi mér fyrir. Samt eru rólegheitin ekki endilega efst á baugi. Ég stóð til dæmis með Saddam Hussein í byrjun stríðs, bara til að vera á móti og eiga möguleika á því að rök- ræða. Pólitík er reyndar ekki mitt uþþáhald. Ég æsi mig stundum yfir pólitík og er yfirleitt á móti öllum, bara til að vera á móti. Þó fylgist ég vel með verkamannapólitík og kann Dags- brúnarsamningana afturábak og áfram. Ég er harður andstæöingur mótframboðsins sem kom í síðustu Dagsbrúnarkosningum. Um- mæli sem þeir menn höfðu um borgarstarfs- menn voru þeim ekki til framdráttar. Landsmálapólitík er ekki fyrir mig. Kvenna- listinn vill til dæmis byggja allt of mörg barna- heimili og ég tími ekki að borga fyrir þau. Ef þær væru raunsærri og minnkuðu skýjaborg- irnar myndi ég kannski kjósa þær. Ég hugsa að ef ég færi í pólitík myndi ég velja Alþýðu- flokkinn, þar er rifist svo mikið. Annars er hugurinn alltaf fyrir utan landstein- ana. Pólland kemur sterklega til greina. Alla- vega Evrópa. Ég vil vera í landi þar sem ég get skroppið í helgarferð til íslands. Ég kem alltaf til með að enda ævina hér. Mér þyrfti að bjóð- ast vinna með þrjátíu milljónir á mánuði og fallegasti karlmaður í heimi til að ég flyttist endanlega burt. Eftir að hafa fengið vænan skammt af ævi Ágústu, stóran skammt af hlátri og of stóran skammt af kaffi þakka ég henni fyrir spjallið og held út í náttmyrkriö. □ JEAN DAVEZE PARIS FYRIR ALLAR HÚÐ- TEGUNDIR OG ALDUR JOUVENCE LÍNAN D HREINSIMJÓLK Lait Demaquillant Hreinsimjólk notuö kvölds og morgna til þess að hreinsa fitu- og svitaholur húð- arinnar og auðvelda djúpvirkni krem- anna frá Jean d'Aveze. D ANDUTSVATN Lotion Tonique Andlitsvatn án alkóhóls notað kvölds og morgna til að styrkja og lífga upp á yfirhúðina. Hentar sérstaklega þurri, viðkvæmri og fíngerðri húð. O ANDLITSVATN Lotion Stimulante Andlitsvatn með alkóhóli notað kvölds og morgna fyrir normal, blandaða og feita húð og einnig bóluhúð. Dregur saman hinar opnu holur með því að ön/a starfsemi húðlagsins. D RAKAKREM Emulsion Flulde Hydratante Þunnfljótandi rakakrem, sem styrkir og ver húðina fyrir utanaðkomandi áhrifum og gefur húðinni hinn nauðsynlega raka. Inniheldur uppbyggjandi efni sem næra húðina, hvíla og vernda - og gera hana mjúka og ferska. Sórstak- lega gott fyrir normal og feita húð. Not- að eitt sér eða sem undirlag fyrir farða. O DAGKREM Creme Hydratante Anti-Ridea Dagkrem unnið úr náttúrulegum virkum efnum sem seinka myndun hrukkna og djúpnæra húðina. Verndar yfirhúðina, gefur vefjum húðarinnar nægan raka og er gott undirlag fyrir farða. Sérstak- lega gott fyrir þurra og viðkvæma húð. Notið sparlega. O YNGINGARKREM NÆTURKREM Creme de Jouvence Einstakt krem sem stuðlar að jafnvægi húðarinnar og uppbyggingu. Hefur áhrif á endurnýjun frumanna til að koma í veg fyrir og draga úr ellimörkum ásamt öðrum húðgöllum og lýtum. Fljótlega eftir að byrjað er að nota kremið koma greinilegar breytingar á húðinni í Ijós. Ef húðin er í slæmu ástandi t. d. vegna vanrækslu eða ert- ingar af ýmsu tagi lagar Creme de Jou- vence