Vikan


Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 42

Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 42
finningar sem um sál okkar og huga fara hverju sinni. NAUÐSYNLEGT AÐ EFLA GOn SJÁLFSTRAUST Ef þú hefðir fengið slíka þjálf- un strax sem lítil stúlka ættir þú örugglega betra með að vinna sjálf bug á viðkvæmu og vanmáttugu ástandi því sem gripið hefur um sig í huga þér og sál að undanförnu. Best er því fyrir þig að afla þér staðgóðrar þekkingar á samsvarandi líðan annarra í gegnum sjálfsstyrkjandi bæk- ur sem víða eru til. I þeim er líka leiðsögn um hvernig mögulega má vinna sig markvisst frá svipuðum andleg- um þrautum og þú finnur svo mjög fyrir. Bækur eins og Elskaðu sjálfa þig og Vertu þú sjálfur eru mjög ákjósanlegar í þinni stöðu og blessunarlega lausar við yfirlæti eða annarlegar flækjur á eðlilegum tilfinninga- vandræðum þeirra sem litla þekkingu hafa á þeim þáttum sjálfs sín og þurfa staðgóða og skynsamlega viðmiðun. Þarna eru þessar tilfinningar greindar og skoðaðar af þekk- ingu höfundar, með viðmiðun við það venjulega fólk sem hefur þegið stuðning viðkom- andi með ákaflega góðum ár- angri á endanum. Eftir þessum leiöum getur þú sjálf auðveldlega byggt upp aukið sjálfstraust, án þess að gera sjálfa þig fyrirfram að vonlausu tilfelli sem þurfi fag- legrar nálægðar við. Það þarf sem sé alls ekki aö vera þó oft sé slíkt mikill kostur jafnframt hinum möguleikunum. AUKAKÍLÓIN Hvað varðar aukakílóin verður, elskuleg, að segjast eins og er að það er oftast ein- hvers konar áhugaleysi á sjálf- um sér sem fær okkur til að breikka umfang okkar umtals- vert. Það liggur því í augum uppi að ef þú eflir persónulegt sjálfstraust, sem byggist á aukinni þekkingu á kostum þínum og öðrum áhugaverð- um eiginleikum, kemur af sjálfu sér að þér verður annt um útlit þitt líka. Enginn vill vera afmyndaður af aukafitu. Þess vegna er mjög eðlilegt að við sóum ósátt við það ef útlit okkar atvikast þannig. Við verðum flest eyði- lögð yfir aukakílóum þeim sem auka umfang okkar þannig að það stingur í stúf við það sem verður að teljast ákjósanlegra, svo sem holdafar sem sam- svarar nokkurn veginn beina- byggingu og stærð. Sjálf hef ég verið f hópi þeirra fjörlega vöxnu og fundist það mjög miður. AUÐVELD MEGRUNAR- AÐFERÐ Ef við viljum grenna okkur er venjulegast best að sleppa öll- um sætindum og borða okkur aldrei yfirsödd. Þetta hef ég sjálf reynt frá því í nóvember án þess að auka við hreyfingu og hef þegar, mér og þeim sem hafa mig daglangt fyrir augunum til mikillar ánægju, Þú þjálfar þig í stað- föstu trausti á eigin dóm- greind í stað þess að láta aðra og hugsan- lega tak- markaðri einstakl- inga en þig hugsa fyrir þig og velja niðurstöð- ur þér til handa... lést um ein fimmtán kíló. Ennþá þurfa um tíu kíló að fara og þú sérð því að ef ég get þetta án nokkurrar áreynslu - einungis eftir ákvörðun um að breyta hvimleiðu ástandi offitu í huggulegt útlínulag - þá getur þú það líka. Hitt er svo annað mál að í sjálfu sér segja innri eiginleik- ar og heilbrigði meira um manngildi fólks en nokkur kíló til eða frá. Hvað varðar það að húð þín sé skemmd finnst mér það í sjálfu sér ekkert vanda- mál því ef þú ert elskuleg og jákvæð manneskja skiptir ekki máli þó húðin sé öðruvísi en ákjósanlegast er. Það er auk þess venjulega auðvelt að fela slíkt ef þannig stendur á. ÁKVARÐAN ATÖKU R Þú segist eiga erfitt með að taka ákvarðanir og það er sennilega afleiðing