Vikan


Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 53

Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 53
in vinir hans eru og hvorum megin óvinirnir eru. Hann veit ekki hvaö skal taka til bragðs, skimar í kringum sig og segir varfærnislega: „Ju-húúú.“ Myndin gerði allt vitlaust. Hitler varð svo reiður þegar hann sá hana að hann lét tafar- laust banna sýningar á henni í Þýskalandi og öllum hernumdu löndunum sínum. Hingað til hafði hann haft gaman af myndum Chaplins en nú fyrirskipaði hann að þessi gyðingaskratti væri réttdræpur hvar sem næðist í hann. Myndin var til dæmis ekki frumsýnd í Dan- mörku fyrr en lögu eftir stríð. En þetta var síð- asta myndin þar sem Chaplin kom fram í hlut- verki flækingsins með litla yfirskeggið. VÍSAÐ ÚR LANDI OG TEKINN í SÁn Næsta mynd, Monsieur Verdoux, kom ekki á markað fyrr en sjö árum seinna. Þá var Chapl- in orðinn 56 ára, orðinn gráhærður og lék kvennamorðingja. Myndin var öðruvísi en allt sem Chaplin hafði gert áður og menn urðu fyrir vonbrigðum með hana. Um svipað leyti kom upp sá kvittur að hann væri kommúnisti svo að myndin var tekin af markaðnum og ekki sýnd aftur í Bandaríkjunum fyrr en mörgum árum seinna. Chaplin sagðist aldrei hafa verið kommúnisti og yrði það aldrei. Hann væri að- eins friðarsinni og væri á móti hernaðarátök- um. Engu að síður var honum visað úr landi f Bandaríkjunum. Rétt áður en það gerðist hafði hann lokið við myndina Sviðsljós sem þótti heldur drungaleg og lítið fyndin nema í einu atriði sem annar gyðingur, Buster Keaton, kom fram í. Næsta mynd hans, Kóngur í New York, var gerð í London. Hún var að vísu fyndnari en Sviðsljós en bitur ádeilan á amerískt líferni skein alls staðar i gegn. Þetta var síðasta myndin sem Chaplin lék aðalhlutverkið í. Árið 1966 gerði hann svo síðustu mynd sína, Greif- ynjuna frá Hong Kong, með Marlon Brando og Sophiu Loren í aðalhlutverkum. Þetta var eina litmynd Chaplins og líklega sú lélegasta. Hún þótti ófrumleg og gamaldags. Þaö eina sem stóð upp úr í henni var lag Chaplins, This is My Song, sem Petula Clark söng. Árið 1972 var hann tekinn í sátt í Bandaríkj- unum og fór þangað til aö taka við óskars- verðlaunum fyrir ómælanleg áhrif hans til að gera kvikmyndirnar að áhrifamestu listgrein aldarinnar. Chaplin var kominn yfir áttrætt en hann var svo hrærður yfir stórkostlegum mót- tökunum í Bandaríkjunum að hann sagði í sérstakri veislu sem var haldin honum til heið- urs: „Þetta er endurreisn mín. Ég er fæddur upp á nýtt.“ Hann lét lítið á sér bera næsta árið. Þá var hann orðinn áttatíu og tveggja ára og mundi orð sígaunaspákonunnar: „Þú munt deyja úr lungnabólgu þegar þú verður áttatíu og tveggja ára.“ En næsta ár var hann orðinn hinn sprækasti aftur og árið 1975 sló Breta- drottning þennan fyrrum flæking úr fátækra- hverfum Lundúna til riddara. Eftir það þótti til- hlýðilegt að ávarpa hann sem Sir Charles. MESTI LISTAMAÐUR ALLRA TÍMA? Sir Charles Spencer Chaplin gerði aðeins níu kvikmyndir, sem hann lék aðalhlutverk í, í fullri lengd um ævina auk tveggja annarra sem hann samdi og leikstýrði. Þar að auki lék hann í rúmlega sjötíu stuttum myndum en margar Chaplin, ásamt Soff íu Loren, meðan á kvikmyndun Greifaynjunnar af Hong Kong stóð. ► Úr Gullæðinu sem Chaplin fannst best af myndum sínum. þeirra teljast til meistaraverka, svo sem Flakk- arinn (The Tramp, 1915), Umrenningurinn (The Vagabond), Veðlánarinn (The Pawn Shop), Að tjaldabaki (Behind the Screen) allar 1916, Easy Street, Lækningin (The Cure), Inn- flytjandinn (The Immigrant), Ævintýramaður- inn (The Adventurer) frumsýndar 1917, Hundalíf (A Dogs Life), Shoulder Arms 1918, Sunnyside, Skemmtiferðin (A Days Pleasure) 1919, Hjá fínu fólki (The Idle Class) 1921, Út- borgunardagur (Pay Day) og Pílagrímurinn (The Pilgrim) 1922. Á fyrstu árum Chaplins í Hollywood gerði hann hverja myndina á fætur annarri án þess að skrifa handrit að þeim og jafnvel án þess að hafa hugmynd um hvað hann ætlaði að gera þegar hann vaknaði til vinnunnar. En hug- myndaflugið var óþrjótandi og hann gerði bara það sem honum datt í hug í það og það skiptið. Um þetta leyti var hann einhvern tíma spurður að því hvernig hann færi að því að gera svona skemmtilegar myndir. Þá svaraði hann: „Þetta er ekkert mál. Maður finnur sér bara aðstæður og umhverfi. Til dæmis elsk- endur að laumast á bekk í almenningsgarði og lögregluþjónn bak við runnann -og þar með er maður kominn með kveikju að hugmynd." Mack Sennett sagði einhvern tíma að Chaplin væri mesti listamaður sem nokkurn tíma hefði fæðst í heiminum og hann kom meira að segja til álita sem nóbelsverðlauna- hafi í bókmenntum á sínum tíma. Það eru hundrað ár síðan hann fæddist og um þrettán ár síðan hann lést en hann hefur í rauninni aldrei dáið. Chaplin deyr aldrei. □ 7. TBL. 1991 VIKAN 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.