Vikan - 10.09.1998, Side 53
Hver á bíl sem getur allt?
Dýrðlingurinn!!! Jahá - og nú
er hann að verða 71 árs.
Nei, það getur ekki verið. Jú,
það stendur: Roger Moore er
fæddur 14. október árið
1927. - Roger Moore var
alltaf mikill námshestur og
var ævinlega hæstur í sínum
bekk, en honum gekk samt
best í listasögu og teikningu.
Þegar hann var 13 ára vant-
aði hann vinnu og vinur
hans stakk upp á að hann
reyndi að fá aukahlutverk í
kvikmyndinni Sesar og
Kleópatra. Þar fékk hann
leikarabakteríuna, sem hann
hefur aldrei losnað við...
Einn af tenorunum þremur, sjálfur
Luciano Pavarotti, verður 63 ára 12.
október og á þar af leiðandi sama
fæðingardag og tónskáldið og org- /
anistinn Páll ísólfsson.
Pavarotti söng frá unga aldri í kór '
óperuhússins í heimabæ sín-
um, Modena á Ítalíu, en
hann lærði til kennara
og hafði ekki ætlað
sér að leggja sönginn ,
fyrir sig. Það var /
ekki síst fyrir
hvatningu föður
hans, sem hafði
líka sönginn sem
áhugamál, að
Pavarotti ákvað að
leggja sönglistina fyrir
sig. Hann kom fyrst fram
sem Rudolfo í óperunni
„La Bohéme” eftir
Puccini árið 1963. Upp á
síðkastið hefur Pavarotti
skipulagt góðgerðartón- i X
leika víða um heim til að-
stoðar stríðshrjáðum börn- I
um í Bosníu. Með sér í lið
hefur hann fengið til dæmis
Michael Bolton og Bono úr
hljómsveitinni U2...
Það verður ekki sagt annað en að hæfileikar einkenni nokkra
sem eru fæddir 16. október... Þeirra á meðal eru Oscar Wilde
(fæddur árið 1854), leikkonan Angela Lansbury (fædd 1925) og
leikarinn Tim Robbins, sem verður fertugur í ár. Tim Robbins
býr með Susan, sem er 12 árum eldri en hann og þau eiga syn-
ina Jack Henry og Miles Guthrie Robbins, auk þess sem Tim er
fósturpabbi Evu Mariu, dóttur Susan og ítalska leikstjórans
Franco Amurri...
7777.X
Ungir drengir, í risastórum hlutverkum, fá Rós Vikunnar að þessu sinni.
Það eru þeir Grímur Helgi Gíslason og Sveinn Orri Bragason sem
skiptast á að leika Snúð Ljónshjarta á stóra sviði Þjóðleikhússins
þessa dagana. Þeir standa sig alveg frábærlega, eins og allir í sýn-
ingunni, en það er ekki fyrir hvern sem er að leika svona
stórt hlutverk og vera inni á sviðinu allan tímann. Þeir
ná að halda athygli barnanna í salnum allan tímann og
kalla fram bæði sorg og gleði hjá ungum og öldnum sem
horfa á þessa frábæru barnasýningu. Viðari Eggertssyni
hefur tekist vel upp að leikstýra þessum ungu stjörnum.
Rós Vikunna
Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er,
hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101 Reykjavík4
og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu
\j>g fær sendan glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni.
BWMAM»STÖ»IN