húðina á nokkrum dögum og kemur á heilbrigðu jafnvægi. Notað á nottunni 2-5 sinnum í viku fyrir normal og feita húð. Notað á hverju kvöldi ef húðin er þurr og jafnvel á daginn líka svo framarlega sem farði er ekki notað- ur yfir. D HÁLSKREM Creme pour le Cou Fitulaust krem er kemur í veg fyrir og minnkar hrukkur á hálsi og bringu vegna þeirra styrkjandi og nærandi náttúrulegu efna sem kremið inniheld- ur. Efllr mótstöðuafl og styrkir vöðva- trefjarnar, sem eru uppistaða hinna bogadregnu hálslína. O YNGINGA MA SKI Masque Traitant Andlitsmaski sem hreinsar dauðar húð- frumur, umfram fitu og óhreinindi af yfirhúðinni. Styrkir vöðvatrefjar húðar- innar og dregur úr hrukkumyndun. Við notkun 1 -2var sinnum í viku verður húðin líflegri og áferðafallegri. Hentar öllum húðtegundum og aldurshópum. FYRIR KONUR 25 ÁRA OG ELDRI REGENERESCENTE LÍNAN D HEINSIKREM Creme Nettoyante Douce Hreinsar húðina fullkomlega auk þess sem húðin verður fersk og mjúk. Berið á aldlitið með léttum hringlaga nudd- hreyfingum. Við þetta slaka andlits- vöðvarnir á og endurnýjun yfirhúðarinn- ar örvast. Skolið af með vatni og húðin ,er tilbúin fyrir virka meðferð. Hentar öllum húðtegundum. O MILD HREINSIMJÓLK Emulsion Demaquillante Róandi og mýkjandi hreinsimjólk sést- aklega góð fyrir þurra, viðkvæma og ofnæmiskenda húð. Mjólkin leysir upp farða og óhreinindi á svipstundu. pH- stig hennar er svipað því sem húðin hefur sjálf (6,3) og verndar því náttúru- legt varnarleg hennar. O MILT ANDUTSVATN Tonique Extreme Douceur Alkóhóllaust andlitsvatn auðugt að nærandi efnum. Ómissandi til að mýkja og styrkja húðina eftir hreinsun á kvöld- in. Á norgnana veitir það ferskleika, sem nauðsynlegur er til að byrja dag- inn. Hentar öllum húðtegundum. O DAGKREM Traitement de Jour Dagkrem auðugt af virkum, uppbýggj- andi efnum sem gefa húðinni næringu og orku. Styrkir náttúrulegt varnarlag húðarinnar og viðheldur réttu rakastigi. Notað eitt sér eða sem undirlag fyrir farða. Létt krem og skemmtilegt í notk- un. Hentar öllum húðtegugndum. O NÆTURKREM Traitement de Nult Þetta einstaklega virka krern veitir húð- inni þau efnasamböd sem eru henni nauðsynleg til endurnýjunar. Lifrænt efnasamband örvar frumuendurnýjun með því að veita frumunum lífsnauð- synlegar amínó-sýrur og próteinefna- sambönd. Ríkuleg næring, sem frum- urnar draga í sig gegnum yfirhúðina, nýtist best á nóttunni meðan þú sefur. O AUGNKREM Emullsion Lissante Contour Des Yeux Mjög lótt augnkrem sem smýgur inn i húðina og styrkir hana og dregur úr hrukkum kringum augun. Auk þess fær húðin aftur sína fyrri mýkt, teygjanleika og stinnleika. Augnkremið hefur einnig róandi, græðandi og þrotaeyðandi áhrif. Tilvalið að nota undir farða. PÓSTSENDUM UM LAND ALLT Merkið í reitina og sendið til næsta útsölustaðar. NAFN: ---------------------- HEIMILISFANG: KREM SEM UPP- FYLLA SÉRÞARFIR: SPECIFIOUES LÍNAN D NUDDMASKI C^ommage Douce Maski sem losar yfirhúðina við dauðar hornfrumur, umfram fitu, svita og úr- gangsefni, jafnframt því að draga sam- an opnar fitu- og svitaholur