Vikan


Vikan - 16.02.1999, Blaðsíða 9

Vikan - 16.02.1999, Blaðsíða 9
Texti: Þórunn Stefánsdóttir Myndir: Gunnar Gunnarsson HVAÐ SEGIR BÚÐARÞJÓFURINN? Þessi þjófur vill að sjálfsögðu ekki gefa upp nafn sitt. Þ X i að er alltaf betra að taka með sér meira af fötum inn í Imátunarklefann en þau sem maður ætlar sér að stela. Ef ég ætla að stela skyrtu vel ég tvær samskonar skyrtur í mismunandi stærðum til þess að taka með mér inn í mátunarklefann. Þar fer ég í aðra skyrtuna, fer með hina fram og set bæði herðatréin inn í hana. Þá lítur út eins og ég hafi farið inn með eina og komið fram með eina. í sumum verslunum er starfsmaður sem fylgist með því hversu marga hluti farið er með inn í mátunarklefann. Það er þess vegna sem ég fer inn með tvær skyrtur af mismunandi stærð. Þá lítur út eins og ég sé að máta þær báðar til þess að athuga hvor stærðin passar mér betur. Nú hugsar þú eflaust sem svo: Gott og vel, ef búið er að telja hversu marga hluti þú ferð með inn í klefann og þú skilar þeim ekki öllum til baka þegar þú kemur út úr klefanum, hvað þá? Eg get fullvissað ykkur um það að þessi talning er eingöngu til málamynda. Verslunin vill láta líta svo út sem það sé fylgst með þér og það sé eins gott fyrir þig að reyna ekki að stela. Þeir hafi yf- irsýn yfir allt sem gerist inni í mátunar- klefanum. Þetta er einfaldlega þeirra að- ferð til þess að hræða viðskiptavininn. í fyrsta lagi þá veistu að enginn telur hlutina sem þú skilar til baka. Þannig að ef ég fer inn í klefann með sex hluti og ætla mér að stela tveimur þeirra þá gæti ég þess að setja þá tvo hluti innst í fata- bunkann sem ég held á. Þá hluti sem þú ætlar ekki að stela skaltu hafa stóra og mikla um sig, t.d. frakka eða jakka. Þeir eru góðir til þess að hylja þá hluti sem þú ætlar þér að stela. Stóru hlutirnir verða að vera áberandi þegar þú kemur aftur út úr klefanum. Þetta er auðveldasta leiðin til þess að fela það sem þú tekur með þér inn í klefann. f öðru lagi er það algengt að viðskipta- vinir skilji eftir fatnað, sem þeir ætla sér ekki að kaupa, inni í mátunarklefanum. Þannig að það lítur ekkert endilega illa út þó að ég komi ekki fram með alla þá hluti sem ég tók með mér inn í klefann. Stað- reyndin er sú að fyrir okkur þjófana er þetta mjög hagstætt. Ég skil oft eftir hlut- ina sem ég ætla mér ekki að stela.” Þessi þjófur segist notfæra sér það út í ystu æsar að bannað er að hafa eftirlits- myndavélar inni í mátunarklefunum og segir það gera hlutina ennþá auðveldari. Hann varar samt væntanlega þjófa við þjófavarnarmerkingunum sem festar eru á fatnaðinn. Það sé ekki ólíklegt að upp komist um þjófnaðinn ef það gleymist að fjarlægja þær inni í mátunarklefanum. Hann bendir væntanlegum þjófum á að fullvissa sig um það oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Þá sé þetta einfaldasta mál í heimi! Svo mörg voru þau orð. Vonandi er vandasamara að fást við starfsfólk versl- ana og þjófavarnarkerfi heldur en þessi kappi vill vera láta. Búðarþjófnaður er nefnilega ekkert grín heldur er hann, eins og Hjalti Pálmason orðar það, dauðans al- vara! Vikan 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.