Vikan


Vikan - 23.09.1993, Síða 25

Vikan - 23.09.1993, Síða 25
ALLIR GETA LÆRT AÐ SYNGJA - SEGIR ESTHER HELGA ' GUÐMUNDSDÓTTIR SEM KENNIR JAFNVEL LAGLAUSUM RÉTTU TÖKIN Hún kallar greinilega ekki allt ömmu sfna, hún Esther Helga Guð- mundsdóttir sem vakið hefur athygli fyrir kennslu sína og skoðanir á tónlistarnámi. í vet- ur starfrækir hún söngskóla sinn öðru sinni, Söngsmiðjuna. Margir urðu forvitnir þegar þeir sáu auglýsingar hennar í dag- blöðunum þess efnis að allir gætu komið á námskeið til hennar, þeir þyrftu ekki einu sinni að geta sungið - hún myndi bara kenna þeim það. Tíðindamanni Vikunnar þótti kona þessi forvitnileg og bað hana að segja svolítið frá sjálfri sér og skólanum: Ég er fædd í vesturbænum í Reykjavfk og bjó í „Verkó" við Ásvallagötuna, rétt við róluvöllinn. Eg giftist ung og var búin að eignast þrjú börn tuttugu og tveggja ára. Um það leyti var ég byrjuð að læra söng en fór ekki að stunda námið af fullum krafti fyrr en tveimur árum síðar. Ég hélt svo til Bandaríkjanna, í há- skólann í Indiana, til að læra meira í söngnum. Þar var ég í fjögur og hálft ár og kom heim árið 1988. - Hvað varð til þess að þú fékkst svo mikinn áhuga á að syngja? Lagið „House of the rising Sun“ með Animals. Ég segi það kannski ekki, en það er samt nokkuð til í því. Einhvern tíma á þessum árum fór ég að finna fyrir sjálfri mér í söngn- um, þörfinni fyrir að syngja og hvað söngurinn gerði mikið fyrir mig - og aðra. Ég fann að hann hreyfði við tilfinningum. Ég söng mest fyrir sjálfa mig og með vinum mínum sem unglingur og ung kona í hippatímanum og aðallega við gítarundirleik. Ég söng ekkert opinberlega á þeim tíma. Ég ákvað að fara í söngnám, fannst ég mega til. Ég fór í Söngskólann og kláraði hann. KOM STEINGELD ÚR NÁMI Ég varð fyrir vonbrigðum bæði með Söngskólann í Reykjavík og háskólann í Bandarfkjun- um. Sá síðarnefndi var mjög pottþéttur, það vantaði ekki. Maður fór inn í ákveðna hakkamaskínu og kom þaðan út í hakkabuffi. Ég tók þar inn mjög mikinn fróðleik. Mér fannst ég samt koma stein- geld úr þessu þrælklassíska tónlistarnámi. Mér finnst nám- ið vera á skjön við sjálfan sönginn og tónlistina, langt í __, burtu frá kjarnanum. Það má >< segja að ég sé að reyna að — sýna fram á hið gagnstæða EE með kennslu minni. !=; Þegar ég kom að utan þurfti ^ ég að byrja að vinna fyrir mér og börnum mínum þrem sem ig einstæð móðir. Ég byrjaði að ^ kenna á námskeiðum með Margréti Pálmadóttur vinkonu § minni. Við stofnuðum fljótlega Óperusmiðjuna og hrundum nr henni úr vör. Ég fór líka að kenna einsöng við tónlistar- p" skólann í Hafnarfirði. Síðan g hefur þetta smáþróast. Ég hélt cS áfram með stök námskeið þangað til ég stofnaði skólann. ^ Þá auglýsti ég námskeið fyrir c5: unga sem aldna, laglausa sem lagvísa. Þátttakan var ^ mjög góð. Þá byrjaði boltinn Lo að rúlla og til mín fór að koma ^ NANNA GUÐBERGS ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK: Snyrtivöruversl. Cher, Laugavegi 76 • Spes, Háaleitisbraut 58-60 Snyrtihús Heiöars, Vesturgötu 19 • Saloon Ritz, Laugavegi 66 • Snyrtistofa Kristínar, Ásvallagötu 77 • Hárgreiðslust. Hótel Loftleiöum, Reykjavíkurflugvelli • Ingólfsapótek, Kringlunni 8-12 • Verslunin 17, Laugavegi 91 • Snyrtistofan NN, Kringlunni 6 Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82 • Snyrtistofan Fegrun, Búðargerði 10 Hár og föröun, Faxafeni 8 • Snyrtist. Halldóru, Fannafold 217a • KÓPAVOGUR: Gott útlit, Nýbýlavegi 14 • GARÐABÆR: Snyrtihöllin, Garðatorgi • HAFNARFJÖRÐUR: Versl. Dísella, Miðvangi • Snyrtist. Bjargey, Reykjavíkurvegi 16 • KEFLAVÍK: Snyrtivöruversl. Smart • AKRANES: Versl. Perla • BORGARNES: Apótek Borgarness ÍSAFJÖRÐUR: Snyrtistofan Sóley • Versl. Krisma • FLATEYRI: Félagskaup PATREKSFJÖRÐUR: Patreksapótek • SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfiröingabúö Snyrtistofan Táin • AKUREYRI: Vörusalan • Betri líöan • Snyrtistofan Eva Verslunin Ynja • DALVÍK: Snyrtist. Tanja • HÚSAVÍK: Snyrtistofan Hilma VOPNAFJÖRÐUR: Lyfsalan • HÖFN: Snyrtistofa Ólafar • HVERAGERÐI: Ölfusapótek • Snyrtistofa Löllu, Heilsustofnun NLFÍ • VESTMANNAEYJAR: Miöbœr. LJÓSM.: BRAGI Þ. JÓSEFSSON / HÁR: ERLAI HÁR OG FÖRÐUN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.