Vikan


Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 22

Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 22
valdi þann kostinn aö aö bíöa þar til ég væri tilbúin. Þegar ég svo yfirgaf hann bjó ég yfir reynslu, innri krafti og sjálfsaga sem ég ávann mér meö því aö búa með manni eins og Ike. - Hafa orðið einhver ákveðin straum- hvörf í lífi þínu? Að mínu mati er eitt mikilvægasta skref sem ég hef stigið að taka búddatrú. Það hófst þegar ég hitti skyggna manneskju sem sagði að ég ætti eftir að verða stór- stjarna og búa handan vatnsins. Svo gerð- ist það í kringum 1967 að kona nokkur, sem Ike hélt við, benti mér á listina að kyrja. Það er skrýtið að kona sem Ike hélt fram hjá mér með gaf mér bestu gjöf lífs míns. Allar götur síöan hef ég kyrjað kvölds og morgna. Trú mín og styrkurinn, sem ég fékk með því að kyrja, gaf mér hugrekki til að yfir- gefa Ike árið 1976. Kvöld eitt, þegar Ike hafði vakað samfleytt í fimm sólarhringa og var sofnaður eftir að hafa lamið mig duglega, áttaði ég mig á því að einhvern daginn myndi hann hreinlega drepa mig. Ég fór því með 36 sent og bensínkort í vasanum. Þá stóð ég gjörsamlega ein með fjögur börn. Ég reiddi mig á matarmiða og öll þau verkefni sem ég gat fengið; kabar- ettsýningar, sjónvarpsþætti og klúbba, allt til að komast af. Næsti vendipunkturinn var áþreifanlegri - framkvæmdastjórinn minn, Ástralinn Roger Davies. Ég var á ferðalagi með hljómsveit sem ég hafði sett saman, skuld- aði hálfa milljón dollara og hafði ekki samning við útgáfufyrirtæki. Roger gerði á- kveðnar breytingar á hljómsveitinni og kom mér inn í betri klúbba og síðan nætur- klúbba í Las Vegas árið 1980. Ég hitaði upp fyrir The Rolling Stones í hljómleikaferð þeirra um Evrópu árið 1981. Stuttu seinna hljóðritaði ég gamla Tempta- tions-lagið Ball of Confusion, hitaði upp fyrir Rod Stewart á stórum tónleikum sem sendir voru beint út frá Los Angeles um allan heim og meðan á öllu þessu stóð samdi Roger við fyrirtækið Capital/EMI um útgáfu. Hann stóð síðan með mér sem framkvæmdastjóri og vinur þegar ég gerði plötuna Private Dancer sem seldist í ellefu milljónum eintaka og vann fjölmörg Gram- my-verðlaun. Lagið What’s Love Got to Do with It er einmitt á þeirri plötu. Þessu fylgdu metsöluplötur, stórar tónleikaferðir og ferill sem ég er þakklát fyrir. - Þú hefur verið kölluð kvenútgáfa af Mick Jagger. Hvað finnst þér um þessa samlíkingu? Kenndirðu Mick Jagger virki- lega að dansa? Áður en við Ike ferðuðumst með The Rolling Stones árið 1969 unnum við með þeim í Bretlandi árið 1966. Mick var vinur Phil Spector og hann fylgdist með þegar við hljóðrituðum lagið River Deep Mounta- in High. Ég man eftir honum en talaði lítið við hann. Þegar við spiluðum í Bretlandi kom Mick stundum að horfa á. Hann dans- aði þá ekki en sagöist hafa gaman af því að sjá stúlkurnar dansa. Hann var mikið baksviðs þegar við spil- uðum og sló taktinn með tambúrínu. Ég man eftir að hafa hugsað að hann hlyti að spurði hann eitt sinn hvort ég mætti syngja með honum. Hann játti því en hafði síðan ekki samband. Árið 1957 var ég ásamt systur minni í klúbbi á Manhattan. Ike og hljómsveit hans spiluðu. Þegar hann hljóp út í salinn til að fá systur mína til að syngja rétti hún mér hljóðnemann. Ég söng lag eftir B.B. King og eftir það tróð ég reglulega upp með hljómsveitinni. Það var þá sem ég breytti nafni mínu úr Anna Mae í Tinu. Ég varö ólétt eftir einn hljómsveitar- manninn árið 1958 og eignaðist dreng, Craig. Pabbi hans fór áður en hann fædd- ist og ég vann á spítala til að hafa ofan í okkur og á. Ég söng áfram með Ike á kvöldin og smám saman flutti ég til hans. Ég varð ólétt eftir Ike og árið 1960 eignað- ist ég Ronnie. Það skrýtna var að Ike var þá í óvígðri sambúð með annarri konu, Lorraine Taylor, og bjó hún einnig hjá hon- um. Hún ógnaði mér einu sinni með byssu, skaut síðan sjálfa sig hættulausu skotsári og yfirgaf okkur um það bil sem Ronnie fæddist. Hún skildi eftir tvo drengi sem þau Ike áttu saman. Skyndilega var ég móðir fjögurra drengja sem allir voru innan við sex ára. Árið 1962 giftum við okkur í Tijuana, aðal- lega vegna þess að fyrri eiginkona Ike, sem hann var giftur áður en hann hitti Lorraine, vildi fá meðlag. - Hvenær tókuð þið Ike upp fyrstu plöt- una ykkar? Árið 1960 ætlaði Ike að taka upp lagið A Fool in Love. Söngkonan, sem átti að syngja á móti honum, mætti ekki og ég hljóp í skarðið. Það var fyrsta platan sem við gerðum saman. Fljótlega breyttist heiti sýningarinnar í „Stórsýning Ike og Tinu Turner“. Þá bættust einnig þrjár bakradda- söngkonur í hópinn. - Allir hafa heyrt sögur af stormasömu hjónabandi ykkar Ikes. Hvað var það Ike sem heillaði þig og hvers vegna varstu hjá honum, jafnvel eftir að barsmíöarnar hófust? Ég dýrkaði Ike allt frá því er ég fyrst hitti hann. Eg reyndi að líkja eftir öllu sem hann gerði, hreyfingum, dansi og öllu saman. Áður en ég varð ástfangin af honum vorum við góðir vinir og þá vildi ég vera nákvæm- lega eins og hann. Fyrstu hjónabandsárin voru frábær, það er að segja áður en varð bara eiginkonan og þrællinn. Allt í einu gat ég ekki gert neitt án þess að spyrja Ike. Eg varð jafnvel að fá leyfi til að versla. Ike vildi hafa stjórn á öllu og hikaði ekki viö að beita valdi til að undirstrika það. Hann braut í mér rifbein, kjálkinn brákaðist og ég fékk fleiri glóðaraugu og oftar bólgið nef og varir en ég get talið. Hann var kvennamaður og hikaði ekki við að koma með stelpurnar heim til okkar. Einnig bar hann alltaf á sér byssu, var háður kókaíni og sprengdi jafnvel bíla í lofl upp. Fólk sagði að Ike væri svengali [Ensk-ís- lensk orðabók, ÖÖ: Maður sem býr yfii miklum dáleiðslukraftij. í það minnsta vai hann maður sem lamdi mig miskunnar- laust í sextán ár en eins og ég sagði áðui hafði ég lofað að vera hjá honum og 22 VIKAN 19.TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.