Vikan - 20.01.1996, Page 33
NAUTIÐ
21. apríl - 21. maí
Febrúar: Fólk í nautsmerkinu ætti að einbeita sér að því að njóta
fyrstu daga febrúarmánaðar til hins ýtrasta. Ástæðan er að kær-
leikurinn er ríkjandi f stöðu merkisins um þessar mundir. Vertu
nærgætinn við nánustu fjölskyldumeðlimi, sýndu maka þínum meiri
ástúð sem þú átt í svo ríkum mæli. Seinna verður þér umbunað
svo um munar. Útistandandi skuld, sem þú hafðir gleymt, verður
greidd að fullu í byrjun mánaðar. Þú skalt umfram allt vernda þá
góðu stemmningu sem er heima fyrir. Það getur verið að maki þinn
hafi annað í huga eða að þú gleymir þér yfir of mikilli vinnu en það
er nauðsynlegt að þú gefir þig að fjölskyldunni.
Mars: í byrjun mánaðar verður þú frekar til baka og forðast að
lenda í nánum tilfinningasamböndum. Þann 7. verða kraftarnir frá
Venus það sterkir að ekki er undankomu auðið. í mars verður spil-
að á strengi erótíkur og sterkra tilfinningasamþanda. Hafðu fjöl-
skyldu þína í huga áfram, þú þarft svo lítið til að gleðja þína nán-
ustu. Þú hefur úr töluverðri orku að spila sem gerir þér kleift að láta
þína villtustu drauma rætast og þú getur með seiglunni unnið þín-
um málum farveg. Þú ert ekki neinni hættu með að „brenna upp“
en hafðu í huga að þér hættir til að ganga um of á orkuforðann.
Apríl: Þessi mánuður er flestum nautum mjög hagstæður og frið-
samur. Vorið verður í jafnvægi og þú vilt helst eyða tíma þínum í þá
sem þér þykir vænst um, sérstaklega eigin börn. Frá 20. koma nýir
fletir upp og þú verður mjög upptekinn við að hafa samband við
marga. Ferðalag út í náttúruna um páska er upplagt fyrir nautin
sem líður best í gróandanum. Fólk í nautsmerkinu, sem reka eigið
VIKAN 31