Vikan - 16.02.1999, Blaðsíða 48
Fríða
Björnsdóttir
Vikan
Grœnt og vœnt
AmaryMis
-einn fallegasti vorlaukurinn
Fáar plöntur bera ghvsilegri hlóm en amaryllis. Ilæj"! er að
fá lauka sem hera ólíka liti oj> gaman getiir verið að eiga
plöntnr al' lleiri en einiini lit til að stilla upp sanian. Þegar
Íilómin eru fölnuð er rétt að klippa þau af en leyfa plönt-
unni að halda áfrani að vcra á hlýjuin stað. (Ljósmynd:
Bragi Þór Jósel'sson)
Nú fer að koma
að því að þið get-
ið keypt amaryllis
í blómaverslun-
um, en amaryllis
er í flokki með
vorlaukunum
okkar og kemur
því ekki á markað
fyrr en nokkru
eftir áramót.
Amaryllis er af
liljuætt og alls
munu vera til um
sextíu mismun-
andi tegundir af
þessari ætt í
Suður-Ameríku
en plantan er
ættuð frá Perú.
Amaryllis ber ein-
staklega falleg og
stór blóm, þetta frá
tveimur upp í sex á hverjum
legg. Blómin geta verið allt
að tíu sentímetrar í þvermál
og þegar horft er inn í blóm-
ið líkist það einna helst
stjörnu, enda heitir amaryll-
is riddarastjarna á dönsku.
Ef þið náið í amaryllislauk
er rétt að setja hann í
blómapott sem hefur að
minnsta kosti tvöfalt þver-
mál lauksins sjálfs. Þið getið
auðveldlega náð ykkur í
mold út í garð, en einn
þriðji af jarðveginum í pott-
inum ætti að vera sandur.
Fyrst eftir að laukarnir
hafa verið settir niður er
rétt að láta pottinn standa á
heldur skuggsælum stað.
Vökvið svo ekki fyrr en
blöðin eru farin að stinga
kollinum upp úr moldinni.
Þótt þá megi byrja að vökva
verður að gera það af var-
færni svo laukurinn rotni
ekki.
Smátt og smátt fer laukur-
inn að róta sig og þarf þá
stöðugt meira og meira
vatn. Plöntunni fellur best
að vökvað sé í undirskálina
en þó ekki fyrr en blöðin
eru orðin nokkuð stór þang-
að til er óhætt að vökva
beint í moldina. Dragi
plantan ekki allt vatnið til
sín úr skálinni verður að
hella því sem eftir situr í
burtu annars getur það
valdið skaða.
Eftir að amaryllisplantan
er búin að blómstra verður
að halda áfram að hugsa vel
um hana og leyfa henni að
standa á björtum stað, en þó
verður að skýla henni fyrir
sterku sólarljósi um hádag-
inn. Plantan verður að fá
næga vætu og næringu því
með því móti getur hún farið
að búa sig undir að blómstra
að nýju næsta sumar. Þegar
hausta tekur á að draga úr
vökvuninni og um leið fara
blöðin að visna. Þegar þau
eru fallin er rétt að taka
pottinn og setja hann í
geymsluna. Þess verður þó
að gæta að hitinn fari ekki
niður fyrir 12 stig þar sem
potturinn er geymdur.
Kemur upp aftur
að vori
Amaryllisplantan er mest
ræktuð upp af fræjum en
einnig myndast smálaukar í
pottinum sem hægt er að
taka og setja niður í nýja
potta. Ekki þarf að skipta
um mold á plötunni nema
þriðja til fjórða hvert ár og
ekki fyrr en sést að plantan
er lifnuð við að vorinu.
48 Vikan