Vikan


Vikan - 26.11.1992, Page 11

Vikan - 26.11.1992, Page 11
Ert þú Bella?! Svona grönn og smágerð. Bella er stórgerð, með þykkar augnabrúnir og hún er líka mun gildari um miðjuna. Svo er hún miklu stærri en þú! Elva Ósk Ólafsdóttir heyrir ekki þessar sgurningar sem vakna í kolli blaðamanns þeg- ar hann sér hana vegna þess að hann er bara að hugsa þær. Enda svo sem ekki gott að kynna sig með því að leita að breiðum barmi og þrýstn- um mjöðmum á viðmælanda sínum svona til að þyrja með, að minnsta kosti ekki svo mik- ið beri á. Elva Ósk leikur Bellu í leik- ritinu Heima hjá ömmu sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Bella þessi er misþroska sem kallað er en þeim sem ekki hafa mikið vit á þroskafræð- um þykir hún einhvern veginn þroskaheft. En allt þetta þroskatal er hjóm eitt hjá túlk- un Elvu á hlutverkinu því hún þarf þarna að þræða refilstig- una milli þess að vantúlka og að fara yfir strikið, að gera grín. Henni tekst það frábær- lega í leikritinu og það vekur uþþ ýmsar sþurningar. Til dæmis hvernig hún undirbjó sig, til dæmis hvaða fyrir- myndir hún hafði og til dæmis hvort hún finni fyrir opnari á- horfendum í kjölfar stórra sigra þroskaheftra á íþrótta- völlum og þá sér í lagi sund- laugum. Og síðan náttúrlega hver hún er, hún Elva Ósk. Hún situr með kaffibollann eins og límdan við hendurnar á sér, haustið búið að kæla þær niður fyrir þægileikamörk- in og er svo gerólík því sem hægt var að hugsa sér. Það er undarlegt hvernig leikarar eru stundum, líkt og útvarps- menn, einhverjar persónur sem maður gerir sér í hugar- lund hvernig eru i raun og veru, líta út og láta. Nema hvað maður sér leikarana á sviðinu. Siðan þegar maður hittir þá eru þeir allt öðruvísi. Þannig er Elva. Hún horfir fast á blaðamanninn án þess að segja orð og gefur þar með til kynna að áhrifin af kaffinu séu eins og vænst var, hún er til- búin. GERVIBRJÓST OG PÚDAR Hvað var það fyrsta sem henni kom í hug þegar henni var boðið þetta hlutverk og hún gerði sér grein fyrir því? „Það var alltaf talað um að stúlkan, sem ég ætti að leika, væri svolítið á eftir og ég tók það þannig að hún væri eitt- hvað þroskaheft. Síðan kom á daginn að það er alls ekki þannig. Hún er misþroska en uþþhaflega gerði ég engan greinarmun á því hvað er að vera misþroska eða þroska- heftur. Þannig að ég fór að kafa ofan í það og lesa mér til um þetta, las meðal annars bók og greinar um misþroska. Og ég hugsaði að nú gæti ég gert eins og hollívúddstjörn- urnar, að fara út á meðal mis- þroska fólks og kynna mér hvernig það er. Svo vildi þannig til að aðstoðarleikstjór- inn okkar, Soffía Jakobsdóttir, á misþroska dóttur, Sollu, mjög fallega og greinda stúlku sem sagði mér það til dæmis að misþroska börn geta illa hoþþað, gripið bolta og svo framvegis. Misþroski sést hins vegar ekki endilega á fólki og ég var búin að tala við Sollu áður en ég frétti að hún væri misþroska. Þá gerði ég mér enga grein fyrir því,“ segir Elva og bætir síðan við að stúlkan geri sér góða grein fyrir annmörkum sfnum sem lýsa sér meðal annars þannig að hún rugli orðum. Hún biðji aðra um að draga frá glugga þegar hún ætli að biðja þess að dregið verði fyrir. „Maður þarf að pæla í svo mörgu, finna hreyfingar og ég geri Bellu svolítið hokna, próf- aði að setja púða utan á mig til að sýnast dálítið klunnaleg og fékk gervisílikonbrjóst, al- veg risastór sem toga axlirnar niður,“ segir Elva og þar fær blaðamaður kærkomið tæki- færi til útrásar fyrir fyrstu hug- renningar sínar þegar Elva kom til fundarins. „Já, það er svo gaman að geta gert þetta. Enda kom helmingurinn af þersónunni þegar ég fékk gervið. Og Bella vill líta vel út, hún málar sig og lifir svolítið í stjörnuveröldinni.11 ■ „Ég nota til dæmis dálítið af barnslegri einlægni ákveðins fiðluleikara. Ég nota líka taugaveiklaðar handahreyfingar frá konu úti í bæ og svona má lengi telja." ■ „Þegar hún var vakin upp út af eldgosinu þá sneri hún sér yfir á hina hliðina og umlaði að skólastjórinn myndi aldrei sleppa prófinu þó það yrði eldgos." ■ Þetta kom að vonum mjög illa við marga sem áttu mikið undir (dví að þessi mynd yrði gerð, þetta var stórt verkefni og það er undarleg lykt af málinu. 24. TBL. 1992 VIKAN 1 1 TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON/ UÓSM.: BRAGIÞ. JÓSEFSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.