Vikan


Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 35

Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 35
KYNNGIMÖGNUÐ FRAMHALDSSAGA EFTIR MEISTARA SPENNUSAGNA - STEPHEN KING Inngangur Um þaö leyti sem John Smith út- skrifaðist úr háskóla var hann búinn aö steingleyma byltunni slæmu er hann hlaut á ísnum þennan janúar- dag árið 1953. Hann hefði raunar varla munað hana þegar hann útskrifaöist úr grunnskóla. Og foreldrar hans vissu aldrei af henni. Þeir voru á skautum á skika sem búið var að ryðja á Runaround-tjörn í Durham. Stærri drengirnir léku hokkí með gömlum límdum kjuðum og höfðu kartöflukörfur fyrir mörk. Litlu krakkarnir flæktust um á sama hátt og litlir krakkar hafa gert síðan sögur hófust - ökklar þeirra svignuðu inn og út á spaugilegan hátt, andardráttur þeirra myndaði lítil ský í frostinu. [ einu horninu á svellinu brunnu tvö gúmmí- dekk og sótuðu og nokkrir foreldrar sátu hjá og fylgdust með börnum sínum. Öld vélsleðans var enn víðs fjarri og vetrarskemmtun fólst enn í því að nota líkamann í stað bensínvélar. Johnny hafði gengið frá heimili sínu, rétt handan við Pownal-mörkin, með skautana hangandi á öxlinni. Sex ára að aldri var hann orðinn sæmilegur á skautum. Ekki ennþá nógu góöur til að vera með í hokkíleik stóru krakk- anna en þó miklu færari en flestir aðrir fyrstu- bekkingarnir sem alltaf þurftu að sveifla hand- leggjunum til að halda jafnvæginu eða duttu á rassinn í sífellu. Nú skautaði hann hægt umhverfis svellið sem rutt hafði verið af og óskaði þess að hann gæti skautað afturábak eins og Timmy Ben- edix, hlustaði á dynkina og brakið í ísnum und- ir snjóhlífinni lengra úti, hlustaði einnig á hróp- in í hokkíleikurunum, skröltið í vörubíl með við til pappírsgerðar á leið yfir brúna í átt að Gyps- um í Lisbon Falls, niðinn frá samtali fullorðna fólksins. Hann var afar ánægður með lifið þennan kalda og heiðríka vetrardag. Ekkert amaði að honum, hann hafði ekki áhyggjur af neinu, hann þráði ekkert... nema að geta skautað afturábak eins og Timmy Benedix. Hann skautaði framhjá eldinum og sá að tveir eða þrír hinna fullorðnu létu vínflösku ganga á milli. „Gemmér svona!" hrópaði hann til Chucks Spier sem var dúðaður í þykka skógarhöggs- mannaskyrtu og grænar kuldabuxur úr flann- eli. Chuck glotti. „Burt með þig, strákur. Ég heyri að mamma þín er að kalla á þig.“ Hlæjandi skautaði hinn sex ára gamli Johnny Smith áfram. Og vegarmegin við skautasvæðið sá hann Timmy Benedix sjálfan koma niður brekkuna með pabba sinn í humátt á eftir sér. „Tirnrny!" hrópaði hann. „Sjáðu þetta!“ Hann sneri sér við og hóf að skauta klaufa- lega afturábak. Án þess að gera sér grein fyrir því var hann aö skauta í áttina að hokkíleikn- um. „Hei, strákur!" hrópaði einhver. „Farðu frá!