Vikan


Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 68

Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 68
TEXTI OG MYND: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON UÚF KVÖLDSTUND - á frönskum dögum í nœstelsta húsi Hafnarfjarðar Framrei&slufólk og hljó&færaleikarar Fjörunnar laða fram rétta andrúmsloftið er gestir Fjörunnar njóta franskrar matargerðarlistar. Franskir dagar tóku við á veitingastaðnum Fjör- unni í Hafnarfirði eftir vel heppnaða austurríska daga. Staðurinn er nú skreytt- ur á franskan máta og klæðn- aður starfsfólks sóttur aftur til daga Napóleons. Og að sjálf- sögðu er matargerðin eins frönsk og hún getur orðið og úrvals frönsk vín á boðstólum. Og tónlistin er vitaskuld frönsk líka. Matreiðslumaður Fjörunnar heitir Ásbjörn Pálsson og er hann nýkominn frá námi og starfi á virtum veitingastöðum í Frakklandi. Hann er í klúbbn- um Framanda og á einmitt uppskriftirnar á matarkortun- um, sem fylgja þessu tölublaði Vikunnar. Matreiðsla Ásbjörns er hreinasta afbragð og rann hver munnbiti Ijúflega niður með vinunum, sem sérstak- lega voru valin af Gissuri Krist- inssyni, sem um árabil hefur kynnt sér vínframleiðslu og vínmenningu. Það er fimmrétta matseðill, sem boðið er upp á í Fjörunni í apríl á fimmtudögum og sunnudögum og eru forréttirnir pönnukaka fyllt með rækjum og grænmeti og gufusoðin fyllt smálúðurúlla með sveppum, blaðlauk og kræklingasósu. Með þessu mælir Gissur með hvítvíninu Riesling Hugel, sem er bragðmikið og þurrt vín. Áður en kemur að kjötrétt- inum er boðið upp á sítrónu- kraumís með múskati. Aðal- rétturinn er léttsteikt villi- gæsarbringa með rifsberja- sósu og með því drukkið rauð- vínið Moulin-a-Vent Ch. d. Jacq, sem er bragðmikið, þurrt vín. Það besta frá Beaujou- laise í dag að áliti Gissurar. Eftirrétturinn er það sem Ás- björn kallar „fljótandi eyja með ávaxtasalati og ensku krerni". Á eftir þessum krásum er boð- ið upp á kaffi og konfekt og ekki finnst Gissuri saka að bragða á annaðhvort koníak- inu Frapin V.S.O.P. eða Gor- don Rouge kampavíninu. Tekið er á móti matargest- um Fjörunnar með hljóðfæra- leik hafnfirskra tónlistarmanna og hafnfirskar söngkonur koma jafnframt við sögu milli þess sem réttirnir eru bornir fram. Það er einstök stemmning ríkjandi í Fjörunni, sem er í næstelsta húsi Hafnarfjarðar. Það er líkt og horfið sé öld aft- ur í tímann og ekki spillir sú umgjörð sem sköpuð er í kringum frönsku dagana Ijúfri tilfinningu í húsinu þegar notið er gæða vína og matar. Það verður enginn svikinn af kvöldstund í Fjörunni. □ ÞAU FARA MEÐ FLUGLEIÐUM TIL ORLANDO egar dregið var úr innsendum úr- lausnum í ferðagetraun Vikunnar og Flugleiða komu upp nöfnin Nikólína Th. Snorradóttir, Vestur- götu 129, Akranesi, og Valur Krist- jánsson, Selsstöðum á Seyðisfirði. Hljóta þau hvort um sig fimm daga ferð fyrir tvo með Flug- leiðum til Orlando á Flórída þar sem þau munu lifa í vellystingum praktuglega. Gista þau í glæsilegum svítum á Hawthorn Suites Villa Resort, sem er steinsnar frá Disneyworld. Til umráða hafa þau þægilega bifreið frá bílaleigunni Payless meðan á dvöl- inni stendur. Jafnframt fá vinningshafarnir frían aðgang fyrir sig og sína boðsgesti að Disneyworld og Universal Studios. Lesendur Vikunnar eiga væntanlega eftir að sjá ferðasögu verðlaunahafanna þegar þar að kemur. Getraunaseðillinn var jafnframt skafmiði sem hefur fært fjölda lesenda AKAI ferðaút- varp eða nýjustu hljómplötu Whitney Houst- on, l’m Vour Baby Tonight. Nöfn vinningshafa allra verða birt í Vikunni síðar. Um leið og vinningshöfunum er óskað til hamingju vill Vikan þakka lesendum geysilega góða þátttöku. Þeim sem ekki höfðu heppnina með sér að þessu sinni viljum við benda á að fylgjast vel með Vikunni í vor þegar nýrri get- raun verður hleypt af stokkunum. □ UÖSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON 66 VIKAN 7. TBL. 1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.