Vikan - 23.07.1992, Page 13
Leonard sér til þess aö gæöa
íslenska hráefnið hæfilegum
áhrifum úr franska eldhúsinu.
HUGMYNDAAUÐGI
Um þessar mundir eru þeir
félagarnir aö setja saman nýj-
an og spennandi matseöil þar
sem bæöi fiskurinn og villi-
bráöin fá aö njóta sín og ber
síðan matreiðslan keim af
samstarfi þeirra Ásbjörns og
Leonards.
Til aö gefa lesendum Vik-
unnar svolitla hugmynd um
þaö sem Fjörukráin hefur upp
á aö bjóöa mæla þeir með
eftirfarandi fimm rétta matseðli
sem hér eru birtar myndir af.
Þar er íslenskt hráefni í há-
vegum haft - fiskur og
svartfugl. Framreiösla og elda-
mennska bera vott uni hug-
myndaauðgi matargeröar-
mannanna og er hvort tveggja
tímanna tákn.
Matseðil Fjörukrárinnar
prýða fiskréttir á borð við fiski-
frauðtvennu með þremur
bragötegundum, sjávarrétta-
fantasíu í pönnukökukramarhúsi
og léttmarineraða rauðsprettu,
umvaföa hvítkáli með humar-
sósu, auk þeirra rétta sem
sýndir eru á meðfylgjandi
myndum.
Fiskréttirnir eru á verði frá
1.800 kr. og unnt er að fá til
dæmis þriggja rétta máltíð
með fisk sem aðalrétt fyrir
2.220 krónur. Kjötréttirnir
kosta frá 1.850 kr. og þriggja
rétta máltíð með kjöt í aðalrétt
kostar frá 2.950 krónum.
Jóhannes Viðar veitinga-
maður býður upp á svokallað
„hvunndagstilboð" að kvöldi
mánudags, þriðjudags og mið-
vikudags og í hádeginu á
fimmtudögum, föstudögum og
laugardögum. í tilboðinu er
fólgin þriggja rétta máltíð á
aðeins 990 krónur.
SVARTFUGLINN GÓDI
Þar eð Fjörukráin leggur mikla
áherslu á villibráð er ekki úr
vegi að birta hér uppskrift
þeirra Ásbjörns og Leonards
að léttristuðum svartfugls-
bringum með rauðvínsperum
og týtuberja-/gráðaostasósu -
fyrir fjóra.
Hráefni:
50 g smjör
1/4 dl matarolía
1/4 laukur (saxaður)
2 einiber
1 Vi dl portvín
4 dl rauðvín
3 dl kjötsoð
50-100 g gráðaostur eftir
smekk
8-12 svartfuglsbringur,
mælt er með 180 g á mann.
Aðferð:
Svartfuglsbringurnar eru úr-
beinaðar og ristaðar í matar-
olíu á vel heitri pönnu. Krydd-
aðar með salti og pipar og síð-
an teknar af pönnunni. Eini-
berin og laukurinn eru látin
krauma á pönnunni og helm-
ingnum af portvíninu og 2 dl af
rauðvininu er síðan hellt á
pönnuna. Þetta er látið sjóða
niður um helming en þá er
kjötsoðinu bætt út í og látið
sjóða vel. Þá er því sem eftir
er af portvíninu bætt út í sós-
una. Hún er síðan siuð og að
síðustu er gráðaostinum og
smjörinu blandað vel saman
og kryddað með salti og pipar.
Perurnar eru afhýddar og
soðnar í 2 dl af rauðvíninu og
2 dl af vatni ásamt 50 g af sykri
í um það bil 5 mínútur. Perurn-
ar eru því næst skornar í
tvennt og kjarninn fjarlægður.
Ef fuglinn er of mikið steiktur
er hætta á að lýsisbragð (sem
er stundum af svartfuglinum)
komi fram. Þess vegna mælir
Ásbjörn Pálsson, matreiðslu-
meistari á Fjörukránni, með
að fuglinn sé léttsteiktur því að
þannig náist fram besta bragð-
iö af kjötinu.
SYNGJANDI GENGIL-
BEINUR
Þjónustan á Fjörukránni er
elskuleg og óneitanlega svolít-
ið sérstök. Til þess að gera
matargestum kvöldið eftir-
minnilegra hefur Jóhannes
Viðar veitingamaður fengið
söngkonurnar Ingveldi G. Ól-
afsdóttur og Sólveigu Birgis-
dóttur til liðs við sig. Þær starfa
um helgar sem gengilbeinur á
Fjörukránni en á milli rétta eða
þegar gestirnir hafa nýlokið
málsverðinum mega þeir eiga
von á því að þær taki lagið við
píanóundirleik Jóns Möllers.
Þá kvöldstund sem Vikan var
á staðnum söng Ingveldur
nokkur laga Sigfúsar Halldórs-
sonar og gerði hún það með
miklum ágætum. Þetta atriði
kom skemmtilega á óvart og
batt endahnútinn á vel heppn-
aða heimsókn.
▲ Um
helgar elga
gengilbein-
urnar til að
taka lagið
fyrir mat-
argesti.
15. TBL. 1992 VIKAN 1 3