Vikan


Vikan - 23.09.1993, Page 15

Vikan - 23.09.1993, Page 15
BALENCIAGA Konckier, keypti fyrirtækið, hefur vegur þess þó eflst til muna. Fyrsta verk nýja eigandans var að leita að hönnuði sem væri fær um að lyfta nafni Balenciaga upp úr ládeyðu undanfarinna ára. Nýi hönn- uðurinn þurfti að uppfylla þrjú skilyrði, hafa ríka sköpunar- gáfu, sterkan persónuleika og vera gjörsamlega óþekktur. Josephus Melchior Thimister, sem kemur frá Maastricht í Hollandi, uppfyllir öll þessi skilyrði og raunin er sú að fyrstu sýningum hans hefur verið vel tekið af tfskupress- unni. Thimister leitar víða fanga við hugmyndaöflun og fyrir vetrarlínu sína sótti hann innblástur til svo ólíkra upp- sprettna sem málverka Ro- berts Motherwell, Ijósmynda Mans Reys, afrískra lista- verka og klippimynda af landslagi frá Himalaja. □

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.