Vikan - 16.02.1999, Page 11
STAÐREYNDIRNAR TALA SINU MALI
Sem betur fer eru þeir
fleiri sem láta ekki
undan lönguninni en
þeir sem láta slag
standa. En það er samt stað-
reynd að búðarþjófar eru
nógu margir til þess að þeir
kosti samfélagið heilmikla
peninga. Sá kostnaður skilar
sér í hærra vöruverði til okk-
ar allra, verslanir verða
nefnilega árlega fyrir heil-
miklu tjóni af völdum búðar-
þjófa sem kemur fram í verð-
mætarýrnun. Verslunareig-
endur neyðast til þess að fjár-
festa í dýrum öryggisbúnaði
og fleira starfsfólki. Einnig
kosta þjófarnir háar upphæð-
ir þegar kemur að refsistigi
þessara mála, þ.e.a.s. þegar
kemur til kasta lögreglu, lög-
manna og dómstóla og síðan
refsinga.
Hverjir eru það helst sem
stela og hvers vegna? Allir
þeir sem við töluðum við í
sambandi við þetta mál eru
sammála um að fæstir sem
gripnir eru við þessa iðju séu
að því vegna fátæktar. Sumir
bera því fyrir sig, þegar þeir
standa frammi fyrir dómar-
anum, að þeir séu haldnir
svokallaðri stelsýki og séu af
þeim sökum í meðferð hjá
sálfræðingi eða geðlækni.
Stelsýki (cleptomania) er
skilgreind sem svo að þeir
sem henni eru haldnir ráði
ekki við löngunina til þess að
stela, jafnvel þótt vitað sé að
þeir hafi ekki nokkur not fýr-
ir þýfið. Þjófnaðurinn veitir
þeim ánægju og andlega full-
nægingu og losar um álag og
uppsafnaða spennu. En fæst-
ir þjófarnir geta afsakað sig
með læknisfræðilegum rök-
um. Það má ef til vill segja að
flestir þeirra séu einhvers
konar spennufíklar sem lað-
ist að því sem ekki má.
Líklega kannast margir
við að hafa stolið í verslun-
um þegar þeir voru á grunn-
skólaaldrinum. A vissu ald-
ursskeiði þykir það svolítið
spennandi að fara í hópum
inn í verslanir og markmiðið
er að allir komi út með ein-
hvern illa fenginn hlut.
ef þjófurinn brýtur ekki af
sér næstu tvö árin. í öðru
lagi getur verið ákveðið að
ákæra viðkomandi sem þá
þarf að mæta fyrir dómara í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Niðurstaða dómsins getur
svo verið á ýmsa vegu:
Viðurlagaákvörðun,
þ.e.a.s. peningasekt. Upp-
hæðin fer eftir eðli brotsins
og getur verið frá 10 þúsund
og upp í 40 þúsund krónur.
Skilorðsbundinn fangels-
isdómur. Ekki er óalgengt
að viðkomandi sé dæmdur í
skilorðsbundið fangelsi í 30
daga, sem er lágmarks fang-
elsisrefsing.
Skilorðsbundin fangelsis-
refsing. Viðkomandi fer
ekki í fangelsi ef hann brýt-
ur ekki af sér á þeim tíma
sem skilorðstíminn stendur.
Fangelsisvist. Óskilorðs-
bundinn dómur, þ.e.a.s.
hinn dæmdi þarf að sitja
inni.
Þessir dómar ákvarðast af
fjölda brota og eftir því
hversu miklu var stolið, það
er sem sagt ekki litið sömu
augum á það hvort stolið
var 200 þúsund króna arm-
bandsúri eða tvö þúsund
króna geisladiski. Allar
þessar refsingar færast á
sakaskrá. Því oftar sem
brotin eru framin því meiri
verða refsingarnar, í þessum
málum gilda ítrekunaráhrif-
in, þetta er eins og snjóbolt-
inn sem rúllar og stækkar og
stækkar.”
Spennan felst í því að vera
ekki gripinn. Þannig enduðu
margir varalitirnir, jólakort-
in, kexpakkarnir og aðrir
ekki mjög verðmætir hlutir í
vasa spenntra barna og ung-
linga. Þeir sem ekki vildu
vera með voru samt með.
Þar kom til þrýstingurinn frá
félögunum og óttinn við að
vera „öðruvísi” og ekki
nógu svalur.
En eitt ættu slíkir hópar,
ef þeir fyrirfinnast nú á dög-
um, að hafa í huga. Búðar-
þjófnaður, hversu ómerki-
legt og verðlítið sem þýfið
er, er refsivert athæfi. Þeir
sem eru gripnir við þá iðju
og er refsað fyrir lenda
á sakaskrá þar sem
brotið stendur skrifað
um alla framtíð. Ung-
lingar frá 15 ára aldri
eru sakhæfir og ung-
lingurinn sem tekur
þátt í leiknum getur
þannig átt það á hættu
að fá á sig þjófsstimpil-
inn fyrir lífstíð.
dk
-1
IéÉSL
VARIÐ YKKUR A
BUÐARÞJOFUNUM!
Hvernig getur starfsfólk verslana áttað sig á því hver
er þjófur hver ekki? Það getur reynst þrautin
þyngri því eins og hér hefur komið fram sker þjóf-
urinn sig ekki úr hópnum á neinn hátt. En hér eru nokkur
atriði sem hægt er að hafa í huga:
# Búðarþjófar klæðast oft víðum yfirhöfnum og eru með
stórar töskur.
• Hafið gætur á viðskiptavinum sem koma með innkaupa-
poka með sér inn í verslunina. Það er auðvelt að lauma
einum og einum hlut ofan í pokana.
# Búðarþjófar eyða jafnmiklum tíma í að fylgjast með
starfsfólkinu og vörunum.
# Hafið gætur á þeim sem koma í smærri hópum inn í
verslunina og dreifa sér í sitt hverja áttina þegar inn er
komið.
# Gætið ykkar á viðskiptavininum sem kvartar hástöfum
eða beitir öðrum brögðum til þess að fanga athygli af-
greiðslufólksins og gefur þannig félaga sínum frjálsar hend-
ur til þess að stela óáreittur.
Vikan u