Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 25
Mynd: Gunnar Gunnarsson
aði með að hann sagði ráð-
gjafanum allt af létta. Þegar
við vorum sest út í bfl varð
hann mjög reiður. Hann var
eins og óþekkur krakki og
ég sá að ennþá átti hann
langt í land; að hann væri
ennþá haldinn mikilli afneit-
un. Stuttu seinna fór hann á
námskeið hjá SÁÁ sem
haldið var eingöngu fyrir
spilafíkla. Að því námskeiði
loknu breyttist margt til
batnaðar. Það var eins og
augu hans opnuðust og
hann varð að viðurkenna
það fyrir sjálfum sér og öðr-
um að ef til vill hefðu
læknavísindin rétt fyrir sér
eftir allt saman. Hann viður-
kennir nú að fullu að
spilafíkn er sjúkdómur sem
þarf að meðhöndla á ákveð-
inn hátt. Hann er einnig
farinn að átta sig á hversu
illa hann breytti gagnvart
sjálfum sér og öðrum. í
hverri viku sækir hann fundi
sem eingöngu eru fyrir
spilafíkla og á þeim fundum
er alltaf viðstaddur sérstak-
ur ráðgjafi.
SPILAKASSAR
BJOÐA HÆTTUNNI
HEIM
Eftir nóttina á lögreglu-
stöðinni hefur hann aðeins
einu sinni farið í spilakassa
og aldrei eftir að hann byrj-
aði fyrir alvöru í meðferð-
inni. í dag líður honum bet-
ur; hann er miklu glaðari og
það er langt síðan hann hef-
ur fengið slæmt þung-
lyndiskast. Hann tekur þátt
í heimilisstörfunum en það
hafði aldrei hvarflað að
honum áður. Hann á það
líka til að hringja í mig á
daginn, bara til þess að
spyrja hvernig ég hafi það
og sýnir mér á ýmsan hátt
hvað honum þykir vænt um
mig. Hann er farinn að taka
að panta viðtalstíma fyrir
okkur hjá SÁÁ. Þegar við
komum þangað var lagður
spurningalisti fyrir manninn
minn. Á listanum voru tutt-
ugu spurningar. Ef hann
svaraði átta þeirra játandi
benti það til þess að hann
væri fíkill. Maðurinn minn
svaraði átján spurningum
játandi. Meira að segja því
að hann hafi oftar en einu
sinni stolið peningum til
þess að svala fíkninni. Hann
fór svo í meðferð hjá SÁÁ,
fór á fundi þrisvar í viku og
tók meðferðina alvarlega,
staðráðinn í því að standa
sig.
En sjálfsblekkingin hélt
samt áfram og smám saman
minnkaði fundarsóknin nið-
ur í einn fund á viku. Við
fórum um sama leyti í fjöl-
skyldumeðferð vegna sonar
míns, sem leið illa á þessum
tíma, og vorum þá spurð að
því hvort einhver í fjöl-
skyldu okkar væri alkó-
hólisti eða hvort við værum
alin upp við meðvirkni. Ég
sagði sem satt var að ég
hefði verið gift alkóhólista,
væri alin upp á heimili alkó-
hólista og væri mjög með-
virk. Þegar kom að mannin-
um mínum svaraði hann
þessum spurningum neit-
andi í fyrstu, sagði svo með
semingi að bróðir sinn væri
alkóhólisti. Ég gat ekki stillt
mig um að spyrja hvort
hann ætlaði ekki að segja
frá spilafíkninni og það end-
lesandi segir
Þórunni
Stefánsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni
með okkur? Er eitthvað
sem hefur liaft mikil
áhrif á þig, jafnvel breytt |
lifi þínu? Þér er velkom-
ið aö skrifa eða hringja
til okkar. Við gætum
fyllstu nafnleyndar.
þátt í kostnaði við rekstur
heimilisins þótt ennþá eigi
hann langt í land með að
geta greitt upp gamlar
skuldir sem söfnuðust upp
þegar spilafíknin hafði yfir-
höndina.
Ég hef oft velt því fyrir
mér hvers vegna leyfi var
gefið fyrir því að setja upp
spilakassa og sé einfaldlega
ekki tilganginn með því. Ég
sé ekkert jákvætt við spila-
kassa, jafnvel þótt okkur sé
talin trú um að gróðinn af
þeim renni til ýmissa góðra
málefna. Meðan spilafíklar
eru til bjóða spilakassarnir
hættunni heim. Ég hef unn-
ið á krá þar sem einn slíkur
er staðsettur og fannst
óhugnanlegt að horfa upp á
sama fólkið koma aftur og
aftur, tæma veskið af pen-
ingum og biðja jafnvel
starfsfólkið um lán til þess
að geta spilað áfram. Ég sé
einfaldlega ekkert jákvætt
við þetta. Ég hef reynsluna
af því að búa með spilafíkli
og hef séð hvernig fíknin
getur breytt rólegum manni
í óargadýr.
Þótt allt gangi nú betur í
lífi hans finn ég stundum
fyrir gamla kvíðanum og
spennunni þegar nálgast
mánaðamót. Ég skynja líka
að löngunin í spilakassana
kemur ennþá yfir hann og
þá líður honum illa. En ég
hef trú á manninum mínum
og ég trúi því að hann geti
læknast af fíkninni með
hjálp góðra manna.
r
I lcimilisfan^ió cr: Vikan
- „Lífsrcyiisliisana**, Scljavcgur 2. 101
Rcykjavík,
Nctlang: vikaii@frodi.is