Vikan


Vikan - 06.07.1999, Side 4

Vikan - 06.07.1999, Side 4
Steingerður Hrund Margrét V. Kristín Anna B. Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir Guðmunds- Þorsteins- dóttir blaðamaður blaðamaður dóttir dóttir blaðamaður auglýsinga- auglýsinga stjóri stjóri Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður Ritstjóri Sigriður Arnardóttir Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal- ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Simi: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Simi: 515 5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Simi: 515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V. Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds- dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is Grafískur hönnuður Guðmundur Ragnar Stein- grimsson Verð i lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Það gleður okkur mikið þegar við heyrum frá lesendum okkar eða fáum bréffrá þeim, sérstaklega þeim lesendum sem hafa hugmyndir fram að færa og gefa okkur góð ráð í einlœgni. Það er okkur mikil hvatning að heyra frá lesendum þegar efnið okkar hittir í mark, en við viljum líkafá að vita ef eitthvað gerir það ekki. Eitt erþað sem lesendum okkar liggur þungt á hjarta; Pósturinn. Gamli, góði Vikupósturinn sem leysti hvers manns vanda. Það líður varla sú vika að ekki hringi eða skrifi einhver aflesendum okkar og vilji fá Póstinn aftur. Svo langt geng- ur þetta að Póstinum berast reglulega bréfþótt hann hafi ekki verið starfandi á Vikunni um árabil! Nú verður ekki við þetta unað lengur og Pósturinn hefur aftur göngu sína í nœsta tölublaði, vonandi öllum til mik- ils léttis. Hann mun verða á síðum blaðsins aðra hverja viku á móti lækninum. Byrjið því strax að skrifa, - ekki má hann verða verkefnalaus þegar hann tekur til starfa að nýju eftir langt hlé. En þótt Pósturinn sé enn fjarri er nóg að lesa í Vikunni að vanda. Þessi Vika er sú sem margir hafa beðið með óþreyju. Þetta er neþtilega Vikan þar sem úrslitin í smásagnasamkeppninni liggja fyrir. Verðlaunasagan Kærleiks- verk var svo sannarlega þess virði að bíða eftir. Hún lætur engan ósnortinn. Við birtum einnig stutt viðtal við höf- undinn, Kristínu Heiðu Kristinsdóttur blaðamann. Þá birtum við viðtal við Guðrúnu Árnadóttui; sem er formaður Félags fasteignasala. Hún á og rekur fasteignasölu, ásamt manni sínum, en þau eiga þrjú börn. Hvernig skyldi það annars vera að búa saman og vinna saman allan daginn? Það gera ótrúlega margir og líður vel. Við fáum viðtöl við fern hjón á Akureyri sem þannig háttar til hjá. Nú, og efþetta lesefni dugar ekki má benda á tvœr lífsreynslusögur, framhaldssögu, umfjöllun um heimþrá, tísku- þáttfyrir börnin, ráðleggingar fyrir ferðafólk, leiki og krossgátur, stjörnuslúður og mataruppskriftir, svo eitthvað sé nefnt. Og ekki má nú gleyma einu,- nýjum Sumarleik Vikunnar, sem hefur göngu sína íþessu blaði. Ekki missa af mögu- leikanum á að vinna ferð til Portúgal! Njóttu Vikunnar! Jóhanna Harðardóttir

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.