Vikan - 10.09.1998, Qupperneq 52
RNUAFM
Leikkonan Elisabeth Shue verður 35 ára 6.
október. Hún var mikil iþróttakona á
æskuárunum, keppti í fótbolta og fímleik-
um og þegar vinkona hennar stakk upp á
að hún reyndi að komast að í auglýsingum
út á fími sína tók hún stökkið. Hún kom
fyrst fram í auglýsingum fyrir Hellmanns
majones og Burger King hamborgara og
þar vakti hún athygli kvikmyndaframleið-
enda. Fyrsta hlutverk hennar í kvikmynd
var á móti Ralph Macchio í myndinni „Thé
Karate Kid” en siðan hafa henni boðist
ótal hlutverk. Einn af þremur bræðrum
Elísabetar er leikarinn Andrew Shue, sem
leikur í þáttunum „Melrose Place” sem
Stöð 2 sýnir og er líka þekktur sem fót-
boltamaður í Ameriku...
Vissuð þið að sjarmörinn Lulce Perry er
orðinn pabbi? Ekki við! Hann eignaðist
son í júní í fyrra (drengurinn er að verða
I árs og 4 mánaða) og heitir Jack Perry.
Luke sjálfur verður 32 ára þann 11. októ-
ber. Hann er kvæntur Minnie Rachel
Sharp, en faðir hennar er þekktur kvik-
myndahandritshöfundur (langt orð!) í
Bandaríkjunum. Luke Perry er sennilega
þekktastur hér á landi fyrir hlutverk sitt
í framhaldsþáttunum „Beverly Hills
90210” og segir í æviágripi hans að varla
hafi hann órað fyrir því á bernskuárunum
að hann ætti ekki eftir að komast fetið
fyrir trylltum aðdáendum.
Hann ólst upp í pínulitlu þorpi í Ohio
fylki, elskar steik og kartöflur, eftirlætis
drykkurinn hans er vatn og hann á þrjú
svín fyrir gæludýr...
Hann er einn eftirsóttasti leikar-
inn af yngri kynslóðinni, heitir
Matt Damon og leikur nú í kvik-
myndinni „Saving Private Ryan”
en fékk Óskarsverðlaun fyrir
mynd sína „Good Will Hunting”.
Matt verður 28 ára 8. október og
er á lausu þessa dagana eftir því
sem heimildir herma. Hann hefur
verið orðaður við þrjár konur á
sinni stuttu ævi, tvær leikkonur
og eina fyrirsætu. Foreldrar Matt
skildu þegar hann var 10 ára og
þá fluttist hann með móður sinni
í húsnæði, þar sem fímm fjöl-
skyldur bjuggu saman. Nokkurs
konar tilraunastarfsemi - sem
greinilega hefur ekki haft slæm
áhrif á drenginn...
■vV1'"
i '
f' ,. ;
Þrír látnir og heimsfrægir eru fæddir í Vogarmerkinu - 9.
og 10. október: Þetta eru þeir Harold Pinther, Verdi og
John Lennon. Verdi er að sjálfsögðu elstur þeirra allra,
fæddur árið 1813, svo kemur Harold, sem fæddist 1930 og
loks John Lennon sem hefði orðið 58 ára þann 9. EF ...