Vikan - 26.11.1992, Side 96
JÓNA RÚNA KVARAN
komiö þessum hryllingi af stað, þó þú sért á
ófyrirleitinn máta neyddur til að taka þátt í
honum. Hafðu því engar áhyggjur af mér þó
ég hafi lesið það sem þú skrifaðir mér
nokkrum sinnum.
Ég veit aö þú ert ekki eini strákur landsins í
einmitt þessum vanda og er þess vegna viss
um að þaö er heppilegt aö við skoðum að-
stæður þínar ef það mætti verða til að auð-
velda þér eitthvað, ásamt þeim öðrum strák-
um sem eru í nákvæmlega sömu þrenging-
um. Ég nota áfram innsæi mitt, hyggjuvit og
reynsluþekkingu til leiðsagnarinnar og mögu-
legra ábendinga. Mitt hlutverk er ekki að
leysa neitt, fremur koma með hugmyndir og
veita handleiðslu sem gæti hugsanlega orðið
vísir að því að hefðbundnar og bókfærðar
leiðir vektu áhuga þinn. í þínu máli veröa
nefnilega hefðbundnar aðferðir sérfræðing-
anna að koma þér til hjálpar ef þú átt að ná
aö upþræta vanda þinn.
STÍGAMÓT MIKILVÆG MIÐSTÖÐ
FÓRNARLAMBA SIFJASPELLA
Ég hef áður fjallað um sifjaspell og þá vegna
þess sem er gagnstætt því sem er að gerast í
þínu tilviki. Þar var það faðir sem misnotaði,
aö mig minnir, öll börnin sín, alla vega stúlk-
una sem skrifaði mér. Við eigum sem betur
fer í samfélaginu í dag kröftug samtök sem
berjast gegn kynferöislegri misnotkun af
hvaða tagi sem er og heita þau samtök
„Stígamót“. Vissulega hefur flest umfjöllun um
afbrot af þessu tagi snúist meira eða minna
um misnotkun á stúlkum eða konum en mun
minna um misnotkun á drengjum eöa körlum.
Vitanlega verð ég að viðurkenna að til mín
hafa borist þónokkur bréf álík þínu og það
skelfir mann alltaf meir og meir að annar eins
óþrifnaður, andlegur sem likamlegur, skuli
viðgangast í samfélagi sem á að teljast sið-
fágað eins og okkar ágæta þjóðfélag á að telj-
ast. Svona er nú málum samt komið allt of
víða.
Til að byrja með og áöur en ég legg út af
bréfi þínu vil ég skora á þig að snúa þér um-
svifalaust til þessara samtaka og síminn hjá
þeim er 62 68 68. Þessi þrautaganga þín virö-
ist mér þess eðlis að full ástæða sé fyrir þig til
að fá hjálp þeirra sem til álíka vanda þekkja til
þess bara hreinlega aö þú missir ekki móöinn
endanlega eins og þú ert orðinn niöurlægður
og brotinn af þessari hrottalegu meðferö
mömmu þinnar á þér varnarlausum.
HÖLDUM VÖRÐ UM
MANNRÉTTINDI BARNA
Eins veistu að þar þarft þú ekki að óttast neitt
sem heitir aö þér verði hafnað eöa vísað frá
mögulegri hjálp, þó svo að þú sért kannski
einn af fáum af karlkyninu sem hafa, sem bet-
ur fer, vit á að hrópa á hjálp, meðal annars
með því að skrifa mér núna. Eins vil ég jafn-
framt skora á alla foreldra, sem hafa minnsta
grun um að börnin þeirra hafi verið misnotuð,
að hafa strax samband við starfsfólk Stíga-
móta. Það má líka benda öðrum sem hafa
grun um aö álíka viöurstyggð sé í gangi ein-
hvers staðar á að koma skilaboðum til réttra
aðila svo sem þessara samtaka eða hrein-
lega geta þessa gruns við lögregluyfirvöld.
Við verðum að halda vörð um mannréttindi lít-
ilmagnans í þessu samfélagi hvað sem raular
eða tautar. Það er því miður sennilegt, þó
ekki sé það sannanlegt, að aðeins toppur ís-
jakans í þessum skelfilegu málum sé kominn
upp á yfirborðið.
