Vikan


Vikan - 26.11.1992, Side 32

Vikan - 26.11.1992, Side 32
Þetta áriö fóru tólf skiptinemar víós vegar aó úr heiminum til Hollands á vegum ASSE. Fyrstu vikunni eyddu þau saman og varó vel til vina. Þegar fram lióu stundir bættust Hollendingar í vinahóp Stefaníu og hún kynntist fjölmörgum, aðallega í gegnum íþróttaiókun. HAFNARSTRÆTI 15 REYKJAVÍK ■ SÍMI 13340 veturinn var einn strákurinn úr bekknum látinn sitja við hlið- ina á mér og túlka. Þetta var frábær strákur og ég hlakkaði alltaf til að fara í sögu. Ég tók aðeins tvö próf yfir veturinn og gekk ágætlega. Skólinn var þó frekar strang- ur. Það var skylda að mæta í alla tíma og refsað fyrir að mæta of seint. Ef einhver veiktist þurfti að koma með þréf í skólann frá foreldrum upp á að viðkomandi væri að segja satt. Það er því engin furða að hollenskir krakkar séu mjög háðir foreldrum sín- um langt fram eftir aldri.“ - Hvernig var að búa hjá fjölskyldu sem þú þekktir ekk- ert og hafði kannski aðrar heimilisvenjur en þær sem þú áttir að venjast? „Það gekk í rauninni alveg ótrúlega vel fyrir mig að að- lagast fjölskyldunni sem ég bjó hjá. Ég viðurkenni þó að það var örlítið vandræðalegt til að byrja með en það lagað- Eitt'sinn hjólaSi ég aftan ó bíl ajveg eins og asni. Bílstjótinn brjólaÖist óg ég þóttist efcfert skilja þó aö f raun r . skildi ég hvérteinasta oró. . Þetta var (dqS allra neyóarlegasta ^m.kom fyrlr jnig enda hjófór maóur ekki aftan ó bíla, það ér fórónlegt. ist mjög fljótt. Ég bjó hjá frá- skilinni konu með tvö börn, ellefu og fjórtán ára, í 150.000 manna borg sem heitir Til- burg. Hollendingar eru mjög mikið fjölskyldufólk og sjald- gæft að hjón skilji. í ofanálag var konan að læra pípulagnir sem er ekki algengt kven- mannsstarf, allra síst í Hol- landi. Fjölskyldan tók mér vel og ég mátti gera allt sem mig langaði og var innan eðlilegra marka. Að vísu þurfti ég alltaf að vera komin heim klukkan eitt á næturnar. Foreldrar leyfa krökkunum sínum al- mennt ekki að vera að flækj- ast úti langt fram á nótt og þar af leiðandi eru aldurstakmörk á skemmtistaði óþörf. Hollenskir krakkar drekka ekki mikið áfengi en eiturlyf flæða þess í stað um allt. Það er mjög algengt að sjá krakka reykja maríjúana og þau gera það yfirleitt í stað þess að drekka. Það er mjög nauðsynlegt að skiptinemar aðlagist auð- veldlega fjölskyldunni sem þeir búa hjá og þeim venjum sem ríkja á heimilinu. Mjög margir skiptinemar þurfa að skipta um fjölskyldu og er það oft vegna þess að þeir ætlast til að fjölskyldan aðlagist þeim en þeir ekki henni.“ - Héldu skiptinemarnir mik- ið saman eða eignaðist þú líka marga hollenska vini? „Við skiptinemarnir urðum öll góðir vinir og í skólanum mínum voru fimm aðrir skiptinemar. Ég eignaðist samt líka góða hollenska vini. Hollendingar eru opnir og það er auðvelt að kynnast þeim. Ég kynntist mörgum krökkum í gegnum íþróttir en ég æfði þæði frjálsar íþróttir og blak á meðan ég var í Hollandi. Frjálsíþróttaþjálfarinn minn neitaði að tala við mig ensku þannig að ég bætti hollensk- una mína heilmikið með þess- ari íþróttaiðkun. Annars var oft freistandi að tala ensku, sérstaklega ef mig iangaði að segja frá mörgu. Það var ekkert félagslíf í skólanum sem ég var í þannig að ekki kynntist ég krökkum í gegnum það. Við fórum þó í nokkur skólaferðalög sem voru mjög skemmtileg. Það voru aðallega menningarferðir til annarra borga til að skoða listasöfn og þess háttar. Einn daginn fórum við til Parísar og það var alveg frábær upplifun að koma þangað. Ég ferðaðist heilmikið um Holland enda er landið mjög lítið og auðvelt að komast milli staða. Fjölskyldan, sem ég bjó hjá, átti ekki bíl og það er alls ekki óalgengt meðal Hol- lendinga. Þess vegna fór ég því sem næst allra minna ferða á hjóli. Eitt sinn hjólaði ég aftan á bíl alveg eins og asni. Bílstjórinn brjálaðist og ég þóttist ekkert skilja þó að í raun skildi ég hvert einasta orð. Þetta var það allra neyð- arlegasta sem kom fyrir mig enda hjólar maður ekki aftan á bíla, það er fáránlegt." - Komu aldrei stundir þegar þig langaði til að segja skilið við þetta allt og fara heim til íslands? „Ég man ekki eftir einum einasta degi þar sem ég sat og lét mér leiðast og var með heimþrá. Ég vissi að ég færi ekkert heim og því var til- gangslaust að velta sér upp úr því f stað þess að gera gott úr hlutunum og skemmta sér. Það er svo yndislegt að vera í Hollandi. Ég gæti vel hugsað mér að fara þangað aftur þeg- ar ég hef lokið stúdentsprófi og fá mér vinnu í nokkra mán- uði. Það eru allir vinir mínir orðnir hundleiðir á að hlusta á mig dásama Holland. Flestir skiptinemar eru hæstánægðir þegar þeir koma heim og gera lítið annað en að dásama landið sem þeir voru í. Að fara út sem skiptinemi gerir fólki gott á allan hátt. Maður lærir að meta fjölskyld- una sína betur og þroskast gífurlega mikið á allan hátt. Fólk verður líka miklu sjálfsör- uggara þegar það neyðist til að standa á eigin fótum. Að vera skiptinemi í eitt ár er ó- metanlega skemmtilegt og góð reynsla." □ 32 VIKAN 24. TBL. 1992
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.