Vikan - 26.11.1992, Blaðsíða 101
Prjónfesta: 25 lykkjur og 30
umferðir = 10x10 cm.
Mál á peysunni:
S M L
Yfirvídd: 53 cm 54 cm 55 cm
Sídd: 70,4 71 71,6
Ermalengd: 17,4 18 18,6
Bolur:
Fitjið upp gefinn lykkjufjölda á
rúðumynd á prjóna 3 1/2. Ein
rúða á mynd jafngildir einni
lykkju. Skiptið yfir á prjóna nr.
4 fyrir slétt prjón á bol og auk-
ið út í fimmtu hverri lykkju.
Prjónið áfram eftir mynd.
Ermar:
Fitjið upp gefinn lykkjufjölda á
rúðumynd á prjóna 3 1/2 og
prjónið 4 umferðir stroff, 1 sl.
og 1 br. Skiptið yfir á prjóna
nr. 4 fyrir munstur. Athugið að
„medium‘‘-stærð af ermi er
teiknuð inn á munsturpappír,
reikniö staðsetningu munsturs
út frá miðju fyrir S og L.
Hálsmál:
Takið upp 144 I. sitt hvorum
megin hálsmáls á hringprjón
nr. 4. Byrjið á að prjóna kant-
inn, 1 bláa umferð, 3 gular (4
umferðir alls). Byrjið við miðju
framanverðs hálsmáls. Takið
saman 2 lykkjur sitt hvorum
megin við miðjulykkju (hægra
megin: fellið lykkjuna yfir þá
síðari - vinstra megin: takið 2
lykkjur saman að framan-
verðu á stykkinu svo að af-
felldu lykkjurnar snúi hvor að
annarri).
Byrjið síðan á munstur-
bakka við axlarsaum. Takið
eftir úrtökum á munstri við
axlarsaum. Takið saman 2
lykkjur þar sem línan fer inn
um einn. Reynið að halda út-
línum munsturs. Gerið eins
við aftanverða miðju háls-
máls. Skiptið yfir á prjóna nr.
3 1/2 að 25 umferðum loknum
og prjónið út munstur með úr-
tökum á aftanverðu hálsmáli
(X). Endið hálsmál með 4 um-
ferðum 1 sl. og 1. br. og fellið
af. Gangið frá endum og
saumið ermar í. Pressið létt.
Traust merki...
tryggir gœði!
SALTKEX EINS
OG ÞAÐ GERIST BEST
Hæfilega stórt, mátulega stökkt,
passlega salt, einstaklega gott...
Me& ostinum, salatinu og ídýfunni
Eba bara eitt sér...
Auðvitað Bahlsen
þegar eitthvað stendur til!
Islensk /////
Ameríska
24. TBL. 1992 VIKAN 101