BURT MEÐ HEIMILISBÖÐLANA
Það er jafnframt skylda okkar allra að halda
vörð um mannréttindi barna þessa lands með
þeim hætti - ef við höfum einhverja vitneskju
um að verið sé að brjóta á þeim kynferðislega
heima eða heiman - að koma upp um slíkt at-
hæfi þeirra afbrotamanna eða kvenna sem
leyfa sér að beita sér fyrir þannig valdníöslu á
saklausum börnum. Öll umfjöllun, sem hefur í
för með sér möguleika á að gera gerendur
þessara sjúku athafna óörugga með sig, er af
hinu góða. Það er full ástæða til að gera
„heimilisböðlum" þessa lands ókleift aö beita
áhrifum sínum sem eru í formi svika við börn
þeirra. í stað þess að vernda börnin sín svíkja
þeir þau og eyðileggja lífsmöguleika Joeirra.
Þess vegna segi ég og meina það: „í burtu
með heimilisböðlana." Þeir ástunda ófyrirgef-
anleg grimmdarverk á lítilmagnanum.
Á meðan þessir kynferðislegu harðstjórar
vaða áfram í skjóli leyndar og ótta fórnar-
lamba sinna við refsingar frá þeirra hendi segi
þeir frá brotinu er hætt við að endalaust bæt-
ist við börn í hóp fórnarlambanna sem ekki
geta varið sjálf sig fyrir ofbeldi sem þessu.
Það tjón sem fórnarlömbin verða fyrir er gjör-
samlega óbætanlegt eftir því sem komið hefur
í Ijós. Kannski er það ekkert skrýtið þar sem
ofbeldisverkin eru oftar en ekki í formi sifja-
spella sem þeirra nánustu eiga allan þátt í að
gera möguleg. Þetta er nokkuð sem er með
algjörum ólíkindum og á allan hátt ófyrirgefan-
legt, auk þess að vera afar grimmdarlegt.
UPPELDI OG SIÐFERÐI
í foreldrahúsum skyldi maður ætla að börn og
unglingar ættu að fá að vera í friði fyrir ofbeldi
því sem sifjaspell eru. Það er alveg ótrúlega
aflagað siðferðislega að misnota barnið sitt
með þessum hrottalega hætti, fyrir utan hvað
það er gróft og óbætanlegt trúnaðarbrot gagn-
vart barninu sínu. Hvort um er að ræða hreina
geðvillu eða fullkomna siðblindu hjá gerand-
anum, í þessu tilviki mömmu þinni, verða sér-
fræðingar í geölæknisfræðum að meta en
ekki ég. Alla vega er þarna á ferðinni gróft og
ómannúðlegt brot á mannréttindum þínum, á-
samt fullkomnum trúnaðarbresti milli þin og
hennar.
Þegar um sifjaspell er að ræða er trúlega
ekki um kynferðislega þörf að ræða heldur
kannski og ekki síst ófyrirleitna valdafíkn þess
sem nýtur þess að beygja þann sem er sýni-
lega „minni máttar11 undir sinn vilja með þessu
sjúka og ósæmilega atferli. Æska barna okkar
á ekki að liggja í ógn þeirri sem svona athæfi
fylgir. Það ætti að vera sjálfsagður og óum-
beðinn réttur hvers barns að fá að njóta sín í
uppvextinum á friðsaman og tryggan máta.
Fólk sem vogar sér að fótumtroða eðlilegt
tilfinningasamband milli fullorðinna og barna
meö þessu fráleita athæfi ætti alls ekki að
eiga neitt færi á að hafa nokkurt barn í sinni
umsjón. Börnum á ekki að stafa hætta af for-
eldrum sínum, hvorki heima eöa heiman, þó
staðreyndin sé því miður oft óneitanlega allt
önnur eins og í þínu tilviki.
