Vikan - 10.09.1998, Qupperneq 45
Iliilila Gitdniuiulsdomr
félcij’sráógjafi srarar
bréfum lesenda.
Fyllsta trúnaðar ergœtt
og bréfbirt niidir didnefiii.
Senclið brejtn til: „Kcira
Htdclci“ Vilcan, Seljavegi 2
101 Reykjavík.
Netfang: vikan@frodi. is
Má hún vinna?
Kæra HuJda...
Ég er að leita ráða hjá þér varð-
andi unga vinkonu mína sem er
öryrld. Hún er metin 100% ör-
yrld en telur sig þó geta unnið
létt verk af og til. HeUsa hennar
er misjöfn og það koma tímar
þar sem hún er vel fær um að
vinna létta flilaupavinnu í
nokkrar idst. á viku. Má hún
það án þess að bæturnar skerð-
ist? Ef svo er, hversu miklar
tekjur má hún hafa án þess að
Idipið sé af þessum lágu bótum?
Gott væri að fá svar sem fyrst
því hún veit um létt starf fyrir
veturinn.
Ama
Kæra Arna
Það er fallega gert af þér að
leita ráða fyrir hönd vinkonu
þinnar varðandi spuminguna
um það hve mikið megi vinna,
eða réttara sagt hve mikilla
tekna hún megi afla sér án þess
að farið verði að skerða trygg-
ingabœtur hennar, eða „klípa
af'þeim, eins og þú orðar það.
Hún telur sig geta unnið létt
verk eða íhlaupavinnu nokkra
tíma á viku og eflaust vœri það
henni andleg upplyfting og
heilsubót að geta gert eitthvað
slíkt, fundið um leið að hún er
alls ekki „einskis nýt“ eins og
sumum finnst sem vinna ekki.
Engin manneskja er þó einskis
nýt eða einskis verð fyrir þœr
sakir einar að geta ekki unnið
fyrir tekjum.
Hversu miklar slíkar tekjur
mega vera og nákvæmar upp-
lýsingar um lög og reglur varð-
andi spumingu þína hef ég því
miður ekki handbærar, þar sem
taka þarf tillit til svo margra at-
riða. Oftast geta einstaklingar
þénað um 20.000 kr. á mánuði
án skerðingar. Því ráðlegg ég
þér að hafa samband við Trygg-
ingastofnun ríkisins, frœðslu- og
útgáfudeild.
Kær kveðja, Hulda
Ástfangin af kvæntum
presti
Kæra Hulda...
Viltu hjálpa mér. Ég er svo
ástfangin að það er að fara
með mig. Ég hef aldrei upp-
lifað þetta áður (er 34 ára).
Maður hefur orðið skotin í
eitt og eitt skipti og eitt sinn
bjó ég með manni um tíma.
Þá var engin alvara á ferð en
núna hugsa ég ekki um ann-
að en þennan mann. Við
náum vel saman og störfum
saman að félagsmálum.
Hann hefur ekki beint gefið í
skyn að hann sé hrifinn af
mér en það er eitthvað á
ferðinni. Þessi maður er gift-
ur og hann er prestur hér (í
frekar litlu plássi). Við störf-
um dálítið saman, eins og ég
sagði, og ég get ekki hugsað
mér að hætta þeirri þátttöku
en ég get ekki lengur verið
nálægt honum án þess að
hjartað hamist og ég verð
svo skrýtin. Ég er ekki með
sjálfri mér. A ég að reyna að
komast að því hvort hann sé
líka hrifinn af mér, eins og
mig grunar eða vona allavega
að hann sé.
Með þökk.
Ein í vanda
Kæra „ein í vanda“
Þú ert geysifjarri því að vera
„ein“ í þessum vanda! Með
einlœgum orðum vekurðu
eina þeirra alvarlegu spurn-
inga sem lífinu hafa lengi
fylgt. Sterkar tilfinningar eins
og þínar geta komið óboðnar,
reynst illviðráðanlegar og
ógnað leiðarljósi skynsem-
innar. Hjartslættinum og þrá-
hyggjunni fylgir sterk von um
gagnkvæmni og svörun ann-
arrar mannveru. Hrifningin,
spennan og óskhyggjan fyrir-
byggja raunsœtt, „kalt mat“
og vonin verður að grun og
grunurinn að vissu. Óhikað
segir þú að eitthvað sé á ferð-
inni þótt hann hafi ekki gefið
það í skyn. Þú veist
innst inni að þú veist
ekkert um þetta. Það
er því sterk löngun,
en mjög varhuga-
verð, að „reyna
að komast að
því“. Slíkt gœti
reynst frum-
hlaup, orðið
vandrœðalegt,
en liði hjá, spillt
núverandi sam-
starfi sem þú tœp
lega vilt, vakið upp
tilfinningar hjá honum
í ímyndaðri hrifningu í
fátinu, sem e.t.v. vœri
bara dulbúin freisting i
til að falla fykir tilbreyt-
ingu, með mikilli sektar-
kennd, togstreitu og mið-
ur heppilegum afleiðingum.
Hann á leik og frumkvæð-
ið er hans ef hann kærir sig
um. Hafi hann engar djúp-
ar tilfinningar til þín nær
það ekki lengra, en þið get-
ið starfað áfram saman ef
þú kærir þig um. Sé hann
aftur á móti hrifinn af þér
horfir málið öðruvísi við,
en hann verður sjálfur að
ákveða hvað hann kýs
að gera - á eigin
ábyrgð.
Margt fer öðruvísi
en við hugsum
hverju sinni. Sum-
ir draumar ræt-
ast, aðrir ekki.
Aðstæður geta
átt hlut að máli.
En sterk hughrif
og tilfinningar,
eins og þínar,
bera vott um
heilbrigt sálarlíf
án deyfðar og
doða. Þjáningum
vonbrigða getur
tíminn breytt í dýr-
mœta minningu. Að
nýta mótlæti til þroska er
meðal námsefnis í skóla lífs
ins.
Kær kveðja, Hulda
Netfang: vikan@frodi.is
45