Vikan


Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 28

Vikan - 16.02.1999, Qupperneq 28
Biddu um jákvæð viðbrögð við því sem þú gerir. Flestir fara í gegnum iífið án þess að finna nokkurn tíma jákvæða umfjöllun um persónuleika sinn. Veldu þér því aðeins jákvæða vini sem eru ekki hræddir við að hrósa öðrum eða draga fram það góða í fari annarra. Náðu góðu valdi á einhverju. Rannsóknir sýna að náir þú góðum árangri í einhverju eykur það sjálfstraustið. Veldu þér starf eða afþreyingu og æfðu þig þar til þú nærð tökum á viðfangsefninu. Skráðu hjá þér árangurinn og hvernig hann verð- ur betri með tímanum. Þótt þér hafi ekki tekist að læra rússnesku á einum degi heldur eingöngu að sippa hraðar en áður er það nóg til að gefa sjálftraustinu byr undir báða vængi. Þú skalt horfast í augu við það sem þú óttast mest. Allir óttast eitthvað eitt sérstaklega og óska þess að þeim takist að sigrast á óttanum. Sumir þora aldrei að standa upp og tala fyrir framan stóran hóp, aðrir eru lofthræddir eða flughræddir. Farðu á námskeið og lærðu að sigra óttann. Sjálfstraustið eykst í stuttum en merkum skrefum. Verðu tíma með sjálfri þér. Fólk sem er ekki sátt við sjálft sig á erfitt með að vera eitt. Því þykir erfitt að vera til. Það heldur að geta þess og verðleikar sjáist á afrekaskránni. Taktu þér tíma til að hægja á, hlusta á þögnina og hugsanir þín- ar. Þannig muntu ná að skilja og meta hver þú raunverulega ert. Gerðu þér upp vellíðan. Þú verður að setja þér það markmið að verða sú sem þú vilt vera. Leiktu þá persónu. Láttu sem þú sért ánægð með þig, klæddu þig, gakktu, talaðu og brostu eins og sú persóna sem þú vilt vera og þú ert skrefi nær takmarkinu. Að lokum munu tilfinningar þínar verða í samræmi við hegðun þína. Breyttu viðhorfum þínum. Kæfðu allar neikvæðar hugsanir og temdu þér meira glaðlyndi. Lífið er miklu skemmtilegra þegar þú hefur losað þig við tilfinningauppnám og vanlíðan. Sex óbriqðul ráð til ao auka sjálfstraustið Steingerður Steinarsdóttir tók saman

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.