BRENNIVÍNSDRYKKJA
OG BRJÁLSEMI
Þú talar um að hún framkvæmi þessar viöur-
styggilegu athafnir einungis undir áhrifum á-
fengis og þar með ertu jafnvel að telja sjálfum
þér trú um að henni sé bara ekki sjálfrátt eða
aö hún viti ekki hvað hún er að gera þér. Sann-
leikurinn er auðvitað sá, þó sárt sé að sættast á
hann, að hún veit hvað hún er að gera því ef
hún gerir sér grein fyrir því undir áhrifum áfeng-
is að hún er kynvera þá veit hún jafnframt
hvernig þeim hvötum sem því fylgja er fullnægt.
Hún veit jafnframt að það ert þú sem hún
neyðir til að taka þátt í að svala fýsnum henn-
ar og sjúkum tilhneigingum. Það er ekki hægt
aö fría hana ábyrgð á gjörðum sínum vegna
þess að hún er drukkin. Þá værum við að rétt-
læta hegðun hennar einungis vegna þess að
hún með drykkjunni veikir eitt augnablik vilja
sinn og dómgreind. Vissulega er erfitt að
horfast í augu við þá staðreynd - eins og þú
verður að gera - að í móður þinni býr í
augnablikinu versti óvinur þinn. í stað þess að
vernda þig og upþörva brýtur hún þig niður og
svíkur þig ómannúðlega með því að gera til
þín kynferðislegar kröfur sem eru með öllu ó-
réttmætar og óréttlætanlegar.
SIFJASPELL ERU HELVÍTI
FÓRNARLAMBSINS
Það sem er kannski hroðalegast í þessu átak-
anlega mynstri sifjaspellanna er aö börn, sem
þannig útreið fá hjá foreldrum sinum, eiga
sér, held ég, varla undankomu auðið nema
með hjálp þeirra sem standa utan við vand-
ann. Þess vegna verður fórnarlambið sjálft
oftast aö leita sér hjálpar þar sem hægt er og
vinna með stuðningi sérfróðra á vandanum, á
einhvern takmarkaðan hátt þó. Vegna þess
að þú spyrð hvort geti verið eðlilegt að hún
gerir þér þetta þá segi ég: Nei, þetta er af-
brigðileg hegðun sem er með öllu óskiljanleg
þeim sem standa utan við þannig valdníðslu
og atferli það sem þessi sérstaka tegund of-
beldis fellur óneitanlega undir. Engin mann-
eskja sem elskar barnið sitt býður því upp á
það helvíti sem sifjaspell alltaf eru fyrir þann
sem fyrir þeim verður.
AFBRIGÐILEGUR EÐA HOMMI
Vegna ótta þíns við það hvort þú verður af-
brigðilegur vegna þess að mamma þín hefur
beitt þig kynferðislegu ofbeldi er eðlilegt að
Frh. á bls. 98
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
Lausn á síðustu krossgátu
4- 4- 4- + + + + H + 3 T + E + K + + s
+ + + + + + H £ R N A + F Æ R + R E
+ + + + + + A L E I Ð I S + ö H ö F
+ + + + + + F U L L I R + S K A L I
+ + + + + + U + L L + + K A N N A R
+ + + + + + R E I D D I U T A N + +
S K R A F A + I N + E L N A + + F A
+ L Æ Ð A N + S N A K I N N + V I N
+ ó T A L D A A + M U N A + S I N N
+ S A N D A R + E I R + + S E N N A
+ E S + A G A N N + + E F L I N G +
+ T T + F I R A + S U L L I N U A S
+ T + S E F + F R U M L E G + F L A
E I K N Y T j A R + F A S I + R K +
Æ Ð L i K + A R + F A S T + V I N D
+ + I Ð I N N + F A N T + R A Ð + A
+ E F A R + F j ö R G ö M U L + N N
+ R + + + H L A S S I Ð + M E G A S
+ + V I N N U S T A Ð U R + G i S L
S L E N + 0 G T D + + G + H U S L A
+ E I + S T Æ R A + H U M A R + A G
s 1 G G A A + A G N I R + N + V + +
s K R A M B I + + E N + A S T A T T
+ N A R T I + L U F S U R + A K R A
F I R N + T I L L I T + A, Ð S T 0 Ð
S L á T U R A F U R D I rI + S A S A
96 VIKAN 24.TBL. 1992