Vikan


Vikan - 23.09.1993, Síða 23

Vikan - 23.09.1993, Síða 23
- Á þessari plötu eru mörg af þekktari lögum þínum og má þar nefna A Fool in Love, Rock Me Baby, It's Gonna Work Out Fine, Nutbush City Limit og Shake a Tail Feather. Sum þessara laga urðu til á erfið- um tímum með Ike. Var erfitt fyrir þig að endurvinna og túlka þessi lög? Ég hafði gaman af því að endurvinna þessi lög fyrir myndina, þrátt fyrir að sum þeirra vektu upp vondar minningar. Ég á- kvað bara að hugsa ekki um þær. Þessi lög eru grunnurinn að ferli mínum. Þetta eru lög sem fólk heldur upp á þannig að ég fór bara og gerði það sem gera þurfti. Þeg- ar ég söng þessi lög á sínum tíma var ég bara óþroskuð kona og skildi vart hvaða kraft þau höfðu. Nú skil ég það. Það er eins og að hverfa aftur til fortíðar að syngja þau, nú geri ég það bara með því öryggi og þeirri vissu að allir mínir draumar muni rætast. Mér finnst reyndar að lögin séu betur útsett og hljóðblönduð núna. Ég er mjög hreykin af þessari plötu. - Þú hefur komið fram á alls konar stöðum, litlum og stórum skemmtistöðum, stórsýningum og tónlistarhöllum og síðasta hljómleikaferð þín I Evrópu gekk alveg frá- bæriega - rúmlega þrjár milljónir aðdá- enda komu á tónleikana. Þetta var best heppnaða tónleikaferðalag allra tíma í Evr- ópu en nú hefur þú ekki farið í tónleikaför í sex ár. Hvers vegna kýstu að fara núna? í fyrstu var ég nokkuð hikandi, ég vildi ekki fara að heiman og ég vissi ekki hvern- ig móttökur ég fengi hjá bandarískum á- heyrendum. En um leið og ég hafði ákveð- ið mig gat ég vart beðið með að byrja. Ég fékk endanlega staðfestingu þegar ég fann spennuna hjá Bandaríkjamönnum. Of langur tími hefur liðið og það er örvandi að finna nálægð áheyrenda á hverju kvöldi. „What’s Love? Tour 1993“ hófst 6. júní í Reno í Nevadafylki og Lindsey Bucking- ham og Chris Isaak voru með í för. Há- punktur Bandaríkjahlutans var frumraun í Radio City Music Hall í New York en þar var uppselt fimm kvöld í röð. Ég er líka spennt fyrir lokatónleikunum í Greek Thea- ter í Los Angeles en þar er uppselt á tón- leikana fimm kvöld í röð. Ég er ánægð með að eiga vinsæla smáskífu aftur og gullplötu í Bandaríkjunum. - Þú hefur lifað síbreytilegu og spenn- andi lífi, stundum hættulegu, en núna virð- ist þú vera í jafnvægi, það er friður yfir þér. Er Tina Turner hamingjusöm? Núna er Tina Turner hamingjusöm. Ég á fallegt heimili í Þýskalandi, annað í suður- hluta Frakklands og það þriðja í Beverly Hills. Ég á nóg af fötum og fallegum hlutum sem mig hefur alltaf langað í og hef unnið hörðum höndum fyrir. Frami minn er á góðri og jafnri braut og ég á góðan félaga og elskhuga, Erwin Bach, sem er hlédræg- ur og yfirvegaður. Við höfum búið saman á heimili mínu í Cologne í sex ár. Erwin er 37 ára og er framkvæmdastjóri hins risastóra EMI útgáfufyrirtækis í Þýskalandi. Hann veitir mér mikla öryggistilfinningu. Vantar mig eitthvað meira? Nei, líklega ekki, en ég vildi þó geta leikið. Eldri konur geta leikið ef þær eru góðar leikkonur. Fjandinn hirði mig ef ég verð gömul og gráhærð rokkstjarna. □ 19. TBL. 1993 VIKAN 23 vera aðdáandi. Þegar hann kom svo til Bandarlkjanna var hann á fleygiferð um sviðið og þá sá ég hvað hann hafði verið að gera þegar hann fylgdist með okkur baksviðs. Ég reyndi að kenna honum nokkur spor en Mick vildi alltaf hafa sinn háttinn á. - Þú beitir líkamanum mikið á sviði og hefur meira úthald, meiri orku og sviðsper- sónu en söngkonur sem eru tvöfalt yngri enþú. Hverju þakkarðu þetta? Eg fór á sviðið hér áður fyrr, hvað sem tautaði og raulaði. Ég fór á svið kasólétt, fór á svið með glóðaraugu og blóðnasir. Ég fór á svið þótt ég væri dauðuppgefin eftir langan dag. Eitt sinn lá ég á spítala með hita og bráða lungnabólgu, með ís- bakstra til að halda hitanum niðri. Þá kom Ike og sagði mér að hundskast upp á svið og syngja, annars yrði ég rekin. Ég fór. Það jákvæða við þessa geðveiku keyrslu var að ég fór að keyra sjálfa mig upp. Hvað varðar persónuleika á sviði held ég að það sé bara áralöng æfing og reynsla. Ég get ekki staðið kyrr og sungið fyrir á- horfendur, ég hef aldrei verið þannig skemmtikraftur. Maður getur bara ekki ver- ið gömul rokksöngkona, að minnsta kosti ekki ég. Karlarnir komast kannski upp með það. - Þú virðist dáð af jafnt konum sem körlum og það er sjaldgæft meðal kvenna með svo mikla kyntöfra. Hvað veldur þessu? Þetta er með ráðum gert. Ég biðla jafnt til kvenna sem karla á tónleikum. Þetta hófst kannski sem einhvers konar öryggis- ráðstöfun en seinna ákvað ég að svona vildi ég hafa það. Ég er á sviðinu og vil höfða til allra, ég er ekki bara að daðra við karlana. - Þú skiptir nýlega um útgefendur í Bandaríkjunum. Hvað olli þessum skipt- um? Plötusala í Bandaríkjunum dróst mikið aftur úr sölu á erlendum mörkuðum svo að ég áleit að það væri kominn tími til að skipta. Ég fór yfir til Virgin frá Capital en þau skipti urðu í mestu vinsemd. Capital gerði við mig samning á erfiðum tima hjá mér svo að ég stend í mikilli þakkarskuld við þá sem fyrir því stóðu og er þakklát fyr- ir það sem þeir hafa gert fyrir feril minn. Nú er kominn tími til að halda áfram og sjá hvað Virgin getur gert fyrir mig. Fyrsta plata mín, sem gefin er út undir merkjum Virgin, What's Love Got to Do with It, var gefin út í júní á þessu ári, rétt áður en myndin var frumsýnd. Auk laga úr myndinni eru þrjú ný lög á plötunni; I Don’t Wanna Fight eftir Steve DuBerry og Lulu, sem kom út á smáskífu; Stay Awhile eftir Terry Britten og Graham Lyle (sem samdi What’s Love Got to Do with It) og Why Must We Wait Until Tonight, hljóðblandað og samið af vini mínum Bryan Adams á- samt Robert John „Mutt“ Lange. Það lag þótti mér skrýtið því þegar ég heyrði það fyrst þótti mér það of djasslegt fyrir mig. Eg bað Roger Davies að segja Bryan að mér líkaði það ekki en hann gerði það aldrei. Við tókum lagið síðan upp og nú finnst mér það frábært.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.