Vikan - 26.11.1992, Page 77
inum og hann flytur beint inn
til konunnar sem er ekki í
sambúö. Oft endist slíkt sam-
band í tiltölulega skamman
tíma, einkum ef þau takast
ekki á viö sjálf sig. Samband-
iö er um of byggt á draumór-
um og hversdagslífið gerir
þaö óspennandi og ófullnægj-
andi.
Ef ekki kemur til skilnaöar
en framhjáhaldssamband
myndast viöhelst ákveöin
spenna í sambandinu en
smám saman veröur þaö
einnig þrúgandi fyrir báöa að-
ila. Oft vilja þá báöir aðilar
innst inni slíta því en hafa gert
sig háöa þessu sambandi
sem aðeins byggist á ást og
umhyggju sem veitt er og
þegin í eins konar ábyrgöar-
lausu tómarúmi, án allra
kvaöa og átaka hversdagslífs-
ins. Auk þess eiga þau sam-
eiginlegt leyndarmál, sem
sameinar þau og þau geta
ekki rætt viö neinn annan,
þegar sektarkenndin og van-
líðanin yfir sambandinu mynd-
ar þörf fyrir aö tala viö ein-
hvern um það. Oft er þá svo
komið, eins og þú lýsir, að
konan hefur tapað vinum, lífs-
munstriö snýst í kringum
þessa leynifundi og óttinn viö
einmanaleikann og tómleik-
ann í kjölfar sambandsslita
viðheldur sambandinu. Sam-
bandiö er þá orðið eins konar
haltu mér, slepptu mér sam-
band.
Undir slíkum kringumstæö-
um myndast jafnvel ómeövit-
uö ósk um aö upp um allt
komist, svo ytri kringumstæð-
ur eöa aðrir einstaklingar
neyöi þetta leynipar til aö
takast á viö sambandið og
gera það á einhvern hátt upp,
annaöhvort aö halda eða
sleppa.
STAÐA KONUNNAR
I SLÍKU SAMBANDI
Staöa konunnar í framhjá-
haldssambandi er vitanlega í
flestum tilvikum undirgefin
staöa. Hún getur tæplega gert
nokkrar kröfur en er upp á
tíma og möguleika mannsins
komin meö aö hitta hann. Hún
verður aö vera til taks þegar
hann hefur möguleika á aö
hitta hana. Hún er auk þess
ein þegar hún þarf mest á
sambandi aö halda, eins og á
tyllidögum, um jól, páska, á af-
mælisdögum, í ferðalögum og
viö aðrar aðstæöur sem telja
verður fjölskylduaðstæður eöa
fjölskylduatburöi. Hún „situr (
festum" á meöan maðurinn lif-
ir því lífi sem hann kýs að lifa.
Hann á sitt fjölskyldulíf og
hann þarf ekki aö bíða. Hann
er gerandi ( málinu. Ef hann
ákveður að fara í ferðalag
með fjölskyldu sinni fer hann í
sitt ferðalag og „því miður get-
um viö ekki hist næstu vikurn-
ar". Ef hana langar í ferðalag
athugar hún fyrst hvernig
stendur á hjá manninum og ef
einhver möguleiki er á því aö
þau geti átt stundir saman á
sama tíma eru allar líkur á aö
hún sleppi feröalaginu. Hún
þarf aö laga sig að þörfum og
möguleikum mannsins.
HVAÐ ÞÚ GETUR
GERT í MÁUNU
Það er svo sem auðvelt fyrir
mig aö ráðleggja þér eitthvaö
en alltaf endar þaö samt á því
að þaö er þitt aö gera hlutina.
Ég hef hér að framan dregiö
upp mynd af því sem reynsla
mín segir mér aö geti verið aö
gerast hjá þér en jafnframt
mynd sem ég ímynda mér að
þú hafir ef til vill ekki alveg
verið tilbúin aö horfast í augu
viö.
Þú þarft aö gera upp viö þig
hvers konar lífi þú vilt lifa og
fara aö stefna aö því. Þú þarft
aö finna út hvaö á aö koma í
staðinn fyrir þetta samband.
Þú þarft að gera upp viö þig
hvers konar mann þú vilt eiga
og hvort þetta er maðurinn
eða ekki. Ef þú vilt eiga þenn-
an mann verður þú að gera
kröfu um aö hann gangi frá
sínum málum án allrar undan-
látssemi og þaö strax. Ef þú
vilt ekki eiga þennan mann átt
þú aö slíta sambandinu og
fara aö lifa þínu lífi en þaö
mun kosta átök þar sem þú
veröur aö finna út hvers konar
lífi þú vilt lifa. Þú verður því að
gera þig reiðubúna í þau átök.
Þú verður jafnframt aö gefa
sjálfri þér kost á aö kynnast
þeim manni sem þú vilt eiga.
Þaö gerir þú ekki á meöan þú
ert í þessu sambandi.
Þú verður aö endurnýja
samband þitt við vinina þína
gömlu og ekki kinoka þér viö
aö leita til þeirra þó þér finnist
það erfitt eöa uppáþrengjandi.
Þeir voru vinir þínir og sakna
þín aö öllum líkindum á sama
hátt og þú saknar þeirra.
Horfstu í augu viö sjálfa þig
og hættu að flýja átökin sem
það kostar aö lifa lífinu. Helltu
þér út í aö vera til fyrir sjálfa
þig og geföu þér tækifæri til
aö láta þína eigin löngun
stjórna ferðinni.
Haföu það sem best í bar-
áttunni og vertu góö viö sjálfa
Þ'g-
Sigtryggur.
JÓLASMJÖR
í JÓLAUMBÚÐUM A JÓLAVERÐI
í JÓLAKÖKURNAR, JÓLAMATINN OG
24. TBL. 1992 VIKAN 77
AUK / SÍA k9d22-690-2