Vikan - 20.06.1995, Síða 32
ÍSLENDINGAR ERLENDIS
starfa sem verktakar til að
geta einnig sinnt börnum
sínum og heimili. Palla, sem
heitir reyndar Brynhildur Pál-
ína Másdóttir, er gift Norð-
manni og eiga þau tvo
stráka. Eiginmaður Hildar,
sem er Björnsdóttir, er ís-
lenskur læknir, starfandi í
Osló og eiga þau þrjú börn.
Blaðamanni Vikunnar lék
forvitni á að vita hvar þær
hefðu lært, í hverju námið
væri falið og fyrir hverja þær
væru aðallega að vinna í
dag.
FJÖLBREYTT OG
KREFJANDI STARF
„Við vinnum fyrst og
fremst fyrir aðila sem reka
margar verslanamiðstöðvar.
Við gerum langtfmasamn-
inga við þessa stóru við-
skiptavini og búum til svo-
kallaðar sjáanlegar mark-
aðsáætlanir fyrir þá. Það er
að segja, við teiknum í þrí-
vídd það sem við höfum upp
á að bjóða og berum það
ÍSLENSKUM KONUM GENGUR VEL í NORSKU VIÐSKIPTALÍFI:
KVENSJARMANN
ADVOPNI
MYND
OG
TEXTI:
BRYNDÍS
HÓLM
Þær eru ákveðnar,
duglegar og með bein
í nefinu, enda eru
þær íslenskar þó að þær séu
nú að feta sig upp metorða-
stigann í norsku viðskiptalífi.
Þær hafa í mörg ár búið í
Osló í Noregi en þar lærðu
þær báðar sama fag fyrir
nokkrum árum. Þetta eru
þær Palla og Hildur og kalla
sig gluggaskreytingahönn-
uði, þótt starf þeirra felist
reyndar í fleiru en að skreyta
glugga. Palla og Hildur störf-
uðu báðar að námi loknu hjá
fyrirtækjum sem sérhæfðu
sig í skreytingum ýmiss kon-
ar. En þegar leiðir þeirra
lágu saman ákváðu þær að
sameina krafta sína og í dag
reka þær saman fyrirtæki
sem hlotið hefur nafnið Pall-
as Deko.
Það hefur verið meira en
nóg að gera hjá þeim stöll-
um frá því þær hófu sam-
starf og hafa þær getið sér
gott orðspor. Þær eiga orðið
marga fasta viðskiptavini og
alltaf eru einhverjir að bæt-
ast í hópinn. Stærstur hluti
starfsins felst í viðskiptum
við stórar verslunarmið-
stöðvar en fyrir þær gera
Palla og Hildur heilsársáætl-
anir varðandi gerð skreyt-
inga, bæði í verslunarhús-
næðinu sjálfu og í gluggum.
Þetta krefst að þeirra sögn
mikíllar vinnu. Helstu álags-
tfmar eru í kringum jól, vor,
páska, sumar og þjóðhátíð
Norðmanna, enda hefur
hver tími sitt sérstaka þema
sem unnið er útfrá, bæði í
skreytingum og litum.
Palla og Hildur kjósa að
síðan undir þá er málið varð-
ar. Þannig sér fólk, svart á
hvítu, um hvað málið snýst
og það er enginn vafi á því
hvaða hugmyndir við erum
með. En við störfum líka fyrir
einstaklinga sem reka minni
verslanir og veitum þeim oft
ráðgjöf varðandi t.d. Ijós,
innréttingar eða glugga-
skreytingar. Einnig hjálpum
við oft við að skipuleggja
auglýsingaherferðir," segir
Palla.
Og Hildur bætir við:
„Hérna í Noregi hafa versl-
anamiðstöðvar á borð við
Kringluna í Reykjavík sprott-
ið upp eins og gorkúlur. Þær
eru orðnar mjög margar og
mikið lagt upp úr að hafa
þær sem fínastar. Sam-
keppnin á milli verslana er
mjög hörð, enda miklu eytt í
skreytingar. Við Palla byrjuð-
um á að hugsa um eina
„Kringlu" og það leiddi til
þess að það fréttist af okkur.
í kjölfarið höfðu forsvars-
menn annarra miðstöðva
samband við okkur og nú er-
um við með samninga við
þrjár stórar „Kringlur". Samn-
ingur við þá fjórðu gæti orðið
að veruleika innan skamms.
Við byrjum hvert ársplan
með því að halda fund með
framkvæmdastjóra viðkom-
andi miðstöðvar og hann
leggur fyrir okkur þá fjár-
hagsáætlun sem um ræðir.
Síðan er leitað í ákveðið
þema fyrir hvert tímabil og
e.t.v. gluggað í söguna varð-
andi það hvað einkennir
hverja árstíð. Þannig er
hægt að vinna skreytingar á
fjölbreyttan máta. Jólin eru
alltaf vinsælust og þá er allt-
af mest að gera hjá okkur.
Ósjaldan höfum við pant-
að kílómetra af slaufubandi,
skreytt 250 jólatré með yfir
250 seríum. Þessi verkefni
taka langan tíma og því þurf-
um við að ráða til okkar
aukafólk. Stundum höfum
við fengið lærlinga til liðs við
okkur f desember og koma
þeir frá þeim skóla í Osló þar
sem við lærðum þetta fag,“
segir Hildur af brennandi
áhuga.
SKÓLINN KREFST
MIKILLA HÆFILEIKA
Hvar lærðuð þið
að verða glugga-
skreytingahönnuðir
og í hverju fólst
námið?
„Skólinn, sem
við fórum í, heitir Sverre
Wolf Reklame- og dekora-
sjonsskole og er í Osló.
Þetta er mjög vinsæll skóli,
enda eru umsækjendur
mörg hundruð á hverju ári.
Einungis 25 nemendur eru
teknir inn hverju sinni. Þetta
er tveggja ára nám og út-
skrifaðist ég þaðan 1988,“
segir Palla. „Hildur kláraði
skólann fyrir fjórum árum. (
honum lærðum við allt á milli
himins og jarðar sem snýr
að því að teikna og skreyta.
í byrjun er lögð áhersla á að
nota stöðuga hendi þegar
um teikningu og hönnun er
að ræða. Við lærðum að
sameina hugsun og hönnun,
það er að segja hvernig
koma eigi vissum hugmynd-
um á framfæri svo vel sé.
Svo lærðum við iðnað á
borð við trésmíði, málning-
arvinnu, húsgagnabólstrun
og Ijósmyndun. Einnig feng-
um við kennslu í gerð inn-
32 VIKAN ó. TBL. 1995