Vikan - 20.01.1996, Side 40

Vikan - 20.01.1996, Side 40
Maí: Þú lætur velferð vina þinna skipta þig mestu máli um þessar mundir og ef þú átt möguleika á eyðir þú tíma í þá. Þann 21. og 22. eru líkur á góðum stundum með þeim sem þér þykir vænst um. Krabbar á lausu ættu að nota þann tíma í að líta í kringum sig. í vinahópnum leynist einhver sem verður þér meira en vinur. Ekki er ólíklegt að það séu einhver ágreiningsatriði milli þín og makans en þér tekst að koma þeim út úr heiminum á skjótan hátt. Þú fyllist vinnugleði og þú átt möguleika á að leysa verkefnin, hvort sem þau krefjast andlegra eða líkamlegra krafta. Júní: Framundan er gott og öruggt tímabil og þú leysir öll mál á skjótan hátt. Þér líður vel innan um vinnufélagana og andrúmsloftið á vinnustað er með betra móti. Þér til mikillar armæðu mun ýmis- legt, sem þú áttir von á í þessum mánuði, bregðast. En reyndu að láta það ekki fara í taugarnar á þér því það þarf ekki endilega vera að eilífu glatað. Ef þú heldur skynsamlega á peningamálum fram til 8. júní kemur það til með að skila sér þegar líður á. Á sama hátt mun flest það sem þú gerir fyrir makann skila sér tífalt til baka. Það gengur erfiðlega að skipuleggja fríið til að byrja með en skyndilega fellur allt eins og flís við rass. Júlí: Lægð síðustu mánaða er skyndilega á braut og þú færð nóg að gera. Þú vilt fá sem mest út úr sumrinu og þér gengur vel að samræma letilífið og nauðsynjaverk. Þú og maki þinn eru samstíga í þvf að gera lífið spennandi. Samvera er í brennidepli og það gildir að örva og virkja hugmyndaflugið. Hlustaðu grannt eftir tilfinningum þínum. Ef þú heftir þær áttu von á því að missa af réttu tækifærun- um. Sumarrómantíkin blómstrar á tímabilinu frá 13. til 22. þessa mánaðar. Ágúst: Hvað varðar tilfinningalífið er allt með ró og spekt í byrjun mánaðar en frá 8. verður töluvert að gera í rómantíkinni. Þetta er spennandi en jafnframt krefjandi tímabil. Þú reynir að halda ofsa þfnum niðri með öllum ráðum en það gengur heldur illa. Það eru sterkir straumar undir niðri og þú færð tækifæri til að dýpka sam- band þitt,- ef þú leyfir tilfinningum þínum að komast á yfirborðið. Fjármál þín eru í óvenju góðu lagi um þessar mundir og aldrei þessu vant áttu afgang. Óvænt fjárhæð gleður þig enn frekar. September: Fyrstu 8 til 10 dagana er ástarlíf þitt í mjög gefandi farvegi og það þarf ekki mikið til að skapa rómantíska stemmningu. 38 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.