Vikan


Vikan - 16.02.1999, Side 14

Vikan - 16.02.1999, Side 14
Kanilsnúðaframleiðsla dagsins í Brauðgerð Haddýar. Haddý sjálf fær sér sjaldan snúð en þeim mun meira af soðnu brauði. Haddý á Svalbarðsströnd byrjaði að baka til að hafa eitthvað fyrir stafni. Matbær Haddýar Hún er þekkt fyrir soðið brauð, kleinur og kanilsnúða og þegar gengið er heim að húsinu hennar á Svalbarðsströnd leggur ilminn af brauðinu beint á móti manni. Haddý situr ekki auðum höndum heldur bakar af krafti í eigin brauðgerð sem hún kom á fót eftir að hún varð atvinnulaus. “Maður verður að bjarga sér þegar slíkt gerist,” segir hún með hlaðið borð af kanilsnúðum fyrir framan sig. addý og eiginmaður hennar, Benni, stofnuðu Brauðgerð Haddýar 1989 og verður hún því tíu ára í ár. Þau byrjuðu í eldhúsinu heima í Sæborg á Svalbarðsströnd, bökuðu þar og steiktu soðið brauð, kleinur og kanilsnúða. Fljótlega fluttu þau sig yfir í bílskúrinn, þar sem rýmra var um þau, og þar hafa þau komið sér upp góðri aðstöðu og lítilli brauðgerð sem þau vinna við í fullu starfi. Langar inn á stærri markað “Við fórum út í þennan rekstur eingöngu til að prófa eitthvað nýtt,” segir Haddý þegar við sitjum í eldhúsinu hennar í Matbæ, eða eins og heimili hennar er gjarnan kallað. “Hér á Svalbarðsströnd var vinnan búin og ég ákvað að vita hvort ég gæti ekki bjargað mér sjálf og gert eitthvað. Eg vildi ekki láta atvinnu- leysið ná tökum á mér.” Hún og eiginmaður hennar tt»1__Texti: Halla Bára Gestsdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson 14 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.