Vikan - 20.01.1996, Page 40
Maí: Þú lætur velferð vina þinna skipta þig mestu máli um þessar
mundir og ef þú átt möguleika á eyðir þú tíma í þá. Þann 21. og 22.
eru líkur á góðum stundum með þeim sem þér þykir vænst um.
Krabbar á lausu ættu að nota þann tíma í að líta í kringum sig. í
vinahópnum leynist einhver sem verður þér meira en vinur. Ekki er
ólíklegt að það séu einhver ágreiningsatriði milli þín og makans en
þér tekst að koma þeim út úr heiminum á skjótan hátt. Þú fyllist
vinnugleði og þú átt möguleika á að leysa verkefnin, hvort sem þau
krefjast andlegra eða líkamlegra krafta.
Júní: Framundan er gott og öruggt tímabil og þú leysir öll mál á
skjótan hátt. Þér líður vel innan um vinnufélagana og andrúmsloftið
á vinnustað er með betra móti. Þér til mikillar armæðu mun ýmis-
legt, sem þú áttir von á í þessum mánuði, bregðast. En reyndu að
láta það ekki fara í taugarnar á þér því það þarf ekki endilega vera
að eilífu glatað. Ef þú heldur skynsamlega á peningamálum fram til
8. júní kemur það til með að skila sér þegar líður á. Á sama hátt
mun flest það sem þú gerir fyrir makann skila sér tífalt til baka. Það
gengur erfiðlega að skipuleggja fríið til að byrja með en skyndilega
fellur allt eins og flís við rass.
Júlí: Lægð síðustu mánaða er skyndilega á braut og þú færð nóg
að gera. Þú vilt fá sem mest út úr sumrinu og þér gengur vel að
samræma letilífið og nauðsynjaverk. Þú og maki þinn eru samstíga
í þvf að gera lífið spennandi. Samvera er í brennidepli og það gildir
að örva og virkja hugmyndaflugið. Hlustaðu grannt eftir tilfinningum
þínum. Ef þú heftir þær áttu von á því að missa af réttu tækifærun-
um. Sumarrómantíkin blómstrar á tímabilinu frá 13. til 22. þessa
mánaðar.
Ágúst: Hvað varðar tilfinningalífið er allt með ró og spekt í byrjun
mánaðar en frá 8. verður töluvert að gera í rómantíkinni. Þetta er
spennandi en jafnframt krefjandi tímabil. Þú reynir að halda ofsa
þfnum niðri með öllum ráðum en það gengur heldur illa. Það eru
sterkir straumar undir niðri og þú færð tækifæri til að dýpka sam-
band þitt,- ef þú leyfir tilfinningum þínum að komast á yfirborðið.
Fjármál þín eru í óvenju góðu lagi um þessar mundir og aldrei
þessu vant áttu afgang. Óvænt fjárhæð gleður þig enn frekar.
September: Fyrstu 8 til 10 dagana er ástarlíf þitt í mjög gefandi
farvegi og það þarf ekki mikið til að skapa rómantíska stemmningu.
38 VIKAN