Vikan


Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 30

Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 30
miðar eru seldir inn í Opry- höllina. Sem dæmi um vinsældir sveitatónlistar má geta þess að sjónvarpsstöðin CMT, Country Music Television, sendir út myndbönd meö sveitatónlist allan sólarhring- inn og nýverið stækkaði á- horfendasvæðið með sér- stakri rás á gervihnetti sem hægt er að ná í allri Evrópu. Sveitasöngvaiðnaöurinn er sagður velta meira fé en nokkur önnur tónlistarstefna. Poppgoðin fylla hljómleika- hallir nokkrum sinnum en sveitasöngvahljómleikar eru svo vinsælir að dæmi eru um að stjörnurnar haldi hundraö og fimmtíu tónleika á ári og aðgöngumiðar seljist betur en Bjarni Dagur meö vinsælda- lista í höndunum þar sem finna má öll lögin sem getió er á næstu síðu. hjá poppurum eða þungarokk- urum. Samtök sveitasöngvaiðnað- arins heita til dæmis Country Music Association og Aca- demy of Country Music og veita verölaun og viðurkenn- ingar ár hvert. Einstaklingar, sem aðhyllast sveitatónlist, geta líka gengið í margs kon- ar klúbba og gerst áskrifendur að tímaritum sem mörg hver fást reyndar í bókabúðum hér. Nýjustu breytingarnar í sveitatónlistinni urðu fyrir um það bil fimmtán til tuttugu árum þegar hópur sveita- söngvara yfirgaf Nashville í Tennessee og sagði skilið við klíkuna sem þeir kölluöu svo. Töldu þeir meðal annars að hljómplötufyrirtækin ríghéldu í gamlar hefðir og nýir straumar og stefnur ættu ekki mögu- leika á aö ná eyrum áheyr- enda. Willie Nelson varð einna fyrstur til þess að fara eigin leiðir. Þegar ungir tónlistarmenn tóku að leika sveitatónlist með nýjum og ferskari hætti varð til orðið „young-country". Þar fóru fyrir til dæmis hljómsveit- in Eagles, Nitty Gritty Dirt Band og hljómsveitin Poco. Þetta var nútímalegur hljóm- AMYNÖBANÐI Æfingarnar skiptast í upphitun, teygjur, styrkjandí æfingar og sjökun. Myndbandið er ætlað þunguðum konum allt fíá fyrstu viku meðgöngu, að fæðingu og eftir fæðingu. Þungaðar konur verða betur undirbúnar undir meðgöngu og fæðingu og líkaminn erfyrr að ná sér. Spólan er seld hjá GH dagskrárgerð s: 91-689658 ógf versluninni Ditto Laugavegi 92 Rvk. Aðstandendur myndarínnar eru sjúkraþjálfari, læknir og Ijósmóðir sem öll starfa við Landspítalann. Spólan er 110 mfnúturað lengdog kostar 2.950,- ur, nýr taktur, lengri og hrað- ari söngvar en tónlistin samt byggð á gamla „country-inu“. Um þessar mundir er sveitasöngvatónlistin í Banda- ríkjunum nútímaleg og ferskari en nokkru sinni fyrr. Breytingarnar eru skemmti- legri og aðgengilegri en í popptónlistinni. Hljómurinn ( sveitatónlistinni er líkur popp- inu en hljóðfærin eru færri og þau eru ósvikin, sárasjaldan er verið með hljóðgervla og söngurinn er kjarni lagsins. Söngvarinn í sveitatónlist- inni er ávallt f fremstu víglínu. Því skiptir miklu fyrir sveita- söngvarann aö hafa sérkenni- lega rödd og útlit og fram- koma sveitasöngvarans er vörumerki hans eins og hjá mörgum öðrum listamönnum. Ástæðan fyrir því að þessi tónlist nýtur sífellt meiri vin- sælda er trúlega sú að sveita- söngvarnir eru þægilegir á að hlýða, tónlistin er hlýleg og af- slappandi, textarnir auðlæröir og höfða til margra og tónlist- in er nægilega ólík dægur- poppinu til þess að skera sig úr. Hún er líka aögengiiegri en það. Svo er