Vikan


Vikan - 14.06.1999, Blaðsíða 47

Vikan - 14.06.1999, Blaðsíða 47
ina varð honum hugsað til hringinganna sem Carol hafði sagt honum frá. Var einhver úr vinahópi hennar að stríða henni? Eða gæti það verið..? Nei, systir hans hafði rétt fyrir sér. Hann átti það til að taka hlutina of al- varlega. Rae Lemkin hafði varið morgninum í byggingavöru- versluninni og innkaupa- vagninn hennar var orðinn fullur. Hún hafði gaman af að kaupa ósamsetta hluti og var búin að finna allt sem hún þurfti til þess að smíða hillur í nýju íbúðina. Á leið- inni að kassanum rakst vagninn utan í ungan mann. Hvernig væri að líta fram fyrir fæturnar á sér? sagði hann og nuddaði á sér fót- legginn. Fyrirgefðu, meiddi ég þig? Rustý leit á hana. Ég held ég lifi þetta af, sagði hann svo. Hún sá brosið í augunum á honum og roðnaði. Þú vildir þá kannski vera svo góður að leyfa mér að kom- ast framhjá þér? sagði hún kuldalega. Hann hreyfði sig ekki en horfði á hana rannsakandi augnaráði. Hún var óneitan- leg falleg. Hárið var rauð- gullið og þykkt og hún var með freknur á nefinu. En það voru augun, stór og brún, sem fönguðu athygli hans. Allt í einu hrukkaði hann ennið. Ég hef séð þig áður. Ég man ekki til þess. Viltu vera svo vænn að færa þig, svo ég komist áfram. Ég meina það. Ég hef séð þig áður. Ég heiti Rustý Er- lich. Gott og vel. Ég heiti Rae Lemkin. Ég man að þú og Bobbý frændi minn voruð eins og samlokur þegar þið voruð strákar. Ég vissi að ég hafði séð þig áður, sagði hann og brosti breitt. Hvar heldur hann sig þessa dagana? Ég er vanur að rekast á hann næstum daglega en nú er líklega vika síðan ég sá hann síðast. Rae yppti öxlum. Ég hef ekki hugmynd um hvar hann er. Ég hef verið að reyna að ná í hann frá því ég flutti hingað. Vissurðu að honum hefur verið boðið að halda málverkasýningu í besta galleríinu í Boston? spurði hún brosandi. Bobbý sagði mér frá því síðast þegar við hittumst og við héldum upp á það með nokkrum bjórum. Hann benti á bílinn hennar. Ert þú í smíðabransanum? Ég er nýflutt hingað og var að kaupa mér íbúð, útskýrði hún. Það er margt sem þarf að gera. Hver hjálpar þér? Ég sjálf. Hún skellihló þegar hún sá efasvipinn á andliti hans. Ég ræð mun betur við hamar og skrúfjárn en innkaupavagna. Hann brosti. Þú veist hvar mig er að finna ef þig vantar hjálp. Rae virti hann fyrir sér þegar hann gekk um versl- unina. Hún hafði þekkt hann um leið og hún sá hann. Hvers vegna hafði hún ekki viðurkennt það? Það var ólíkt henni að vera með láta- læti. Aftur á móti var það líkt henni að verða að sanna fyrir umheiminum að hún geti gert allt hjálparlaust. Auðvitað hefði hún átt að þiggja hjálp frá honum. En hún hlaut nú að geta sett saman einfalda bókahillu. Svo hann hafði heldur ekki séð Bobbý. Hann hafði fundið íbúðina fyrir hana og lofað að líta til hennar um leið og hún var flutt inn. Hún hafði hvorki séð haus né sporð af honum. Furðu- legt. Hún yrði að hringja sem fyrst í mömmu hans og spyrja hana hvar hann héldi sig. Agnes Mills trúði því varla að henni hafi verið vís- að á götuna eftir að hafa búið í húsi Salino fjölskyld- unnar í 25 ár. Foreldrar Rósalíu höfðu fullvissað hana um að þar mætti hún búa til æviloka, hvorki þau né Rósalía myndu nokkru sinni vísa henni á dyr. Peningarnir sem hún fékk mánaðarlega úr Salino- sjóðnum komu nú að góðum notum. Án þeirra hefði hún ekki haft efni á öðrum samastað. Hún var svo heppin að finna litla íbúð til leigu hinum megin við göt- una. Hún yrði að þola sam- búðina með Viktoríu í nokkra daga í viðbót þar til íbúðin losnaði. Unga konan vakti forvitni hennar. Vissu- lega var hún falleg og stund- um gat hún verið indæl, en það var eitthvað undarlegt við hana sem erfitt var að átta sig á. Agnes rifjaði upp hvernig Viktoría hafði horft á málar- ann sent hún hafði ráðið til þess að mála andlitsmynd af sér. Hún hafði reyndar sent Agnesi fram um leið og hann kom en ekki áður, svo hún hafði séð tælandi augnaráðið. Og hún hafði sama kæk- inn og Rósalía hafði haft; að bíta neðri vörina til blóðs þegar hún var spennt eða þegar eitthvað angraði hana. Agnes lauk við að pakka fötunum niður í tösku. Nú átti hún bara eftir að taka myndirnar niður af veggjun- um, en fyrst ætlaði hún nið- ur í eldhús og fá sér tebolla. Hún andvarpaði og horfði í kringum sig. Á sama tíma á morgun yrði eins og hún hefði aldrei búið þarna. Viktoría læsti svefnher- bergisdyrunum og opnaði fataskápinn. Brúðan beið í efstu hillunni. Hún hataði að þurfa að vera ein í dimm- um skápnum en þar yrði hún að dúsa þar til hún los- aði sig Agnesi. Hún settist við gluggan og lét brúðuna á gluggakistuna. Henni var ískalt á höndun- um. Það er vegna þess að ég er yfirspennt, hugsaði hún með sér. Hún tók um hend- ur brúðunar og hallaði sér aftur í stólnum. Hún gat varla trúað því að stundin væri runnin upp. Rustý var á leiðinni til hennar, eins og hann hafði verið í draumum hennar öll þessi ár. Hún hafði verið orðin úrkula vonar um að henni tækist að ná sambandi við hann, því alltaf hafði kvenmannsrödd svarað í símann. En loksins hafði það tekist. Hún mátti ekki til þess að hugsa að hann byggi með konu. Hún var viss um að það var ekki Elaine, hún hefði þekkt þá rödd aftur. En hún mátti ekki láta þetta koma sér úr jafnvægi. Hún gat ekki ætlast til þess að maður eins og Rustý lifði eins og munkur meðan hún var fjarverandi. Hún hafði enn ekki ákveðið hvernig best væri að losna við þenn- an kvenmann en hún var viss um að henni dytti eitt- hvert snjallræði í hug. Treystu mér Rósalína, hvísl- aði hún. Rustý er okkar, að eilífu. Vikan 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.