sem stuðla að örari endurnýjun yfirhúðarinnar. Maskinn er núddaður af með fingur- gómunum og leifar fjarlægðar með vatni og síðan andlitsvatni. Inniheldur engin sterk efni og hentar jafnvel við- kvæmustu húð. O FEGRUNARMASKI Masque de beaute. Rakagefandi kremmaski sem dregur i sig óhreinindi og gerir líflausa og grá- leita húð glóandi og slétta. Jurtaefnin i maskanum styrkja húðina og örva blóð- rásina í henni. Hentar öllum húðteg- undum og sérstaklega skal mælt með honum fyrir þurra og viðkvæma húð. D FYRIR ÓHREINA HÚÐ Jouvacnet Krem fyrir óhreina, feita og bólótta húð unnið úr mjólkurpróteini, amínósýrum og B6-fjörefni. Það losar um stíflur í fitukirtlum húðarinar og dregur saman hinar opnu holur. Djúphreinsar húðina og kemur í veg fyrir offramleiðslu húðfit- unnar. Meðferðin vinnur að útrýmingu fílapennsla og dregur úr grámyglu- legum litarhætti. Nuddað inn í raka húð- ina á vandamálasvæðin. O KREM SEM JAFNAR LITARHÁTTINN Creme Anti Rougeurs Krem sem kemur í veg fyrir og dregur úr hinu hvimleiða útliti sem er samfara rauðum flekkjum eða háræðasliti i and- litinu. Fyrir tilstilli plöntukjarna og lífeðl- isfræðilegra virkra þátta, dregur kremið saman hinar þöndu háræðar og kemur í veg fyrir að þær stíflist. Það örvar blóðrásina, styrkir háræðaveggina og jafnar litarhátt húðarinnar. Kremið er sett undir dag- eða næturkrem á hin afmörkuðu svæði tvisvar á dag. O AUGNHLAUP Gel Contour des Yeux Kælandi augnhlaup sem hjálpar til að draga úr þrota og pokum undir augum. Það inniheldur kornblómaseyði og Dragosantol sem styrkja húðina og draga úr ertingi. Hlaupið veitir þægi- lega ferskleika tilfinningu og dregur úr þreytumerkjum á áhrifaríkan hátt. Not- að hvenær sem er - jafnvel yfir farða. D HANDÁBURÐUR Creme Beaute des Malns Handáburður í sórflokki sem mýkir, græðir og nærir húðina. Kemur í veg fyirir uppþornun og flögnun og myndar gegnsæja himnu til verndar húð hand- anna. Handáburðurinn hverfur algjör- lega inn í húðina eftir stutta stund og er þvi hentugur að grípa oft til í dagsins önn. O NAGLASNYRTIEFNI Creme Revltalisante pour les Ongles Þetta krem herðir og styrkir neglurnar með því að hraða endurnýjun naglfru- manna. Það græðir trosnuð og slitin naglabönd og hreinsar vandlega svæð- ið umhverfis neglurnar og styrkir húð- ina. Borið daglega á neglurnar og svæðið þar í kring. Eftir mánaðar reglu- lega notkun er árangurinn heilbrigðar og glæsilegar neglur. ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKjAVÍK: BRÁ, Laugavegi 72, TOP CLASS, Laugavegi 51, SNYRTIVÖRUVERSLUNIN Glæsibæ, ÁRSÓL Grímsbæ, MIKLIGARÐUR, v/Holtaveg, HYGEA, Kringlan 8-12, SNYRTISTOFAN JÓNA, Laugavegi 163, SPES, Kleifarseli 18, SELTjARNARNES: EVITA, Eiðistorgi, KÓPAVOGUR; BYLGJAN, Hamraborg 16, HAFNAFJÖRÐUR: ANDORRA, Strandgötu 32, KEFLAVÍK: SMART, Hólmgarði 2, AKRA- NES: BJARG, Skólabraut 21, AKUREYRI: VÖRUSALAN, Hafnarstræti 104, APÓTEKIÐ ÓLAFSVÍK, GRINDAVÍKUR APÓTEK, LYFSALAN VOPNAFIRÐI, RANGÁR APÓTEK, STYKKISHÓLMS APÓTEK, PAT- REKS APÓTEK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.