Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 48
TEXTI: HALLA SVERRISDOTTIR
ER SÆLLA AÐ
GEFA
Samskipti mannanna
byggjast á því sem kalla
má „vöruskipti" - þó að
það kunni að hljóma kulda-
lega! Við gefum og við tökum
- ást, vináttu, efnisleg gæði,
traust, samúð. Enginn er einn
í heiminum (þó að sumir virð-
ist halda það) og öll þurfum
við hvert á öðru að halda.
Sumir eru alltaf að gera eitt-
hvað fyrir aðra en sumir sitja
bara á rassinum og bíða eftir
að eitthvað sé gert fyrir þá.
Hvorum hópnum tilheyrir þú?
Taktu þetta stutta próf, reikn-
aðu út stigin þín og fáðu á
hreint hvort þú ert þiggjand-
inn, gefandinn eða hvort
tveggja í samskiptum þínum
við ættingja, vini, ástmenn og
samstarfsfólk. Niðurstaðan
gæti komið þér (kannski ó-
þægilega) á óvart!
1. Nágrannakona þín hefur
reynst þér vel í gegnum tíð-
ina en nú þarf hún að
skreppa burtu í tvær vikur
og biður þig að líta eftir
aldraöri móöur sinni.
Vandamálið er að sú gamla
er vanþakklát nöldurskjóða.
Hvað gerir þú?
a) Lætur þig hafa það; þú
endurgeldur alltaf greiða.
b) Samþykkir að líta inn til
hennar einu sinni eöa tvisvar.
c) Býrð til einhverja sannfær-
andi afsökun til að komast hjá
greiðanum.
d) Kemur þér undan með því
að stinga upp á málamiðlun -
bjóðast til að kaupa í matinn
fyrir kerlinguna eða eitthvað í
þeim dúr.
2. Þú hefur eytt miklum tíma
í aö undirbúa dásamlega
rómantískan kvöldverð en
elskhuginn hringir og seg-
ist ekki komast. Hvað gerir
þú?
a) Kveikir á kertunum og nýtur
matarins; þér finnst þú sjálf al-
veg eiga þaö skilið að borða
góðan kvöldverð.
b) Hringir í einhvern vin eða
vinkonu - þú ert svo góður
kokkur að það væri synd að
48 VIKAN 19.TBL. 1993