sennilega ein ástæðan sú að dægurlaga- popp hefur ekki tekið nægi- lega miklum og góðum breyt- ingum á síðustu árum á með- an sveitatónlistin hefur breyst mjög til hins betra. Ef einhver tónlistarstefna getur fagnaö á- gætum hljómburði geisla- diskanna er það sveitatónlist- in og með tilkomu þeirra fór hún virkilega að njóta sín á hljómplötum." Eftir þennan fyrirlestur Bjarna Dags spyrjum við hann hvernig það hafi komið til að hann varð aðdáandi sveita- söngva. „Það gerðist fyrir tilviljun - nema það hafi verið ætlun æöri máttarvalda að leiða mig á vit sveitatónlistar. Ég var gestkomandi á jólum hjá á- gætu fólki sem naut þess að hafa það skemmtilegt og þægilegt á aðfangadagskvöld. Eftir góðan mat og drykk setti húsbóndinn plötu á fóninn, jólaplötu Jims Reeves. Það var sem himnarnir opnuðust - þvílík rödd og stemmning yfir tónlistinni. Síðan kom hver platan á fætur annarri með Jim Reeves þetta kvöld og fram á nótt. Ég varð heillaður og fór að leita að plötum með honum og síðan fleiri sveita- söngvurum. Áhuginn var vaknaður og síöan uppgötv- aði ég að útvarpsstöðin á Keflavíkurflugvelli, kanaút- varpið, sendi út tvo sveita- söngvaþætti á dag og fjörutíu vinsælustu sveitasöngvana í hverri viku. Þar með var ég frelsaður. Síðan hófst plötusöfnunin hægt og rólega. Ég fékk plöt- ur frá Bandaríkjunum og þótti sumum skrítið í öllu poppfár- inu að vera að kaupa fyrir mig nýja plötu með Dolly Parton eða Earl Tomas Conley þegar plötur eins og Grease eða Saturday Night Fever snerust á fóninum hjá flestum öðrum. Svona var þetta - en hefur breyst." - Hvenær fórstu svo aö kynna sveitatónlist í útvarp- inu? „Þegar ég var að öölast þekkingu á sveitatónlistinni höfðu margir vina minna vit- neskju um þessa plötusöfnun mína. Það var um sama leyti og Rás 2 fór af stað og ég átti þá litla auglýsingastofu og framleiddi nokkrar leiknar út- varpsauglýsingar. Ég var svo eitt sinn á ferð uppi í Efstaleiti og var að leggja inn leikna auglýsingu þegar við Þorgeir Ástvaldsson tókum tal saman. Þorgeir var þá dagskrárstjóri Rásarinnar og þegar leið á samtalið fór ég að ræða um það við hann að fá aö leika sveitatónlist í útvarpinu. Eftir nokkra umhugsun hafði Þor- geir svo samband við mig og ég lék sveitatónlist vikulega i eina klukkustund frá þrjú til fjögur á mánudögum. Þáttur- inn hét „Á sveitaveginum" og tók við af öðrum sveita- söngvaþætti sem hafði veriö á dagskránni í nokkra mánuði. Þar með fór boltinn að rúlla. Ég byrjaði með þessa þætti og síöan jukust verkefnin í út- varpinu. Hvað leiddi af öðru; ég lagði niður auglýsingastof- una eftir nokkurn tíma og gerði útvarpsvinnuna að lífs- starfi. Margt hefur gerst á þessum árum en alltaf hefur sveitasöngvatónlistin fylgt mér; á útvarpsstöðinni Stjörn- unni, á Aðalstööinni og núna síðast á sunnudögum á Bylgj- unni." - Á hvaöa tónlistarfólki hef- ur þú mestar mætur í sveita- tónlistinni? „Það er unga fólkið. Gömlu hetjurnar hafa ekki getað fylgt nýja kántríinu eftir. Það er líka gott í sjálfu sér. Þessir gömlu brautryðjendur eiga að hafa sinn stíl og halda honum ó- breyttum. Söngvarar eins og Vince Gill, Tracy Lawrence, Billy Ray Cirus, Hal Ketchum, Collin Ray, Dwight Yoakam, svo einhverjir séu nefndir, eru að semja og flytja afar góða 30 VIKAN 19. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.