Vikan - 14.06.1999, Blaðsíða 2
Lcikkoniiii oji lcikstjórinn
Hclga Vala Hclgadóttir.
Hiin fór ckki auiivcldustu
lcióina í fyrsta lciksf jóra-
vcrkcfninu sínu og var ann-
U" ar stjórncnda á iippfærslu á
Brúðkaupi Fígarós scni sctt
var upp á Akurcyri af siing-
dcild Tónlistarskólans.
Helga Vala á ekki
langt að sækja leik-
listarhæfileikana því
hún er dóttir eins
ástsælasta leikara
íslands, Helga heit-
ins Skúlasonar og
Helgu Bachmann
leikkonu. Sem nýút-
skrifuð leikkona hef-
ur hún nú þegar
spreytt sig sem leik-
stjóri og á frumsýn-
ingu fékk hún það
hrós að hún hefði
hæfileikana því hún
væri passlega leiðin-
leg á köflum.
^rumraun Helgu Völu
var uppsetning söng-
deildar Tónlistarskól-
ans á Akureyri á óperu
Mozarts, Brúðkaupi Fíg-
arós, en það voru kennarar
og nemendur skólans sem
réðust í það verkefni.
Djörf frumraun
Stjórnandi uppsetningar-
innar var stjórnandi söng-
deildar skólans, Jóhann
Smári Sævarsson, en að
sögn Helgu Völu er hann
kjarnorkumaður, enda gerði
hann allt sjálfur sem hann
mögulega gat tengt upp-
færslunni. Hann þýddi tal-
sönginn á íslensku, stjórnaði
tónlistinni og þjálfaði söngv-
arana, hannaði leikmyndina
og leikskrána. Að því kom
þó að hann strandaði ein-
hvers staðar og þá hóaði
hann í Helgu Völu til að
stjórna leikrænni hlið sýn-
ingarinnar.
Frumraun Helgu Völu
sem leikstjóra var því ekki
af einfaldara taginu. "Þetta
var alveg rosalega gaman og
með þessu verkefni sé ég
líka hvað ég lærði mikið í
leiklistarnáminu," segir
Helga Vala. "En ég var nátt-
úrlega ekki ein í þessu verk-
efni því Jóhann Smári var
búinn að undirbúa þetta
rnikið en sem annar af leik-
stjórum sýningarinnar þá
fann ég hvað lítið er hægt að
gera þegar maður er búinn
að skila verkefninu frá sér.
Ég sat og engdist úti í sal á
frumsýningunni. Fékk nett
magasár en það stóðu allir
sig betur en ég nokkurn
tíma þorði að vona."
Róleg á frumsýningar-
daginn
Helga Vala lék eftir ára-
mótin hjá Leikfélagi Akur-
eyrar í verkinu Systur í
syndinni. Það voru því hæg
heimtaökin að taka að sér
uppfærsluna hjá söngdeild
Tónlistarskólans á Akureyri
á Brúðkaupi Fígarós. Helga
Vala hefur þó kvatt Akur-
eyri í bili og er aftur komin
til Reykjavíkur, þar sem hún
býr. "Nemendur og kennar-
ar söngdeildarinnar byrjuðu
að æfa sönginn fyrir óper-
una í nóvember í fyrra og
það er aðdáunarvert enda
allt þetta fólk áhugafólk sem
er að þessu utan síns vinnu-
tíma. Með þetta í huga
bjuggust ekki allir við því að
þessi sýning næði að verða
að veruleika og gengi hrein-
lega upp en annað kom á
daginn."
Margir söngvarar sýning-
arinnar eru að ljúka námi
frá Tónlistarskólanum og
nefnir Helga Vala að með
tilliti til þess að þeir fari í
frekara nám í óperusöng þá
hafi nemendurnir haft mjög
gott af því að taka þátt í
uppfærslunni vegna leik-
rænu hliðarinnar. Miklar
kröfur séu gerðar til nem-
enda í óperusöng og þess
krafist að þeir hafi einhverja
sviðsreynslu. Þeir verði að
geta sungið og leikið.
En býst Helga Vala við
því að hún eigi eftir að
spreyta sig frekar á leik-
stjórn? Það stendur ekki á
svari: "Ó já. Ég fékk litla
ræðu eftir frumsýninguna
þar sem mér var sagt að ég
hefði allt til að bera til að
verða góður leikstjóri. Ég
gæti verið passlega leiðinleg
á köflum á æfingatímabilinu
en nógu róleg á frumsýning-
ardaginn. Þetta átti víst að
vera hrós," segir hún að lok-
um ánægð með hólið.