Vikan - 23.09.1993, Page 31
FLYTJANDI ÚTG./NR. TITILL
Alan Jackson Arista 18711 A LOT ABOUT LIVIN'
Billy Ray Cyrus Mercury 514758 IT WON'T BE THE LAST
Clint Black RCA 66239 NO TIMETO KILL
Wynonna Curb 10822 TELL MY WHY
John Michael Montgomery Atlantic 82420 LIFE'S A DANCE
George Strait MCA 10651 PURE COUNTRY
Reba Mcentire MCA 10673 IT'S YOUR CALL
Dwight Yoakam Reprise 45241 THIS TIME
Brooks & Dunn Arista 18716 HARD WORKIN’ MAN
Tracy Lawrence Atlantic 82483 ALIBIS
Little Texas Warner Bros 45276 BIG TIME
Garth Brooks Liberty 93866 NO FENCES
Vince Gill MCA10630 I STILL BELIEVE IN YOU
Mary-Chapin Carpenter Columbia 48881 COMEON COMEON
Lorrie Morgan BNA 66047 WATCH ME
Doug Supernaw BNA 66133 RED AND RIO GRANDE
Wynonna Curb 10529 WYNONNA
Clay Walker Giant 24511 — CLAYWALKER
tónlist. Þeirra er framtíöin.
Svo eru það hljómsveitir eins
og Little Texas, McBride and
the Ride, Sawyer Brown og
Shenandoha og söngkonur
eins og Lorrie Morgan, Susy
Boggus, Triha Yearwood,
Caralena Carter, Tanya
Tucker, Patty Loveless oq
fleiri."
- Hlýöir dagskrárgerðar-
maður, sem vinnur að sveita-
söngvaþætti, á aðra tónlist
heima hjá sér en hann leikur í
útvarpinu?
„Þaö er nú svo skrítið að
síðustu fimm árin hef ég ekki
verið með hljómflutningstæki
heima hjá mér. Við eigum gott
útvarp í eldhúsinu, annað í
svefnherberginu og inni á
baðherbergi. Hljómflutnings-
tækin mín eru í bílnum, góður
Sony geislaspilari og Good-
mans hátalarar, og það er í
bílnum sem ég hlusta á nýjar
sveitasöngvaplötur sem mér
berast. Þegar ég er svo á
ferðinni í Golfinum mínum er
ég oftast með sígilda tónlist í
spilaranum. Þegar við Sigur-
steinn fórum hringveginn í
sumar í þættinum „Þessi þjóð
á hringveginum" hlustuðum
við á fiðlukonsert Beethovens
D major, opus 61 og Maurice
Andre blása nokkra trompet-
konserta eftir Hándel og
Vivaldi.
Flesta daga er ég með ein-
hvern disk í geislaspilaranum
sem ég er að stúdera og síð-
ustu daga hef ég verið með
stórkostlegan Sibeliusar-disk
meö Sinfóníuhljómsveit ís-
lands. Þann disk ættu allir
unnendur góðrar tónlistar að
eignast. Svo er það djassdisk-
urinn Invitation með Joe
Sampler, hreint frábær tónlist
enda var þessi diskur í efsta
sæti djass topp fjörutíu listans
í Bandaríkjunum í allt sumar.
Sennilega er þessi tónlist-
arsmekkur of margbrotinn til
þess að teljast fullkomlega
eðlilegur en þrátt fyrir allt þykir
mér ákaflega vænt um sveita-
tónlistina þótt vinir og kunn-
ingjar telji hana skrítna og á
mörkum velsæmis.“
- Getur þú þá valið nokkrar
góðar hljómplötur með sveita-
söngvurum sem eru vinsælir
þessa stundina?
,.Ég er hér með lista yfir
tuttugu mest seldu sveita-
söngvaplöturnar um þessar
mundir. Það er hægt að
treysta þessum lista þar sem
að mínu mati - að fenginni
reynslu - eru mest seldu plöt-
urnar í Bandarikjunum þær
bestu hverju sinni.“ □
Vetmrefnin
eru óðum að koma
Úrval peysuefna
• draktaefhi • kjólaefni
• blússuefni • buxnaefni
Úrval af smdvöru, ný Burda snið
og New Look snið, Burda og New Mode
blöð í hverjum mánuði.
Eitthvað nýtt á hverjum degi
Dömu- & Herrabúðin
LAUGAVEGI 55 • REYKJAVÍK • SÍMI: 91 -18890
19. TBL. 1993 VIKAN 31