af einhvers konar stjórnsemi annarra [ uppvexti þínum. Trúlega hefur of mikið verið hugsað fyrir þig. Slíkt tengist venjulega ofurást foreldris eða þess sem annast okkur. Við þessu er margt að gera og nauðsynlegt að upp- ræta slíkan ávana. Það getur fyrst og fremst orðið mögulegt sem afleiðing af auknu sjálfs- trausti. Við verðum að treysta eigin dómgreind og nota frjálsan vilja okkar viturlega á eigin máta við allar ákvarðanatökur, ef vel á að vera. Best er að byrja þessa þjálfun f mjög smáu, svo sem með einhverju sem þú setur á svið sjálfri þér til hvatningar. Þú getur farið í búð og keypt þér skó. Ef þú átt erfitt með að gera upp við þig hvort pariö af tveim er hentugra skaltu taka upp blýant og blað á staðnum og gefa þér tíma til að skrifa niður kosti og galla beggja paranna fyrir þína fætur. Veldu svo parið sem þér reikn- ast til að hafi fleiri kosti tengda þessum tilgangi, án þess að bera ráðstöfunina undir nokk- urn annan. Með þessari einföldu aðferð ert þú að byggja upp eigin af- stöðu og skerpa sjálfstæði þitt í væntanlegum ákvörðunum vegna framtíðarinnar. Sömu aðferð má vitanlega nota á allt annað sem krefst ákvörðunar- töku. Þú þjálfar þig í staðföstu trausti á eigin dómgreind með þessu, [ stað þess að láta aðra og hugsanlega takmarkaðri einstaklinga en þig hugsa fyrir þig og velja niðurstöður þér til handa, í málum sem þú átt raunverulega með réttum að- ferðum auðvelt með að leysa ef þú þjálfar þig til þess. HÖFNUN Hvað varðar það að þér sé hafnað, þegar þú óskar eftir starfi, er það kannski ekki óeðlilegt, sé tekið mið af því sem þú sendir frá þér til ann- arra. I bili ertu sjálf með van- mat á eigin persónu og það hefur áhrif á athafnir þínar og atferli. Þeir sem eru samvist- um við okkur finna þetta, hvort sem er í gegnum það sem frá okkur fer eða í gegnum persónulega nánd, þó þeir skilji kannski ekki í fyrstu í hverju það liggur. Fólk eignast þannig ekki trú á möguleikum okkar við fyrstu kynni eða í gegnum skriflegar upplýsingar okkar. Hvort tveggja er náttúrlega smitað og haldið eigin óöryggi sem síöan gerir aðra óvissa um hugsanlega möguleika okkar. Þess vegna er okkur oftast hafnað, af þessum ástæðum sem þú ert að tala um. Höfnun getur líka stafað af öfund eða öðrum óheppileg- um samanburði en því er vart til að dreifa í tilvikum þar sem viðkomandi er að líta okkur augum fyrsta sinni eins og oft- ast er þegar verið er að sækja um vinnu. Um leið og þú hefur náð upp því sem fellur undir eðlilega sjálfsást og vanmat þitt hefur dvínað aukast líkur þínar á mögulegu framtíðarstarfi. Þannig stemmd gagnvart sjálfri þér eykur þú nánast óaf- vitandi áhuga annarra á persónu þinni og hæfileikum til tiltekins starfs. INNRI OG YTRI UPPBYGGING Þess vegna er afar mikilvægt fyrir þig að hefja sem fyrst markvissa innri uppbyggingu sem eflir þitt innra líf, auk þess sem viturlegt væri að setja sér um það bil eins árs prógramm í skynsamlegu mataræði. Það fæli í sér meðal annars algjört sætindabindindi. Rétt er þó að ástunda smá- svindl af og til - en engar refsi- aðgerðir vegna þannig fram- hjáhlaups frá upphaflegu markmiði vegna þess að það er eðlilegt að gefast upp dag og dag. Við þolum illa stöðug- an vind eða sól. Við þurfum vissa tilbreytingu og hreyfingu í daglegt innra sem ytra mynstur, eitthvað sem fellur ekki fyllilega í einhvert fyrir- fram ákveðið, ófrávíkjanlegt hólf. 42 VIKAN 7. TBL. 1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.