Vikan


Vikan - 14.06.1999, Blaðsíða 52

Vikan - 14.06.1999, Blaðsíða 52
Texti: Ásgeir T. Ingólfsson Venjulega er megintak- mark kvikmyndaaug- lýsinga það að út- skýra fyrir væntanlegum áhorf- endum áður en þeir sjá myndina um hvað hún fjallar. Önnur mynd Wachowski- útskýra hvernig myndin vísar í Biblíuna, heimspekisöguna, goðafræðina, Lísu í Undralandi og Hong Kong-hasarmyndir John Woo til að sýna fram á að hinn svokallaði raunveruleiki - eða "Matrix" - sé í raun tölvu- bræðranna fer þveröfuga leið, hún spyr áhorfendur um hvað hún sé. Eina leiðin til að svara þeirri spurningu fullnægjandi er náttúrlega að sjá myndina, sem gæti skýrt af hverju hún er vin- sælasta mynd ársins vestra - sem gerist í þessu sólkerfi. Önn- ur skýring er þó sjálfsagt sú að margir þurfa að fara oftar en einu sinni til að geta svarað þessari spurningu: Hvað er Matrix? Trúarleg sólgleraugna- dæmisaga? Svörin við þessari spurningu hafa verið misjöfn. Sumir tala um rándýra sólgleraugnaauglýs- ingu, sem sé á góðri leið með að gera Keanu Reeves að kyntákni á nýjan leik, aðrir tala um að myndin sé trúarleg dæmisaga. Hvort tveggja er þó líklega ein- földun. Ef þú ætlar að svara þessu almennilega verðurðu að 52 Vikan búin veröld hönnuð af illgjörn- um geimverum sem hafa mann- kynið fyrir þræla - fyrir utan það að vera sýnikennsla í því að handleika skotvopn og ganga með sólgleraugu svo tekið verði eftir. Teljið svo núna hvað þið þurftuð að lesa setninguna hér á undan oft til að skilja hana, þá vitið þið hvað þið þurfið að sjá myndina oft. Blóð, sviti og tár - og miklar pælingar En ef það er erfitt að fá botn í myndina þá var ennþá erfið- ara að gera hana. Leikstjórarnir tveir settu leikurunum tvö skil- yrði. Annars vegar þyrftu þeir að geta útskýrt hvað Matrixið er og hins vegar þyrftu þeir að þjást fyrir það. Þjáningin fólst í sex mánaða æfingum, enda munu bardagaatriðin vera þau svakalegustu sem sést hafa og menn í Hollywood greinilega búnir að læra að fyrst það er ekki hægt að kenna Van Damme og Seagal að leika þá þurfi að kenna leikurunum að slást. En fyrst þurftu leikararnir að útskýra hverju þeir væru að fara að leika í. Ekki minni mönnum en Leonardo DiCaprio, Brad Pitt og Will Smith (sem þurfti að gera upp á milli kvikmyndaleiks/söngferils og Harvard) vafðist tunga um tönn þannig að Keanu Reeves fer með aðalhlutverkið, enda búinn að prenta orðið "dude" stórum stöfum í ensku orða- bókina með túlkun sinni á seinni hluta Bills og Teds, heimskustu snillinga kvik- myndasögunnar. En þrátt fyrir að persónurnar hafi verið mis- gáfaðar og leikhæfileikarnir umdeildir (misskildir vil ég meina) þá ber nær öllum sam- leikurum hans í gegnum tíðina saman um að hann sé einn sá allra gáfaðasti í þeirra stétt. Hann byrjaði til dæmis að lesa Shakespeare ungur að aldri - ótilneyddur - og hefur síðan leikið Hamlet á sviði og tókst meira að segja að leika bróður Denzel Washington í Ys og þys út af engu. Meðal mótleikara hans er svo Laurence Fis- hburne, en hann er einnig kunnugur þjóðskáldinu breska eftir að hafa fyrstur svartra manna túlkað márann Óþelló í kvikmynd. Að þessu sinni leikur Fish- burne Morpheus, lærimeistara hins unga Neo (Reeves), sem kennir honum að hann geti stjórnað efni með hugsuninni einni saman. Neo lendir í tilvist- arkreppu ekki ólíkri raunum Trumans Burbank - og raunar Reeves ef út í það er farið. Hann er einn sérvitrasti leikari Hollywood, býr í ferðatösku og hverfur algerlega úr sviðsljós- inu á milli mynda. Það er eins og hann hafi skilið að hann búi í gerviheimi, það eru allir í kringum hann að leika, rétt eins og í sápuóperu Trumans. Ein þeirra er Carrie-Ann Moss, sem leikur Trinity í The Matrix og virðist líkleg til að nota hana sem svipaðan stökkpall upp á stjörnuhimininn og Sandra Bullock gerði í Speed. Ofan í kaupið herma öruggar heimild- ir að hún hafi að auki krækt í Reeves - og er það merkilegt nokk fyrsta almennilega slúður- sagan sem fæst staðfest um Ke- anu okkar. Þau fá þó lítinn tíma fyrir tilhugalífið, það er von á tveim myndum í viðbót sem koma að líkindum um það leyti sem við verðum búin að fá botn í þessa. Molar: • Leikstjórarnir ungu, bræðurnir Larry og Andy Wachowski, sem báðir eru yngri en aðal- leikarinn Reeves, hafa áður leikstýrt lesbíutryllinum Bound - en byrjuðu þó sem teiknimyndahöfundar hjá Marvel, fyrirtækinu sem færir okkur meðal annars Könguló- armanninn - mynd sem síð- ustu fréttir herma að þeir muni leikstýra. En fyrst þurfa .þeir víst að klára Matrix númertvö og þrjú. • Sumar tæknibrellurnar í myndinni eru meðal þeirra ótrúlegustu sem sést hafa. Mesta athygli hefur hinn svo- kallaði "kúlnatími" fengið - þar sem leikararnir virðast hreyfa sig hraðar en byssu- kúlur - svona ekki ósvipað Lukku-Láka. • "Það þurfti brjálæðislega vinnu til að leika aðalhlut- verkið í myndinni. Þar af leið- andi þurftum við brjálæðing í hlutverkið. Keanu var okkar brjálæðingur". - Wachowski bræður um fyrsta fund þeirra og Keanu Reeves.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.