Vikan - 14.06.1999, Page 12
Ekki
a I
Nokkrir mikilvægir
punktar...
• Taktu öryggisafrit af öllu því sem
er í tölvunni þinni. Enginn veit hvað
getur gerst.
• Fáðu útprentun af bankareikningun-
um þínum eða taktu út af þeim ef
þú óttast tölvuhrun. Það borgar sig
að vera viss.
• Eigðu a.m.k. mánaðarskammt af
nauðsynlegum lyfjum.
• Það getur komið sér vel að eiga svolítinn
forða af niðursuðuvöru eða þakkavöru sem
maður er orðinn háður, ef ske kynni að tíma-
bundinn skortur yrði á henni.
• Ekki treysta um of á plastkortin fyrst eftir áramótin.
Eigðu eitthvað af seðlum tiltækum ef í harðbakkann
slær.
• Hugsaðu um þá sem eru aldraðir og sjúkir. Það er ekki
víst að þeir hafi heilsu eða tækifæri til að undirbúa sig
eða bregðast við aðsteðjandi vanda.
Og svo allir hinir...
» Kauptu þér kampavín tímanlega. Það væri leiðinlegt að
missa af því.
• Taktu ákvörðun um það hvar þú ætlar að vera um
og ef þú þarft að kaupa farmiða eða panta eitthvað ættirðu
að gera það sem fyrst. Það verða margir á ferðinni.
• Hentu fötunum sem þú notar aldrei eða gefðu þau í góð-
gerðarstarfsemi. Ekki byrja nýja öld með fataskápinn
fullan af fötum sem passa ekki.
• Ef þú ætlar að skipta um hárgreiðslu eða háralit er
kjörið að gera það fyrir aldamótin. Það sama gildir ef
þú vilt skipta algerlega um stíl.
• Losaðu þig við draslið í geymslunni. Hentu öllu því
sem þú hefur ekki notað í tvö ár eða lengur.
« Losaðu þig líka við ómögulega gamla kærasta, einnig
þá sem þú hefur notast við síðastliðin tvö ár.
• Skrifaðu bréf til allra vina þinna og vandamanna þar
sem þú segir þeim frá því besta sem þú hefur upplif-
að á öldinni. Sendu þeim bréfið milli jóla og nýjárs.
• Skriftaðu til þess að losa þig við syndirnar fyrir
aldamótin ef þú ert kaþólikki. Gerðu það líka þótt
Því miður
er nánast
öruggt að
eitthvað
bregst.
þú sért það ekki, talaðu þá við góða
vinkonu í staðinn fyrir prestinn.
• Eigðu til nóg af kertum og eldspýt-
um. Kannski fer rafmagnið.
• Fyrirgefðu öllum sem hafa eitthvað
gert á hluta þinn. Það er gott að byrja
upp á nýtt.
• Kauptu þér nýjan kjól til að vera í um
aldamótin. Hafðu hann flottan.
• Hentu appelsínuhúðarkremum og
öðrum tilgangslausum snyrtivörum.
• Skrifaðu lista yfir alla þá sem þú ætl-
ar að gleðja um aldamótin.
• Raðaðu myndunum, sem þú átt í ótal
umslögum, inn í myndaalbúm.
« Sæstu við tilhugsunina um að eldast.
• Taktu ákvörðun um með hverjum þú
ætlar að eyða aldamótunum og tal-
aðu um það við þá. Annars gæti það
orðið of seint.
12 Vikan