“ Johnny heyrði ekki til hans. Hann var að því! Hann skautaði afturábak! Hann hafði náð því - allt í einu. Maður átti að sveigja fótleggina á vissan hátt.. . Hann leit niður, heillaður, til að sjá hvernig fætur hans fóru að þessu. Hokkípökk stóru strákanna, gamall og risp- aður, þaut framhjá honum án þess að hann sæi hann. Einn stóru strákanna, ekki sérlega fær á skautum, elti hann næstum eins og hann væri að stinga sér blindandi með miklu írafári. Chuck Spier sá hvað verða vildi. Hann reis á fætur og hrópaði: „Gættu þín, Johnny!" John leit upp - og á næsta andartaki komu öll áttatíu kíló klunnans fljúgandi á John litla Smith á fleygiferð. Johnny tókst á loft með handleggina beint út frá sér. Tæpu andartaki síðar snerti höfuð hans ísinn og hann missti meðvitund. Missti meðvitund... svartur ís... misstí meðvitund... svartur ís... svart. Svart. Honum var sagt að hann hefði rotast. Það eina sem hann var viss um var þessi skrítna hugsun sem endurtók sig aftur og aftur og skyndilega leit hann upp á hring andlita - hrædda hokkíleikara, áhyggjufulla fullorðna, forvitna litla krakka. Tommy Benedix glotti. Chuck Spier hélt á honum. Svartur fs. Svart. „Hvað?“ spurði Chuck. „Er allt í lagi með þig, Johnny? Þú fékkst heljarmikinn skell.“ „Svart," sagði Johnny kokmæltur. „Svartur ís. Ekki starta honum með köplum, Chuck." Chuck leit í kringum sig, dálítið hræddur, svo aftur á Johnny. Hann snerti stóru kúluna sem var að rísa á enni drengsins. „Mér þykir fyrir þessu,“ sagði klaufalegi hokkíleikarinn. „Ég sá hann ekki einu sinni. Litlu krakkarnir eiga ekki að vera nálægt hokkíinu. Það eru reglurnar." Hann leit hikandi í kringum sig eftir stuðningi. „Johnny?" sagði Chuck. Honum leist ekki á augu Johnnys. Þau voru dökk, fjarræn og kuldaleg. „Er allt í lagi með þig?“ „Ekki starta honum aftur," sagði Johnny án þess aö vita hvað hann var að segja. Hann hugsaði aðeins um ís - svartan ís. „Spreng- ingin. Sýran.“ „Ættum við að fara með hann til læknis?" spurði Chuck Bill Gendron. „Hann veit ekkert hvað hann er að segja." „Láttu hannjafna sig aðeins," ráðlagði Bill. Þeir létu hann jafna sig aðeins og höfuð Johnnys skýrðist. „Það er allt í lagi með mig,“ tautaði hann. „Leyfið mér að standa upp.“ Timmy Benedix var enn glottandi, sá auli. Johnny ákvað að sýna Timmy í tvo heimana. Hann skyldi vera orðinn miklu færari en Timmy í vikulokin - hvort sem væri afturábak eða áfram. „Komdu hingað og sittu við eldinn," sagði Chuck. „Þetta var heljarmikill skellur." Johnny lét þá hjálpa sér yfir að eldinum. Lyktin af bráðnandi gúmmíi var sterk og þung svo honum varð svolítið óglatt. Hann var með höfuðverk. Forvitinn snerti hann kúluna fyrir ofan vinstra augað. Það var eins og hún skag- aði fram úr enni hans. „Manstu hver þú ert og svona?“ spurði Bill. „Auðvitað. Auðvitað man ég það. Það er allt í lagi með mig.“ „Hverjir eru foreldrar þínir?" „Herb og Vera. Herb og Vera Srnith." Bill og Chuck litu hvor á annan og ypptu öxlum. „Ég held aö það sé allt í lagi með hann,“ sagði Chuck og svo í þriðja sinn: „En þetta var heljarmikill skellur sem hann fékk. Ekkert smávegis." „Krakkar," sagði Bill og leit blíðlega á átta ára gömlu tvíburastúlkurnar sínar sem skaut- uðu hönd í hönd og svo aftur á Johnny. „Þetta hefði líklega drepið fullorðinn mann.“ „Ekki Pólverja," svaraði Chuck og þeir fóru báðir að skellihlæja. Ginflaskan gekk hringinn aftur. Frh. á bls. 36 7. TBL. 1991 VIKAN 35 ÞÝÐING: ÞORDIS BACHMANN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.