Vikan - 23.09.1993, Side 47
tíðina enda eru flestir hrika-
lega forvitnir um framtíð sína.
SKYGGNI
VARPAR UÓSI Á
FRAMLÍF FÓLKS
Það skyggniafbrigði sem
Gummi virðist aftur á móti búa
yfir er kannski sú tegund
skyggnigáfunnar sem sálar-
rannsóknarmenn, sumir hverj-
ir að minnsta kosti, hafa hrifist
hvað mest af og láir enginn
þeim það vegna þess að hún
er líklegust til að varpa fyrr
eða síðar Ijósi á mögulegt
framhaldslíf okkar. Það verður
nefnilega að viðurkennast að
skyggni á framliðna hefur
sennilega gagnast mun betur
en nokkurt annað dulrænt
fyrirbæri til þess að auðvelda
samband á milli heimanna.
Þessi gáfa á því sterkastan
þátt í að opna okkur leið að
látnum og þá mögulega þeirri
staðreynd að við lifum líkams-
dauðann.
MARGIR ÓLÍKIR
FLOKKAR SKYGGNI
í framhaldi af þessum vanga-
veltum má kannski geta þess
að þessi sérstaka skyggni á
„látna" skiptist svo niður í
marga og ólíka flokka. Við
ræðum það hugsanlega síðar
út frá öðrum bréfum sem hafa
borist. Gummi virðist til dæm-
is það rammskyggn að hann
greinir stundum ekki mun á lif-
andi fólki og látnum og það
ber vott um mjög magnaða
skyggnigáfu. Þessa gáfu ætti
hann að sjálfsögðu að rækta
með hjálp hæfra einstaklinga
sem hafa þekkingu á svona
fyrirbærum. Hæfur miðill með
áþekka hæfileika og mikla og
margþætt reynslu að auki
myndi gagnast honum best
og væri dómbær á hvernig
haga ætti þjálfun.
ÓEIGINGIRNI, EIN-
LÆ.GNI OG JÁKVAÐNI
Gummi hefur líka mikla og já-
kvæða löngun til að láta gott
af sér leiða og það gefur aug-
Ijóslega til kynna að í honum
blundi óeigingirni, einlægni og
gott hjartalag. Vissulega hafa
mestu sjáendur heimsins orð-
ið til að hugga sorgmædda og
hrjáða sem hafa kannski
misst fótanna um tíma vegna
til dæmis ástvinamissis. Ör-
uggasta leiö þess sem vill veg
sinn á þessu sérstaka og
leyndardómsfulla sviði sem
mestan er að rækta innra líf
sitt og hugarfar meö þeim
hætti að persónuleiki viðkom-
andi sé heilsteyptur, heiðar-
legur og heflaður. Viðkomandi
þarf líka aö aga manngerð
sína vel aö sem flestu leyti.
Gott er að sá hinn sami sé
kærleiksríkur og trúaöur á
guðlega forsjá og notfæri sér
siðfræði frelsarans sem veg-
vísi við þjálfun náöargáfna
sinna.
MARGIR KÓRTÆ.KIR
OG HVERSDAGSLÍFIÐ
Dulrænir hæfiieikar eru venju-
lega erföatengdir og fylgja
vissum fjölskyldum mun meira
en öðrum. Hvers kyns
skyggnigáfur eru oftast vís-
þessi reynsla er óneitanlega
öðruvísi en venjuleg reynsla
hversdagslífsins. Ef við berum
þetta saman við tónlistargáfur
eru til mismunandi hæfileikar
á því sviði og margir eru
heppilega kórtækir en fáir það
einstakir að þeir veki athygli
umheimsins svo nokkru nemi,
þótt fegnir vildu.
JARÐBUNDIN
OG RAUNSÆ
Eins og Gummi hefur orðið á-
þreifanlega áskynja er það
auðvitað ekki svo að allir trúi
bending um einhverja tegund
dulrænna fyrirbæra. Við get-
um verið dulræn á ótrúlega
mismunandi máta og stund-
um mjög óverulega, þó okkur
þyki annað vegna þess að
á tilvist dulrænna fyrirbæra.
Þaö sést á því sem hann upp-
lýsir um afstöðu foreldra
sinna. Þau eru jarðbundin og
raunsæ og vilja ekkert flug
ofar skýjum enda trú þeirra á
yfirskilvitlega reynslu engin.
Það er mjög erfitt að vera í
nánum samvistum við þannig
einstaklinga, hvað þá að geta
ekki tjáð sig á réttan máta um
það sem viðkomandi er svona
innilega eðlilegt upplifa þó
það sé dulrænt.
AUÐSÆRANLEGUR
OG ÓÖRUGGUR
Skyggnigáfa Gumma virðist
umtalsverð og töluvert sér-
stök, verður að segjast.
Andúð foreldra hans á þess-
um þáttum í honum getur
reynst honum fjötur um fót
vegna þess að hann er við-
kvæmur og þar af leiðandi
sennilega auðsæranlegur og
óöruggur með sig. Eðlilegast
væri fyrir hann að óska eftir
því við þau að þau geri ekki
lítið úr því sem er honum eðli-
legt þó að það kunni að virka
framandi á þau. Vanmat
þeirra á dulrænu hans er frá-
leitt.
MEÐFÆDD DULRÆNA
VERÐUR EKKI UPPRÆTT
Móðir hans hefur stungið upp
á því að hann leiti sér læknis
vegna þess arna. Það er nátt-
úrlega hæpin uppástunga
vegna þess að læknir myndi
ekki geta gefið neitt ráð sem
dygði til að uppræta skyggni-
gáfu hans, þó feginn vildi.
Meðfæddar dulargáfur verða
ekki upprættar, þær einfald-
lega verða alla tíð til staðar í
innri gerð Gumma, alveg
sama þó foreldrar hans
reyndu að fá hann til að af-
neita þeim og vanvirða gróf-
lega, sem væri sorglegt.
SJALDGÆFAR OG
FYRIRHAFNARLAUSAR
Dulargáfur eru eiginlega mun
sjaldgæfari en hvers kyns
listagáfur og því full ástæða til
að rækta þær og hlúa að
þeim eftir atvikum. Sérstak-
lega á það við ef þær eru eins
og í Gumma tilviki og jafn-
framt svona óvenjulegar eins
og hjá honum. Eða eins og
dulspekingurinn alvarlegi
sagði eitt sinn að gefnu tilefni:
„Elskurnar mínar, þaö er
mjög auövelt aö átta sig á
hver er dulrænn. Sá sem er
þaö gumar ekki af því og
hefur yfirleitt engan áhuga
á dulrænum fyrirbærum
umfram þaö sem hann upp-
lifir dags daglega. Reynslan
kemur fyrirhafnarlaust og
án umhugsunar hjá þeim
sem hæfileikana hefur og
upprætist ekki.“
Með vinsemd,
Jóna Rúna
19. TBL. 1993 VIKAN 47