Vikan - 23.09.1993, Síða 63
daglega eöa hálftíma rösklegri
göngu. Það er ekki skynsam-
legt aö hella sér út ( líkams-
rækt eða skokk án þess að
vita hvort maður hefur úthald í
það. Smám saman, eftir því
sem þjálfunin verður fastur lið-
ur í lífi þínu og þú lærir að
þekkja líkama þinn betur, er
hægt að auka við eða breyta
dagskránni.
2. Það á að vera gaman að
þjálfa sig!
Reyndu að leggja áherslu á
það sem þér finnst skemmti-
legast hverju sinni. Ef þér
finnst leiðinlegt að hjóla skaltu
frekar hlaupa; ef þú færö sviða
í augun af miklu vatni skaltu
frekar hjóla en synda. Mörgum
gengur betur að halda sig við
ætlun sína ef þeir geta haft
einhvern fastákveðinn stað og
ákveðna stund og þá henta
heilsuræktarstöðvar vel - ég
tala nú ekki um ef búið er að
borga háar fjárhæðir fyrir mán-
aðarkort því þá er maður aö
tapa peningum ef maður
skrópar! Annar kostur við
heilsuræktarstöðvar er fjöl-
breytnin; oftast er hægt að fá
aðgang að ýmsum gerðum
þjálfunar og því verður þjálfun-
in meiri leikur en síður leiðin-
leg, auk þess sem þá fæst al-
hliða þjálfun. En það er auðvit-
að ódýrara að skokka, svona á
krepputímunum.
3. Látlð ekki deigan síga þó
á brattann sé að sækja
Það tekur sinn tíma að
þjálfa upp vanræktan skrokk
og þaö þýöir ekki að missa
móðinn þó fyrstu tvær-þrjár
vikurnar verði erfiðar! Það
verður enginn ólympíufari á
nokkrum dögum. Það er held-
ur varla tilgangurinn heldur að
þér líði vel og það tekst ekki
nema með þolinmæðinni.
Mundu að allt er unnið fyrir
gýg ef þú hættir skyndilega í
miðri annarri viku. Þá þarftu að
byrja frá grunni aftur í næsta
skipti!
4. Hlustaðu eftirþví sem iík-
ami þinn er að segja þér
Ef þú verður vör við þráláta
verki eftir ákveðnar æfingar
eða ert aum í sinum eða liða-
mótum skaltu hætta þeim æf-
ingum undir eins! Með sárs-
aukanum er líkami þinn aö
vara þig viö og segja þér aö
annað hvort ertu að gera æf-
ingarnar vitlaust eða þú ert
ekki reiðubúin fyrir þessar æf-
ingar ennþá. Það getur verið
stórhættulegt að hundsa leið-
beiningarnar sem líkami þinn
gefur þér. Ef verkirnir fylgja öll-
um æfingum, sama hvernig þú
gerir þær eða af hve miklum
krafti, skaltu leita læknis.
5. Fjölbreytni er fyrir öllu
Það er leiðigjarnt til lengdar
að gera alltaf sömu æfingarn-
ar, hjóla alltaf sömu veglengd-
ina eftir sömu leiðinni eða
skokka alltaf í sömu fjörunni.
Oft er gaman að sameina tvennt
- byrja til dæmis á léttum æf-
ingum og fara svo og skokka.
Oft bæta tvær aðferðir hvor
aöra upp og verða til þess að
þú fáir heildstæðari þjálfun.
6. Það er tvöfalt eriiðara að
vera einn en að vera tveir
Sameinuð stöndum vér!
Kannski þetta slagorð hafi ekki
verið samið beinlinis með
þjálfun í huga en það á sann-
arlega vel við. Það er ekki nóg
með að skemmtilegra er að
þjálfa sig með einhverjum öðr-
um heldur er það líka hvetjandi
og frjótt. Þú getur fengið góðar
hugmyndir og góð ráð hjá fé-
lögunum og verður auk þess
ákveðnari í að gefast ekki upp
- það er svo aumingjalegt að
mæta ekki í kvöldskokkið eins
og hinir! Þú og maki þinn getið
átt rólega og rómantíska stund
ef þið farið saman í hjólreiða-
túr í kvöldsólinni og þú og
besta vinkona þín getið hrósað
hverfandi magaspiki hvor ann-
arrar í sturtunni eftir leikfimina.
7. Rétta hugarfarið skiptir
öllu - verið meðvituð allan
daginn!
Taktu stigann fram yfir rúllu-
stigann. Labbaðu í bæinn í
stað þess aö fara á bílnum
(fyrir utan þjálfunina sem felst í
göngunni sleppurðu við stress-
ið sem fylgir bílastæðaleit og
umferðarhnútum). Taktu strætó
einni stoppistöð frá þeirri sem
er beint fyrir utan húsið þitt.
Gakktu rösklega þegar þú
gengur (svo framarlega sem
þú ert ekki á þeim mun hærri
hælum, því þá er hætta á ör-
kumlum). Mundu það að hver
einasta hreyfing felur í sér
möguleika á þjálfun fyrir lík-
amann. Það skiptir hins vegar
máli hvernig hver hreyfing er
framkvæmd og þess vegna er
mikilvægt að muna að anda
djúpt og rólega, framkvæma
hreyfingarnar af festu og Ijúka
hverri hreyfingu fullkomlega -
ekkert fálm út í loftið! Með því
móti ertu í leikfimi allan daginn.
Smám saman kemst svo
hver og einn að því hvað hent-
ar best. Það sem máli skiptir
er ekki endilega hvað þú gerir
- hvort þú gengur, skokkar,
hjólar, syndir, spriklar í leikfimi-
sal eða lyftir lóðum - heldur
hvernig þú gerir það og hve
reglulega. □
19. TBL. 1993 VIKAN 63