Vikan - 26.11.1992, Qupperneq 33
Sumir dagar eru eins og
fimm stjörnu koníak,
eðalir eins og besta vín
og er hrein unun að lifa þá og
einnig geymast þeir vel f
minningunni. Stundum eru
góðu dagarnir afleiöing af ein-
hverju, hlakkar maður til
þeirra og undirbýr og viti
AÐEINS
OF LÍTIÐ ER
EINMITT
MÁTULEGT
menn, þeir verða unaðslegir
eins og mann langar að þeir
^ verði. Aðrir dagar byrja ofur
5= venjulega en geta svo breyst
í fimm stjörnu daga og margt
óvænt kemur upp á yfirborðið.
Næmi mitt fyrir þess konar
'§ dögum og smekkur minn fyrir
:g þeim hefur aukist og óljós
minning um daga sem
“ brugðust er aðeins óljós
minning um daga sem brugð-
z ust. Hvað hefur breyst? Getur
§ verið að þaö sé tilviljun hve
kkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkkk
ÆVINTÝRI VERULEIKANS
TTTTTTTTTTTTT
oft og hvað gaman það er hjá
okkur eða ráðum við þar ein-
hverju um?
Einu sinni vorum viö tvær
vinkonur á veitingahúsi. Feng-
um við okkur yndislegan eftir-
rétt en það eina var, að
skammturinn var aðeins of
lítill. Þá varð henni að orði aö
aðeins of lítið væri einmitt
mátulegt. Hlógum við að
þessu og notuðum þetta
orðatiltæki við mörg tækifæri.
Ég átti það til aö nota þetta
oft, bætti gjarnan við að þetta
ætti ef til vill ekki við í alveg
öllum tilvikum. Meinti ekkert
sérstakt en var stundum mis-
skilin, eins og gengur.
Hvað er það sem gefur
lífinu þennan unaðsblæ sem
við finnum mörg fyrir? Er það
óáreiðanleiki tilverunnar, ó-
bærilegur léttleiki hennar? Er
listin að ofgera aldrei neinu,
metta sig aldrei alveg og
halda þránni vakandi? Er það
að treysta forsjóninni til að
meta aðstæður og láta rétt-
lætið ná fram að ganga þótt
ekki sé það alltaf auðséð?
TTTTTTTTTTTTT
Hvað meö allar tilfinning-
arnar? Eigum við að leyfa
þeim að birtast eða eigum við
að leyna þeim?
Segjum eins og Ulla
vinkona mín tjáir sig um listir.
Ef þú getur látið þaö vera að
vinna listaverk, láttu það vera.
Ætli þetta eigi líka við um
að elska eða gefa, Svei mér
þá, núna er ég alveg á báðum
áttum. Amma mín sagði við
dætur sínar að ef þær hefðu
ekkert almennilegt að segja,
skyldu þær þegja. Ég vona að
hún skammist sín ekki fyrir
mig þar sem hún er núna, í
æðri heimum.
Nei, eiginlega á þetta ekki
við þegar við gefum af okkur í
vináttu og ást. Þá er nú best
að vera svolítið rausnarle-
gur, sagt er að maður eigi
ekkert nema það sem
maður gefur. í þeim tilvikum
er aðeins of lítið ekki nóg,
en úr því má alltaf bæta,
svo lengi sem lífið bærist í
brjósti okkar.
HAUSTUÓÐ
Mig iangar aö ganga
meö þér eftir ströndinni
segja þér hvaö mér finnst
um mann í grænu vesti.
Reyna svo aö þegja
og leyfa tunglinu
aö komast aö
og trylla okkur
meö birtu sinni og töfrum.
Svo ætla ég aö syngja
Elvis Presley lag fyrir þig
í karaoki keppninni
og sjá brosiö laumast
I augun á þér.
ARINNAR ER:
COMPETENCE
Eftir 30 þarfnast húð þín
meira en fagurra fyrirheita;
ORKU + NÆRINGAR
LANCASTER COMPETENCE
FORTIFYING COMPLEX
^ COMPETENCE
^ FORTIFYING
COMPLEX
FOR THE FACE
COMPtEXE FORTIFIANT
POUR LE VISAGE