Vikan - 16.02.1999, Page 18
Texti og myndir: Valgerður Matthíasdóttir og fleiri
Heitasta leikfimiæðið
hjá stjörnunum
- ekkert hopp - engin leiÖindi!
os Angeles er
þekkt fyrir mikið
heilsuræktaræði.
Hér eru allir
meira eða minna
á kafi í einhvers konar
heilsurækt og heilsupæling-
um. Hérna byrja oft á tíðum
ný æði. Það nýjasta er leik-
fimi sem kallast Pilates.
Þegar ég dvaldi í Kaliforníu
fyrir nokkru, kynnti ég mér
þessa nýju heilsuræktar-
bylgju, sem byggir á gamalli
leikfimiaðferð. I Los Angel-
es eru nokkrar stöðvar sem
bjóða upp á Pilates, sem
orðin er gríðarlega vinsæl
um þessar mundir, en höf-
uðstövarnar eru í New
York. Það má með sanni
segja að vinsældirnar hafi
farið ört vaxandi að undan-
förnu. Mikið hefur verið
skrifað um þetta nýja æði.
Greinar í Time og
Newsweek, Vogue og fleiri
tímaritum hafa gert það að
verkum að fólk hefur kynnt
sér þessar æfingar og flykkst
þangað sem Pilates er
kennt. Einnig hafa
Hollywood stjörnur eins og
Sharon Stone, Madonna,
Marla Maples, Gregory
Peck ásamt fleirum þekkt-
um aðilum lýst yfir ánægju
sinni með árangurinn af
þessari leikfimi.
Pilates aðferðin var fund-
in upp af Þjóðverjanum Jos-
eph Pilates á fyrri hluta
þessarar aldar, þegar hann
vann með dönsurum og
íþróttafólki sem orðið hafði
fyrir meiðslum. Meðal
fyrstu notenda Pilates voru
nokkrir þekktustu dansarar
heims, svo sem Martha Gra-
ham og danshöfundurinn
George Balanchine.
Þessi aðferð byggist á því
að styrkja alla vöðva líkam-
ans og einnig er einbeiting
hugans notuð til að ná
heildrænu jafnvægi sálar og
líkama. Pilates aðferðin er
ekki hefðbundin líkams-
þjálfun, ekkert hopp eða
hamagangur fylgir æfingun-
um. Aðferðin sameinar
aldagamlar aðferðir Grikkja
og austurlenskar æfingar
sem líkjast margar hverjar
yoga. Pilates þróaði um
fimm hundruð mismunandi
æfingar sem ýmist eru gerð-
ar á gólfi eða í sérhönnuð-
um tækjum. Mikil áhersla er
lögð á teygjur, að móta lík-
amann án þess að gera hann
endilega vöðvameiri. Einnig
er kennd rétt öndun, enda
þykir Pilates aðferðin mjög
árangursrík fyrir stressað og
þreytt fólk. Margir dansarar
og íþróttafólk sækja í þessar
æfingar, bæði vegna meiðsla
18 Vikan