Vikan


Vikan - 14.06.1999, Qupperneq 28

Vikan - 14.06.1999, Qupperneq 28
Hann ætlaði að drepa okkur „Eg var misnotuð kynferðislega þegar ég var barn og það hefur sett mark sitt á allt mitt líf. Ég var alin upp á traustu og góðu heimili og hefði aldrei trúað að neinn gæti verið svona vondur. Þetta var ná- inn fjölskylduvinur og ég vildi ekki skapa vandræði með því að segja frá. Reyndar hef ég alltaf verið þannig að ég vil sætta fólk og halda friðinn ef eitt- hvað er. Ég var því ákjósanlegt fórnar- lamb. Ég lét ekki finna á mér að neitt væri að en frammi- stöðu minni í námi hrakaði. Ég hafði alltaf verið efst eða með þeim efstu í bekknum en nú hrap- aði ég niður í meðal- lag. Vegna þess að fallið var ekki meira var það skrifað á ólgu unglingsáranna og það umrót sem þeim gjarnan fylgir frekar en að talið væri að eitthvað al- varlegt væri að. Það þótti því ekki ástæða til að bregðast við eða leita djúpt eftir orsökum þessa. Sennilega hef ég ekki ver- ið nema ellefu til tólf ára þegar þetta byrjaði. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því þar sem ég fyrst í stað skildi ekki alveg hvað var á ferðinni því kynlíf var ekki rætt á heimilinu. Ég vissi því ekki hvar mörkin voru en ég skynjaði að gælur hans voru ekki eins og þær áttu að vera. Hann gekk einnig sí- fellt lengra og áreitni hans varð stöðugt grófari. Ég hafði alltaf verið lífsglatt barn en ég missti gleðina innra með mér við þessa reynslu. Ég gat ekki hugsað mér að verða þess valdandi að leiðindi og uppþot yrðu svo ég hélt áfram að þegja. Þegar ég var fjórtán ára brann ofan af okkur og fjöl- skyldan missti nánast allt sitt. Við urðum því að flytja en þótt undarlegt megi virð- ast fór ég tiltölulega létt í gegnum það. Við flutning- ana minnkaði nefnilega sambandið við fjölskyldu- vininn. Foreldrar mínir eru heilsteypt fólk og fjölskyld- an er sterk og samheldin svo við komumst reyndar öll til- tölulega vel frá þessu áfalli. Ég varð aldrei neitt áber- andi villtur unglingur en ég flosnaði upp úr skóla, hafði ekkert sjálfstraust og giftist ung manni sem var alkó- hólisti. Hjónabandið var dæmt frá upphafi. Hann var góður drengur en drykkjan breytti honum. Hann var sjómaður og alltaf fullur þegar skipið var í landi. Sennilega hefur atvinna hans gert það að verkum að hjónabandið entist þó jafn lengi og það gerði því ég jafnaði mig á drykkjuköst- unum meðan hann var úti á Málinu var sem sagt vísað frá vegna skorts á sönnunargögnum þrátt fyrir að fyrir lægi játning sak- borningsins. sjó. Við áttum orðið tvö börn en drykkjan stigmagn- aðist. Skapið fór einnig versnandi með aukinni drykkju. Líkt og venjulega var ég staðráðin í að láta ekki á neinu bera og halda friðinn eins lengi og ég gat. Ég svaraði honum sjaldnast þegar skapvonskuköstin gripu hann og reyndi alla tíð að halda góða skapinu. En allir hafa einhver mörk eða einhvern þröskuld þar sem ekki verður aftur snúið sé stigið yfir hann. I einu skapofsakastinu barði hann mig og þar með var komið að mínum þröskuldi. Ég skildi við hann. Þá fyrst tók steininn úr. Hann var mjög ósáttur við skilnaðinn og lét mig ekki í friði. Að lokum braust hann inn til mín og barnanna vopnaður hnífi og ætlaði að drepa okkur. Það vildi okkur til lífs að við vor- um ekki heima þetta kvöld en í staðinn skeytti hann skapi sínu á eigum okkar. Hann skar allt í sundur, hús- gögn og fatnað og eyðilagði annan húsbúnað. Ég kærði hann til lögreglu sem reynd- ist mér afskaplega vel. Lög- reglan veitti mér vernd og kom fram við mig af mikilli kurteisi og hlýju. Ég naut líka góðs stuðnings frá fjöl- skyldu og vinum. Hann svaraði lögreglu- kærunni með því að kæra mig til barnaverndarnefnd- ar. Fulltrúi nefndarinnar kom einu sinni í heimsókn og það nægði til að þau átt- uðu sig á hvernig allt var í pottinn búið. Nefndin studdi mig í hvívetna eftir það. Maðurinn minn fyrrver- andi játaði fyrir lögreglunni að vera valdur að innbrotinu og málið var sent ríkissak- sóknara. Síðan leið og beið og ekkert fréttist af stöðu málsins þar til að loks kom úrskurður þess efnis að mál- inu hefði verið vísað frá. I úrskurðinum segir að um fjölskyldumál sé að ræða og þar sem skilnaður hafi átt sér stað svo skömmu fyrir innbrotið þyki ekki fullsann- að að maðurinn hafi ekki verið að eyðileggja eigin eignir. Málinu var sem sagt vísað frá vegna skorts á sönnunargögnum þrátt fyrir Ég var misnotuð kynferðislega þeg- ar ég var barn og það hefur sett mark sitt á allt mitt líf. að fyrir lá játning sakborn- ingsins. Ég varð miður mín við þessar fréttir en reyndi líkt og venjulega að gera gott úr öllu. Ég sagði við lögreglu- mennina, sem voru jafn undrandi á þessu og ég, að 28 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.