Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 10
Texti: Halla Bára Gestsdóttir Myndir: Gunnar Sverrisson
Þau eru hjón og sambýlisfólk, reka saman fyrirtæki og vinna saman. Fara jafnvel sam-
an i vinnuna á morgnana og koma sarnan heim á kvöldin. Eyða meiri tima saman en
flest pör og vekja þess vegna athygli og forvitni margra sem spyrja hinnar hefð-
bundnu spurningar: "Er gaman að vera alltaf saman?" Vikan fékk nokkur hjón og
sambýlisfólk sem eru í þessari aðstöðu til að segja örlitið frá lífi sinu.
10
Sigurður Gestsson
og Halla Stefáns-
dóttir eiga og reka
Vaxtaræktina á Akureyri.
Þau stofnuðu hana 1982 og
hafa því unnið saman í lík-
amsræktargeiranum í 17 ár.
Fyrirtæki þeirra hefur undið
mikið upp á sig á þessum
árum, enda hefur áhugi á
líkamsrækt aukist. Frá upp-
hafi hafa þau haft ákveðna
verkaskiptingu sín á milli í
vinnunni. „Við erum búin
að vera saman í þessu svo
lengi,“ segir Sigurður, sem
er vanur að hafa FIöllu ná-
lægt sér í vinnunni. „Já,
hann stjórnar en ég læt ekki
að stjórn,“ svarar hún að
bragði brosandi til Sigurðar
og hann samsinnir því. Ann-
ars er það dagleg stjórnun
og umsjón Vaxtaræktarinnar
sem er í höndum Sigurðar
en Halla sér meira um lok-
aða tíma og ýmis sérverk-
efni.Hanna segir að allt þar
til að á síðustu árum hafi
þau bæði komið að öllu sem
til féll í rekstrinum, en nú
hafi hún aðeins dregið sig til
baka enda synir þeirra farnir
að vinna hjá þeim.
Spurningin hvort það hafi
vafist fyrir þeim í upphafi að
fara að vinna saman og vera
nreira og minna saman allan
sólarhringinn vefst ekki fyrir
Sigurði og Höllu. Þau segj-
ast aldrei hafa velt því fyrir
sér. Þetta hafi bara verið
vinnan þeirra. "Mér hefur
alltaf verið sama hvað öðr-
um finnst," segir Sigurður í
þessu sambandi.
Þau eru sammála um
að fólk hafi verið svo-
lítið forvitið um
hvernig málin gengju fyrir
sig hjá þeim. Hvernig væri
að búa saman og vinna sam-
an. Ingimar Friðriksson
og Aóalbjörg Baldvins-
SigurOiir og llalla:
"Þaft eru l'orrélliiidi aft
viima svona sainan og
|>á sérsfaklega varft-
audi börnin."