Vikan - 14.06.1999, Side 63
Kona Vikunnar
sýningarsali í bakgörðum, frábær veitingahús og stemmningu eins og
hún gerist best á 17. júní í Reykjavík! Þarna er haldinn stór útimarkaður
þar sem finna má allt milli himins og jarðar á góðu verði. Prófið endilega
markaðinn á Viale Papiniano á laugardegi!
Via Montenapoleone: Einstök gata þar sem fremstu tískuhönnuðir
heims reka verslanir sínar. Vert er að dvelja um stund við götuna og
horfa á arabísku konurnar, sem ferðast saman í hópum, yfirleitt í glæsi-
bifreiðum með einkabílstjóra, og flott klædda karlmenn á vélhjólum!
Ómissandi er að setjast inn á kaffihúsið Cave Cova á horni Via San
Andrea og Via Montenapoleone og fá sér ekta cappucino og pasticceri
(litlar, skreyttar kökur).
Útikaffihúsunum: Það tilheyrir Mílanóferð að gefa sér góðan tíma til að
sitja á útikaffihúsum og virða fyrir sér mannlífið. Skemmtilegt er að sitja
í Galleríunni (Galleria Vittorio Emanuele) þaðan sem sjá má Dómkirkj-
una öðrum megin og Scala hinum megin - og gleymið ekki að fara inn í
miðju byggingarinnar og snúa ykkur í heilhring! Það táknar að maður
muni komaafturtil Mílanó!!!
Vert er að benda á aðalverslunargötuna í Mílanó, Corso Buenos Aires,
þar sem hinn al-
menni ítali verslar
og segja má að sé
eins konar Lauga-
vegur Mílanó. Þar er
iðandi mannlíf frá
morgni til kvölds og
við þessa götu
stendur hótelið
Grand Hotel Puccini,
sem margir íslend-
ingar hafa gist á.
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 153
Anna Toher er skólastjóri Förðunarskólans en hann hef-
ur starfað í núverandi mynd síðan í janúar 1996. Skóla-
árið skiptist í þrjár annir og stendur hver önn yfir í
þrjá mánuði. Skólinn setur ekki inntökuskilyrði sem slík, það
sem til þarf er áhugi á förðun og öllu því sem þeirri grein við-
víkur. Þetta er starfsnám og að því loknu fá nemendur viður-
kenningarskjal og geta kallað sig farðara.
Það eru að meðaltali tíu manns á hverju námskeiði en mögulegt
er að taka um þrjátíu einstaklinga inn. í grunnnáminu, sem tek-
ur þrjá mánuði, er lögð áhersla á ljósmynda- og tískuförðun. Á
fyrri hluta þess er kennt að nota liti og blanda þeim saman
ásamt notkun pensla og annarra áhalda. Þá er líka farið í tækni-
lega uppbyggingu andlita. Á seinni hluta námskeiðsins er farið
nánar út í mismunandi förðun, t.d. tísku- og fantasíuförðun.
Einnig kemur fortíðarförðun til sögunnar.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera?
Það er nú svo margt! Mér finnst mjög
gaman í vinnunni sem byggist mikið á
samskiptum við fólk. Ég hef einnig
ákaflega gaman af lestri bóka og
hvers kyns upplýsingaöflun, þar sem
ég er fróðleiksfús að eðlisfari og er
forvitin um lífið og tilveruna.
Hver er besta kvikmynd sem
þú hefur séð?
Mér finnst Hús andanna alveg stór-
kostleg mynd og ekki hvað síst vegna
frábærrar förðunartækni. Ég má
einnig til með að nefna Pricilla en
boðskapurinn í þeirri mynd er afar
sérstakur. Förðunin í henni var líka
mjög góð.
Hvað er uppáhaldsmaturinn þinn?
Ég er sérstaklega hrifin af japönskum mat.
Hvernig er rómantísk kvöidstund að þínu mati?
Það fyrsta sem kemur í hugann eru heitar og fagrar slóðir á
borð við Karíbahaf og Indlandshaf. En hér heirna yrði fyrir val-
inu kvöldverður á góðu veitingahúsi eða að dekka upp fallegt
borð heima með góðum mat og kertaljósum. Hluti af rómantík-
inni finnst mér líka vera að klæðast fínum fötum. Með því að
skapa sér fallegt umhverfi verður rómantíkin enn sterkari.
Hvernig hyggstu eyða sumrinu?
Ég ætla að vinna, spila golf og vera eins mikið með fjölskyld-
unni og mögulegt er. Við förum eina helgi að Laugalandi þar
sem Sólstöðuhópurinn verður með ýmis konar námskeiðahald
og skemmtun. Ég vonast líka til þess að geta sinnt söfnun jurta
í sumar en það er mikið áhugamál hjá mér og tengist inn á
helstu hugsjón mína, en hún er sú að vinna að bættri heilsu
fólks. Ég kem einmitt mikið inn á hollustu og næringu í kennsl-
unni því það er þýðingarmikill þáttur vellíðunnar, góðs útlits og
sjálfsöryggis.
í sumar mun ég líka sækja ráðstefnu hjá Herbalife sem nefnist
Expo 99 og verður haldin í París.