Vikan


Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 26

Vikan - 06.07.1999, Blaðsíða 26
Verðlaunasagan í smásagnakeppni Vikunnar: aldrei verið þörf fyrir Guð. Við höfum haft hvort annað. Ég hef verið alltumvefjandi rétt eins og Herrann á himn- um. Ást Krists á mannkyn- inu og fórnir hans eru hjóm eitt hjá því sem við höf- um lagt á okkur fyrir hvort annað. En sönn ást er aldrei of dýru verði keypt, það vitum við bæði. Þú hefur til- beðið mig og ég hef lot- ið þér. Þú hefur fallið í tárum um háls minn og Það hringsnýst allt inn í höfðinu á mér í þessu endalausa svigrúmi þar sem hvergi órar fyrir landi undir fæti. Má ég þá frekar biðja um hart eldhúsgólf við vanga. En það er kannski ekkert skrýtið þó ég sé svolítið áttavillt því hjá þeim sem er þátttakandi í svona kraft- mikilli ást, renna himinn og haf saman í eitt. Þetta er stöðugur stormur og stór- sjór. Lögmálin umhverfast og vatn rennur upp í móti. Ást okkar er einstök og hafin yfir alla meðal- mennsku. Þetta veist þú jafn vel og ég þó þú hafir aldrei sagt það berum orðum. Augu þín hafa aldrei getað leynt fítonskrafti þess hugs sem þú berð til mín. Hvert augnatillit þrungið merk- ingu. Þetta ristir svo djúpt að á okkar heimili hefur tignað blóðrisa ásjónu mína, játað syndir þínar, beðist fyrirgefningar og fengið hana - alltaf - því ég er mis- kunnsöm. Enda ber ég nafn mærinnar sem ól af sér frelsarann. Það ber ekki heldur mikið á milli mín og sonarins. Við eigum bæði okkar stað: Hann á krossin- um en ég hangi negld í faðmi þínum. Og mín síðu- sár eru reyndar fleiri og dýpri, þótt ekki hafi þau far- ið eins hátt og hans eina rispa. En ólíkt kvölurum Krists, þá hefur þú alla tíð vitað hvað þú gjörir. Högg þín hafa verið markviss og haft tilgang. Þú hefur alla tíð lagt hjarta þitt í hvert þeirra og sársauki þinn hefur ætíð verið meiri en minn, eins og þú hefur svo oft bent mér á. Á bakvið hvert einasta ör betur að hafa röggsaman knapa með ákveðið taum- hald. Ég finn svo vel núna að þú hafðir rétt fyrir þér, konur þurfa aðhald. Ég er bara brunnið bein án þín. sem ég ber á sál og líkama liggur saga. Saga tilfinninga sem eru stærri en allt sem til er. Nú finn ég hversu dýr- mætt það er að vera áþreif- anlega merkt ást þinni. Ég hef ekki gert þér þetta auð- velt, en þegar upp er staðið þá voru okkar bestu stundir þau fjölmörgu skipti sem þú grést í sárri iðrun í kjöltu minni, fylgdir mér um- hyggjusamur á slysadeildina og straukst blíðlega hönd mína á meðan gert var að sárunum. Ég veit að sökin liggur að mestu hjá mér því mér hefur aldrei tekist al- mennilega að höndla þessa ást. Ég hneigist af einhverj- um ástæðum alltaf til þess að bregðast rangt við og vekja upp lausu höndina úr hugarfylgsnum þínum. Ég hef til að mynda aldrei haft rænu á að vera í réttri þyngd, ég er ýmist horrolla eða yfirvigtarbelja. Og ég get verið svo fádæma kæru- laus með að passa upp á að maturinn sé mátulegur þeg- ar þú kemur heim - ekki of heitur og ekki of kaldur. Ég gæti svo sem haldið áfram endalaust, en þegar ég rifja þetta upp þá sé ég hvað ég hef staðið mig slælega. Ekki að undra þótt þú hafir margoft misst þolinmæðina. Ég hef verið þér þungur kross að bera. Því er það svo að þegar ég fór að gera upp við mig hlutina og velta því fyrir mér hvernig ég gæti endurgoldið takmarkalausa ást þína, þá komst ég að því að aðeins með því að losa þig undan þeirri áþján sem ég var orðin þér gæti ég nóg- samlega þakkað fyrir mig. Og dauði þinn var eina leið- in hjá okkur því aðeins hann fær aðskilið þá sem unnast af heilum hug. Þegar ég heyrði hrossag- aukinn hneggja á jörðu niðri vissi ég að rétti tíminn væri kominn, sá feigðarboði hef- ur aldrei brugðist. Það verð- ur jú allt að fara sem verkast vill og þetta gekk blessunar- lega vandræðalaust fyrir sig. Þú getur treyst því að aldrei mun það vitnast að það var ég sem veitti þér náðarhögg- ið, enda höfum við alla okk- ar búskapartíð verið sam- hent í að halda hlutunum leyndum. Okkur varð snemma ljóst að órannsak- anlegir vegir ástar okkar mættu ekki skilningi hjá al- múganum. Þitt síðasta góðverk mér til handa er að taka þetta sameiginlega leyndarmál okkar með þér inn í eilífð- ina. Hafðu þökk fyrir það og alla tryggðina. Nú ertu burtsofnaður elsku vinur hljóður og um- vafinn silki, og þarft aldrei framar að vera votur um hvarmana mín vegna. Og af því að ég veit hversu lítil von er um ljósglætu hjá þér, þegar mokað hefur verið yfir þig, þá ætla ég að leggja þetta bréf á brjóst þér í kistulagningunni á morgun. Orð mín verða ljósið í myrkrinu. Þeim fylgir ást og birta sem þú getur hallað þér að þegar nágalarnir fær- ast nær. Nú ertu endanlega frjáls undan íþyngjandi návist minni ástin mín, og ég kvíði hvorki morgundeginum né kveðjustundinni þvíþað kærleiksverk sem ég hef unnið af hendi mun gefa mér styrk. Þú einn ert mér allt. Héðan til eilífðar, þín meyjan hreina María. 26 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.