Vikan - 23.09.1993, Page 16
NORÐURSINS
ÞAU NJÓTA ÞESS AÐ FERÐAST ÞAR SEM KALT ER
»
Oblíð veðráttan á það tll
að þreyta íslendinga
en heillar aftur á móti
þá útlendinga sem eru afhuga
suðrænum strandferðum.
Snjórinn, svala loftið og
hrjóstrugt landslagið hefur
lokkað hjónin Stuart og Evelyn
Menzies þrisvar til íslands und-
anfarin ár en þau segja að ó-
venju fallegur ferðabæklingur
frá ferðaskrifstofunni Arctic Ex-
perience hafi komið þeim á
sporið.
ER PLÁSS
f FERÐATÖSKUNNI?
Evelyn Menzies rekur leikskóla
í útjaðri Lundúnaborgar. Þar
bankaði íslensk fjölskylda á dyr
haustið 1991, sennilega sú
fyrsta sem flust hefur í Græna-
stræti og hafði leitað árangurs-
laust að leikskólaplássi fyrir
dæturnar tvær. Evelyn þótti sér
hins vegar Ijúft og skylt að
bjarga málum þegar hún
heyrði hverrar þjóðar fólkið var.
Rétt eins og henni fyndist fólk
af íslensku bergi brotið eiga
inni hjá henni greiða fyrir að
hún hefði fengið að njóta nátt-
úrufegurðar landsins þess.
Þannig kynntist greinarhöfund-
ur Evelyn sem jafnan horfir
löngunaraugum á íslensku
börnin sín þegar þau taka sér
frí í leikskólanum hennar til að
fara til íslands og spyr þá
gjarna hvort ekki sé hægt að
koma henni fyrir í ferðatösk-
unni.
HELDUR FYRIRLESTRA
UM ÍSLAND
Þannig atvikaðist það að eftir
mikið spjall um ísland fyrir
framan leikskóladyrnar var ég
kvöld eitt komin framan við
gasarineldinn í stofunni hjá
þeim Evelyn og Stuart til að
hlýða á ferðasögur. Stuart
hafði líka ákveðið að bera und-
ir mig nokkrar staðreyndir sem
hann hefur haldið kinnroða-
laust fram til þessa í fyrirlestr-
um sínum hjá Rotary, þar sem
hann er félagi. Hjá Rotary
tíðkast að menn haldi fyrir-
lestra um ýmislegt sem þeir
eru sérfróðir um, eins konar
fræðslukvöld, en þar hefur Stu-
art orðið boðberi norðursins og
fjallað bæði um ævintýraferðir
sínar til íslands og Grænlands.
„Ég hef alltaf verið nokkuð
öruggur um að enginn geti leið-
rétt mig þegar ég tala um þess-
ar afskekktu slóðir en þar sem
þú mætir með mér á næsta fyr-
ÍX3
Stuart og
Evelyn í
fyrstu ferö
sinni um
landiö. Þau
heiliuöust
af fegurö-
inni og sér-
kennileg-
um nátt-
úrufyrir-
brigöum.